Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 12
Vikublað 10.–12. janúar 201712 Fréttir Skattpíningin löngu komin út úr öllu korti n Ofurskattar á áfengi og tóbak er sérkennileg pólitík n Neyslustýring ekki virkað segir framkvæmdastjóri FA Þ etta eru rosalegar tölur,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, um upp­ lýsingarnar um álagningu á áfengi og tóbak sem DV fjallar um á opnunni hér að framan. Félag at­ vinnurekenda (FA) vakti nýlega athygli á verðlagningu áfengis hér á landi þegar hækkanirnar sem nú eru komnar til framkvæmda voru boðaðar. „Þetta eru tölur sem við könnumst við,“ segir Ólafur og bendir á að hlut­ fall ríkisins geti verið enn hærra en þarna kemur fram. Þá verði að taka með í reikninginn að það sem kall­ ast smásöluálagning ÁTVR endi líka í ríkissjóði. „Innkaupsverð á vodka­ flöskunni er innan við 10 prósent og allt hitt fer til ríkisins.“ Heimsmet í álagningu löngu slegin Ólafur bendir réttilega á að hækkun á áfengis­ og tóbaksgjöldum hafi í gegnum tíðina verið réttlætt með tvennum hætti. Annars vegar sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð og hins vegar sem neyslustýring. „Sem tekjuöflun, þá spyrjum við: Eru engin takmörk fyrir því hvað er hægt að skattleggja einhverjar til­ teknar vörur til að afla tekna fyrir ríkissjóð? Evrópu­ og heimsmet í áfengisgjöldum eru löngu slegin og mönnum finnst samt í lagi að halda bara áfram. Við höfum kallað eftir einhverri pólitískri stefnumörk­ un um það hvar eigi að láta staðar numið, því þetta eru bara endalausar hækkanir,“ segir Ólafur. „Hin réttlætingin á þessu er að þetta sé neyslustýring. Við fáum ekki séð að hún sé að virka. Það er að segja, að þrátt fyrir hækkandi gjöld þá eykst salan í Vínbúðunum. Ef menn vilja fást við neikvæðar afleiðingar áfengis­ og tóbaksneyslu þá er miklu nær að gera það með forvarnarstarfi sem hefur sýnt sig að skili miklu betri árangri en tilraun til að stýra neyslu með sköttum.“ Ólafur kveðst ekki hafa alþjóðlegan sam­ anburð varðandi skatt­ lagningu á tóbaki og hvernig henni sé hátt­ að í nágrannaríkjum okkar, en hvað áfengið varðar séum við komin út úr öllu korti. Engu skárra ef salan yrði gefin frjáls Stór hluti tekna ÁTVR er með einum eða öðrum hætti hluti af tekjum ríkis sjóðs í formi áfengis­ og tóbaks­ gjalda, virðisaukaskatts og arðs. Samkvæmt nýjasta birta ársreikn­ ingi ÁTVR, fyrir árið 2015, námu tekjur það ár 23,5 milljörðum króna, en arðgreiðsla til ríkissjóðs 1,5 millj­ örðum króna það ár. Í ljósi þess að svo stór hluti álagningar er í gegn­ um gjöld og virðisaukaskatt þá tek­ ur Ólafur undir að erfitt sé að sjá að það myndi hjálpa að gefa áfengis­ sölu frjálsa, og leyfa t.d. sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum. „Nei, ríkið ræður sínum tekjum af sölu áfengis og þær koma að langstærstum hluta í gegnum virðis­ aukaskattinn og áfengisgjaldið þannig að það myndi ekki breytast mikið þó að salan yrði gefin frjáls. Það sem er líklegt að myndi gerast er að það yrði aukning á sölunni og þá væri ríkið sennilega að græða á því.“ Skattpíning neytenda Ólafur segir að það sé hægt að skilja að ríkið vilji afla sér tekna en leiðin geti ekki verið að taka ítrekað út tvo tiltekna vöruflokka. „Og segja svo: hér sé bara hægt að hækka skatta endalaust og pína neytendur alveg út í hið óendanlega, það finnst okkur mjög sérkennileg pólitík og það hlýtur að vera komið að einhverjum þolmörkum í þessu. Forvarnirnar beinast gegn misnotk­ un áfengis. Þessir ofurskattar leggj­ ast jafnt á þá sem misnota áfengið og þá sem neita þess í hófi. Það er ekki skilvirk skattlagning ef tilgangur hennar er að draga úr misnotkun­ inni. “ Ólafur bendir á að á einhverjum tímapunkti hljóti menn einnig að fara að velta þessu fyrir sér út frá hagsmunum til dæmis ferðaþjón­ ustunnar, hversu langt eigi að ganga í að hækka verð á þessum vörum. „Það hlýtur að fara að koma inn í myndina. Maður sér bara fram­ an í túristana þegar þeir skoða hvað bjórflaska kostar úti í ríki, þeir ætla bara ekki að trúa því.“ n „Evrópu- og heims- met í áfengis- gjöldum eru löngu slegin og mönnum finnst samt í lagi að halda bara áfram. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum iP one í úrvali Erum flutt á Grensásveg 14 Allskyns aukahlutir Grensásvegur 14 s: 534 1400 Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.