Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Qupperneq 6
Vikublað 10.–12. janúar 20176 Fréttir
Rætt um að
skipta innanríkis-
ráðuneytinu upp
n Naumur meirihluti stendur í Sjálfstæðismönnum
R
ætt er um að skipta inn
anríkisráðuneytinu upp í
tvennt, ráðuneyti dóms
mála og ráðuneyti sam
göngumála. Ef af verður
munu bæði ráðuneytin falla í skaut
Sjálfstæðisflokksins og hann þar
með fá í sinn hlut sex ráðuneyti
auk embættis forseta Alþingis.
Ekki var þó búið að taka ákvörðun
hvað þetta varðaði þegar DV fór í
prentun í gær, mánudag.
Skipting ráðuneyta milli flokk
anna þriggja, Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar,
verður með þeim hætti að óbreyttu
að Sjálfstæðisflokkurinn mun skipa
ráðherra í forsætisráðuneyti, utan
ríkisráðuneyti, innanríkisráðu
neyti, menntamálaráðuneyti og
iðnaðar og viðskiptaráðuneyti. Í
stóla fjármálaráðherra, sjávarút
vegs og landbúnaðarráðherra og
félagsmálaráðherra mun Viðreisn
skipa og Björt framtíð mun fá í sinn
hlut stóla heilbrigðisráðherra og
umhverfisráðherra. Mestar líkur
eru taldar á því að þessi skipting
muni halda sér.
Í gær var enn óljóst hverjir
myndu skipa ráðherrastóla í verð
andi ríkis stjórn. Ljóst er að Bjarni
Benediktsson verður forsætisráð
herra og Benedikt Jóhannesson fjár
málaráðherra. Annað er ekki ljóst
þótt talið sé líklegt að Óttarr Proppé
verði heilbrigðisráðherra. Óljóst er
hverjir aðrir verða ráðherrar en talið
er að bæði Kristján Þór Júlíusson
og Guðlaugur Þór Þórðarson verði
ráðherrar Sjálfstæðis flokksins. Þá
er einnig talið að Ólöf Nordal verði
annað hvort skipuð ráðherra eða að
því lýst að hún muni setjast í ráð
herrastól þegar hún hefur jafnað
sig af veikindum sínum. Rætt hefur
verið um það innan Bjartrar framtíð
ar að þingmenn flokksins muni víkja
af þingi setjist þeir í ráðherrastól.
Þeir munu þó heldur vera orðnir af
huga slíku sökum naums meirihluta
ríkis stjórnarinnar. Þeir ættu þá ekki
aftur kvæmt á þing félli ríkis
stjórnin.
BF tekur ekki
formennsku í
nefndum
Formenn flokk
anna eyddu gær
deginum í að
ræða við sína
þingmenn og fara
yfir óskir þeirra um
vegtyllur og ábyrgð á
kjörtímabilinu. Eftir því
sem heimildir DV herma
mun Sjálfstæðisflokkurinn skipa
formenn í fimm þingnefndum,
Viðreisn í einni og stjórnarandstað
an skipi formenn tveggja nefnda.
Ekki er gert ráð fyrir að þingmenn
Bjartrar framtíðar taki að sér for
mennsku í nefndum. Þar fyrir utan
er forsætisnefnd, en mestar líkur
eru taldar á því að Birgir Ármanns
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
taki við embætti forseta þings. Sjálf
stæðisflokkurinn muni taka að sér
formennsku í atvinnuveganefnd,
efnahags og viðskiptanefnd, fjár
laganefnd, utan ríkisnefnd og um
hverfis og samgöngunefnd. Við
reisn muni taka að sér formennsku í
annaðhvort allsherjar og mennta
málanefnd eða í velferðarnefnd en
ekki var komin niðurstaða í þeim
efnum. Þá mun stjórnarandstaðan
taka formennsku í þeirri nefndinni
sem Viðreisn tekur ekki og einnig
í stjórnskipunar og eftirlitsnefnd,
svo sem hefð er orðin fyrir.
Gagnrýna landsbyggðarhallann
Naumur meirihluti stjórnarinnar
hefur valdið talsverðum titringi
innan Sjálfstæðisflokksins. Meðal
annars hefur verið á það bent að
þingstörf geti orðið mjög stirð
vegna þessa því stilla þurfi at
kvæðagreiðslur af með þeim hætti
að allir þingmenn stjórnarinnar
geti verið viðstaddir, annars sé
hætt við að mál verði einfaldlega
felld af stjórnarandstöðunni. Þá sé
málefnaágreiningur milli flokk
anna og hver þingmaður
sé í raun oddaatkvæði.
Innan ákveðins
hóps þingmanna
Sjálfstæðisflokks
er einnig órói
vegna þess
hversu mikið
halli á lands
byggðina í rík
isstjórninni.
Þannig koma engir
þingmenn Bjartrar
framtíðar af lands
byggðinni og aðeins tveir
þingmenn Viðreisnar eru lands
byggðarþingmenn. Annar þeirra
er formaðurinn Benedikt sem
þrátt fyrir að vera þingmaður
Norðaustur kjördæmis er búsettur í
Reykjavík. Innan þessa hóps Sjálf
stæðismanna sem nefndur er hér
að framan er ríkisstjórnin upp
nefnd „borgarstjórnin“ og hæðst
að því að með myndun stjórnar
innar hafi loks tekist að ná aftur
meirihlutanum í borginni. n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Að ganga saman Líkur eru
taldar á að ný ríkisstjórn taki
við völdum í dag, þriðjudag, að
óbreyttu. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira