Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Page 10
Vikublað 10.–12. janúar 201710 Fréttir
Þetta hirðir ríkið af áfengi
og tóbaki eftir hækkanir
n 76% af heildsöluverði tóbaksdósar og 82% af verði vodkaflösku eru skattar n Áfengis- og tóbaksgjöld hækkuð um áramótin
S
ú ákvörðun stjórnvalda að
hækka tóbaksgjald á nef
tóbak verulega nú um ára
mótin þýðir að ríkið tekur
nú beint til sín ríflega 76
prósent af hverri sölueiningu í formi
skatta sem ÁTVR selur í heildsölu til
verslana. Verð á hverri 50 gramma
dós af íslenska neftóbakinu er á
mörgum sölustöðum komið yfir þrjú
þúsund krónur.
Þótt gjöld á sígarettur og áfengi
hafi hækkað heldur minna, eða um
4,7 prósent, þá tekur ríkið nú til sín
allt að 82 prósentum af hverri vodka
flösku og 67 prósentum af hverju
kartoni af sígarettum.
DV óskaði eftir sundurliðun á
álagningu áfengis og tóbaks hjá
ÁTVR og sýna þær upplýsingar sem
fengust svart á hvítu hversu stóran
skerf ríkið tekur nú til sín af hverri
vörutegund.
Mikil hækkun á neftóbaki
Rétt tæplega 40 tonn af neftóbaki
seldust í fyrra og hefur aldrei verið
selt annað eins magn en meirihluti
neytenda notar tóbakið í vör. ÁTVR
selur neftóbakið í heildsölu til versl
ana þar sem hver sölueining er 20
stykki af 50 gramma dósum. Sem
dæmi um þær hækkanir sem orðið
hafa á undanförnum árum á einni
slíkri sölueiningu þá kostuðu 20 dósir
í heildsölu hjá ÁTVR 29.243 krónur 1.
janúar 2014. Í fyrra var verðið komið
upp í 29.260 krónur en nú um ára
mótin hækkaði það í 47.052 krón
ur, eða um tæpar 17.800 krónur.
Það þýðir að hver dós sem verslanir
kaupa af ÁTVR kostar 2.352 krónur
en er síðan seld með álagningu versl
ana nú á 3.058 krónur – eins og dæmi
er um. Álagning upp á 706 krónur.
Þetta hirðir ríkið af tóbakinu
Hjá ÁTVR fengust þær upplýsingar
að innkaupsverð á einni sölueiningu
(20 dósum) nemi 5.410 krónum. Við
bætast síðan skattar, þ.e. tóbaksgjald
og virðisaukaskattur, upp á 35.853
krónur og loks nemur heildsölu
álagning ÁTVR 5.787 krónur. Hér
nema skattar 76,2% af heildarverði
sölueiningarinnar.
Þetta hirðir ríkið af áfenginu
Lítum nú á verðlagningu áfengis.
Tökum sem dæmi 700 ml. vodka
flösku, 37,5% að styrk, og sjáum hvað
býr að baki 5.290 króna verðlagningu
hennar í Vínbúð.
ÁTVR kaupir flöskuna inn á 444
krónur stykkið. Á hana leggjast síðan
skattar, í formi áfengisgjalds, virðis
aukaskatts og skilagjalds, sem nema
4.335 krónum. Álagning ÁTVR nem
ur síðan 510 krónum. Þannig verður
flaska sem kostaði 444 krónur í inn
kaupum að 5.290 króna flösku í Vín
búð. Flaskan sem kostaði 444 krónur
í innkaupum er síðan seld í Vínbúð
um á 5.290 krónur. Þarna nema
skattar 81,95% af heildarverði flösk
unnar.
Bjórinn er ekki undanskilinn
þessu þótt álagningin sé heldur
lægri. Tökum sem dæmi 500 ml.
bjórdós, 5% að styrk, sem kostar 369
krónur í Vínbúð. ÁTVR kaupir hana
inn á 106 krónur. Við bætast áður
nefnd gjöld og skattur upp á rúmar
211 krónur og álagning ÁTVR
nemur rúmum 50 krónum. Þarna
nema skattar 57,34% af heildar
verði bjórdósarinnar. Hlutfallið er
55,91% af 750 ml. flösku af rauðvíni
sem kostar 1.999 krónur í Vínbúð og
annað eins af 9.000 króna koníaks
flösku. n
Bjór
369 kr.
13,74%
50,78 kr.
Álagning ÁTVR
28,92%
Innkaupsverð
106,86 kr.
57,34%
Skattar
211,86 kr.
VSK og
áfengis- og
skilagjald
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Vodki Rauðvín
8,39%
510,66 kr.
Álagning ÁTVR
9,65%
444,10 kr.
Innkaupsverð
81,95%
Skattar
4.335,73 kr.
VSK og
áfengis- og
skilagjald
13,74%
274,68 kr.
Álagning ÁTVR
30,35%
606,56 kr.
Innkaupsverð
55,91%
Skattar
1.117,52 kr.
VSK og
áfengis- og
skilagjald
5.290 kr. 1.999 kr.