Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 15
Vikublað 10.–12. janúar 2017 Fréttir Erlent 15 eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Fréttir Erlent 15 Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Cocoa Mint sólgleraugu kr. 12.900,- Sjáðu muninn? valið 58 fjölskyldur og þó að fyrsta markmiðinu sé nú náð ætlar hann ekki að láta staðar numið. Hann ætlar að fá fleiri fjölskyldur, 50 í senn, til Kanada í gegnum stuðn- ingskerfi sitt. Áður en næstu 50 fjölskyldur koma vill Estill að þær fjölskyldur sem þegar eru komnar séu búnar að aðlagast samfé- laginu. Þegar þetta er skrifað eru 47 fjölskyldur búnar að koma sér fyrir í Guelph og 11 til viðbótar eru væntan legar á næstu mánuðum. Óhætt er að segja að áætlun Estill hafi fallið í góðan jarðveg meðal íbúa Guelph og hafa 800 íbúar nú þegar skráð sig á lista yfir sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að veita fjölskyldunum stuðning. Þessi stuðningur getur verið af ýmsum toga; allt frá því að sýna fjölskyld- um helstu stofnanir borgarinnar og hvar verslanir er að finna til þess að finna húsnæði og atvinnu. Einn laugardag fyrir skemmstu gekk Estill til dæmis á milli húsa og bauð íbúum að láta moka snævi þökt bílastæði gegn vægu gjaldi. Íbúar tóku þessu tilboði með opn- um huga og mættu nýju þegnarnir í kjölfarið með skóflur og fengu laun fyrir. „Trúi þessu ekki ennþá“ Þó að margir hafi lagt hönd á plóg- inn hefur Estill verið aðalmaðurinn í þessu öllu saman. Hann hefur varið nánast hverju einasta kvöldi í að heimsækja þá íbúa sem þegar eru búnir að koma sér fyrir eða tekið á móti nýju þegnunum á heimili sínu til að veita þeim félagsskap. Nú þegar er búið að byggja fjölbýlishús þar sem íbúðir eru leigðar flótta- mönnum og þá stendur vinna yfir við að breyta skrifstofubyggingu í borginni í leiguhúsnæði. Þar sem Estill er stjórnarformaður Danby hefur hann komið upp sérstakri deild innan fyrirtækisins þar sem einungis flóttamenn eru í vinnu. Estill hjálpar einnig flóttamenn sem eru með aðrar áætlanir. Til að mynda aðstoðaði hann fyrrverandi bílasala frá borginni Damaskus í Sýrlandi við að opna dollaraverslun í verslunarmiðstöð í borginni. Estill hjálpaði honum að fjármagna versl- unina og sér maðurinn, Youssef, um daglegan rekstur. „Ég trúi þessu ekki ennþá,“ segir Youssef sem flúði frá Sýrlandi þegar stríðið braust út. Þaðan fór hann til Kaíró í Egyptalandi. Í við- talinu kveðst hann lengi hafa reynt að safna kjarki til að smygla sér til Evrópu í leit að betra lífi. Hann heyrði af áætlun Estill í gegnum frænda sinn í Kanada og af rælni ákvað hann að sækja um, vitandi að líkurnar á að hann fengi samþykki væru ekki ýkja miklar. „Ég fór beint á Google og reyndi að komast að því hver hann væri, þessi maður sem væri tilbúinn að borga 130 milljónir úr eigin vasa til handa fólki sem hann hefur aldrei hitt,“ segir Youssef sem segist eiga Estill ótrúlegt margt að þakka. Þó að tiltölulega skammt sé liðið síðan áætlunin fór af stað er um helmingur flóttamannanna kominn með vinnu. Þeir greiða sjálfir fyrir leiguhúsnæði sitt. Sjálfur segir Estill að launin fyrir vinnuna séu ánægjan við að sjá flóttamennina koma sér fyrir í Kanada og hefja nýtt líf, ef svo má segja. „Það er ekkert eins ánægju- legt og það,“ segir hann og bætir við að kveikjan að þessar áætlun hafi verið einföld: „Ég vildi ekki verða gamall og hugsa þá með mér að ég hefði staðið á hliðarlínunni og fylgst með. Þannig að ég ákvað að gera það sem ég gat.“ n „Ég vildi ekki verða gamall og hugsa þá með mér að ég hefði staðið á hliðar- línunni og fylgst með. Velkomin Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sést hér bjóða flóttamenn velkomna til Kanada. Stuðningskerfi fyrir flóttamenn var komið á í Kanada eftir Víetnamstríðið og síðan þá hafa 275 þúsund flóttamenn komið til landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.