Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Qupperneq 18
Vikublað 10.–12. janúar 2017 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 18 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Hvernig líður Bjarna í dag? Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra hefur síðustu daga legið undir ámæli fyrir að hafa farið rangt með í fjölmiðlum þegar hann sagði skýrslu um umfang eigna Íslendinga í skattaskjólum hafa borist fjármálaráðuneytinu eftir þingslit á síðasta ári. Til- fellið er hins vegar að skýrslan barst ráðuneytinu 13. september en þingi var slitið 13. október. Bjarni baðst síðan afsökunar á því að hafa farið rangt með. „Í huga mínum í gær þá hugs- aði ég með mér, ja mér leið eins og þingið hefði bara verið farið heim,“ sagði Bjarni Benedikts- son í kvöldfréttum Ríkisútvarps- ins síðastliðinn sunnudag. Þetta vekur hins vegar upp spurn- ingar hvort það sé fleira sem farist hefur fyrir hjá Bjarna með sama hætti. Leið honum kannski bara eins og staða ríkissjóðs væri betri en raun bar vitni fyrir kosn- ingar? Í það minnsta leið Bjarna eins og aflandsfélag hans Falson & Co væri skráð í Lúxemborg en ekki á Seychelles-eyjum. Hvern- ig skyldi Bjarna líða í dag? Hrakfallabálkur allt mitt líf Grétar Sigurðsson stefnir á slysalaust ár. – DV Ný námskeið Hringsjá Náms- og starfsendurhæfing Er ekki kominn tími til að gera eitthvað Námskeið í janúar og febrúar 2017 • Tölvur hefst 17. janúar • AukiN vEllíðAN hefst 17. janúar • í fókus – að ná fram því besta með ADHD hefst 30. janúar • Úr frEsTuN í frAmkvæmd 6. febrúar • EiNkENNi og AflEiðiNgAr mEðvirkNi hefst 13. febrúar • BókfærslA og TölvuBókHAld hefst 22. febrúar • sTyrklEikAr og NÚviTuNd hefst 22. febrúar Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is Þessi hlýja og sam- hugur er ótrúlegur Andrea, eigandi tíkurinnar Tinnu, nýtur liðsinnis margra við leitina. – DV Mikil þrauta- ganga Lilja Bára leitar að lækningu fyrir dóttur sína. – dv.is F jöldatúrisminn hér á landi er sannarlega að mörgu leyti hið besta mál. Gjaldeyrir streymir inn í landið og fjöldi atvinnu- tækifæra skapast innan ferðaþjón- ustunnar. Hótel eru reist um borg og bý, gistiheimili spretta upp eins og gorkúlur og íbúðir eru leigðar út, of oft á okurverði. Það eru svo margir sem þrá að græða. Hættan er sú að menn fari of geyst í von sinni um skjótfenginn gróða. Ef ferðamenn verða varir við að verið sér að okra á þeim þá hafa þeir lítinn áhuga á að koma aftur. Það er ekki rétt að klárinn leiti þangað sem hann er kvaldastur. Yfirleitt reynir hann að forða sér sem fyrst. Ferðamenn þjóta í hópum út í hina rómuðu íslensku náttúru sem lætur á sjá vegna mikils átroðnings. Þar er sannarlega ástæða til að bregðast við. Ekkert ætti að vera athugavert við það að ferðamenn borgi gjald fyrir að heimsækja vinsæla staði svo lengi sem tekjurnar eru not- aðar til uppbyggingar á viðkom- andi svæðum. Þetta hefur til dæmis verið gert með miklum ágætum við Kerið, þar sem aðstæður eru til sóma og drulla og sóðaskapur víðs fjarri. Og ekki kvarta erlendir ferða- menn undan því að þurfa að greiða smágjald fyrir að sjá náttúruperlu. Íslendingar eru mun líklegri til að vera viðkvæmir fyrir slíkri gjald- töku. Vissulega er aldagömul hefð fyrir því að Íslendingar hafi frjálst aðgengi að náttúruperlum lands síns en nú eru aðstæður á allt ann- an veg en áður. Íslensk náttúra er ekki lengur ósnortin því þangað arka hópar ferðamanna dag hvern og troða á henni. Við þessu þarf að bregðast og gjaldtaka sem notuð er til uppbyggingar er þarna hluti af lausn. Land sem verður fyrir átroðningi er byggt upp en ekki látið skemmast til frambúðar. Þetta er ekki lausn sem byggir á græðgi heldur miklu fremur skynsemi. Þegar kemur að fjöldatúrisma fögnuðum við gróðanum en göngumst ekki nægilega við ábyrgðinni. Undanfarna daga hefur orðið mikil umræða um ferða- þjónustuna eftir að leitað var að erlendum hjónum á Langjökli en þau höfðu farið í skipulagða vél- sleðaferð á vegum ferðaþjónustu- fyrirtækis en urðu viðskila við hóp- inn. Hjónin sögðu sögu sína en þau höfðu allt eins átt von á því að verða úti í illviðri. Ákveðið var að fara með hóp erlendra ferðamanna í þessa ferð þrátt fyrir illviðrisspá. Ljóst er að það voru mistök. Slík mistök eru örugglega ekki eins- dæmi innan ferðaþjónustunnar. Þar mega gróðasjónarmið ekki taka öll völd. Ef það gerist reynist það okkur dýrkeypt. Ferðaþjónusta sem byggir á græðgi er ein versta landkynning sem hægt er að hugsa sér. Við megum ekki lenda á þeim stað. n Myndin Samstöðufundur Sjómenn í verkfalli komu saman á samstöðufund við húsakynni ríkissáttasemjara á mánudagseftirmiðdag. Fyrir innan stóð yfir samningafundur milli sjómana og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Sjómenn segjast ekki munu una því að sett verði lög á verkfallið. mynd SiGtryGGur Ari Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Gróða fagnað – ábyrgð hafnað „Land sem verður fyrir átroðningi er byggt upp en ekki látið skemmast til frambúðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.