Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Page 24
Vikublað 10.–12. janúar 201720 Lífsstíll
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
E
instaklingar sem búa nálægt
fjölförnum umferðaræð-
um eiga frekar á hættu en
aðrir að þjást af elliglöpum
þegar á efri ár er komið. Þetta
leiða niðurstöður umfangsmikill-
ar rannsóknar kanadískra vísinda-
manna í ljós, en rannsóknin náði til
6,5 milljóna einstaklinga á aldrinum
20 til 85 ára í Ontario, fjölmennasta
fylki Kanada. Rannsóknin var fram-
kvæmd á árunum 2001 til 2015.
Skýrar niðurstöður
Af þeim 6,5 milljónum einstaklinga
sem rannsóknin náði til þjáðust
243.611 einstaklingar af elliglöpum,
til dæmis Alzheimers, á einhverj-
um tímapunkti meðan rannsóknin
stóð yfir, 31.577 þjáðust af Parkin-
sons-sjúkdómnum og 9.247 þjáðust
af MS-sjúkdómnum á einhverjum
tímapunkti. Vísindamenn skoðuðu
því næst hvort búseta þessara
einstaklinga hefði áhrif á niðurstöð-
urnar. Sú skoðun leiddi í ljós að þeir
sem bjuggu nálægt fjölförnum um-
ferðaræðum áttu frekar á hættu en
aðrir að þjást af elliglöpum, en sam-
kvæmt niðurstöðunum hafði búseta
engin áhrif á hina tvo sjúkdómanna.
Þörf á frekari rannsóknum
Niðurstöðurnar voru birtar í hinu
virta læknariti The Lancet á dögun-
um og segja aðstandendur rann-
sóknarinnar að þótt niðurstöðurnar
gefi ýmislegt til kynna sé þörf á frek-
ari rannsóknum. Samkvæmt niður-
stöðunum var þeim sem bjuggu í
innan við 50 metra fjarlægð frá fjöl-
förnum umferðargötum hættara við
en öðrum að þjást af elliglöpum. Ekki
liggur fyrir hvað það er í umhverfinu
sem hefur þessi áhrif, hvort ástæð-
an sé hávaði eða útblástur þótt færa
megi rök fyrir því að hið síðarnefnda
eigi frekar við. Mengun vegna út-
blásturs bíla og annarra farartækja
er vaxandi vandamál í mörgum stór-
borgum heimsins.
Tengsl við aðra sjúkdóma
„Rannsókn okkar er sú fyrsta í
Kanada sem gefur til kynna að
mengun vegna umferðar tengist
hættunni á að þróa með sér elli-
glöp. Við búum yfir þeirri þekkingu
úr fyrri rannsóknum að hættuleg
útblástursefni eiga greiða leið inn
í mannslíkamann,“ segir dr. Ray
Copes einn þeirra sem stóðu fyrir
rannsókninni í samtali við Medical
Daily. Þannig hafi rannsóknir bent
til þess að tengsl séu á milli meng-
unar og sjúkdóma eins og sykursýki
auk hjartatengdra sjúkdóma. „Það
sem þessi rannsókn gefur til kynna
er að hættuleg efni berast með blóð-
inu upp í heila þar sem þau geta
valdið sjúkdómum í taugakerfi.“
Gætu gagnast við skipulag
Copes segir að niðurstöðurnar gætu
gagnast yfirvöldum borga um allan
heim þegar kemur að skipulagi
byggðar og nálægð hennar við fjöl-
farnar umferðaræðar. Þannig geti
borgaryfirvöld tekið með í reikn-
inginn að það byggð sé í öruggri
fjarlægð frá mengandi umferð. Það
voru vísindamenn við University of
Toronto, Carleton University, Dal-
housie University, Oregon State
University og heilbrigðisyfirvalda í
Kanada sem stóðu fyrir rannsókn-
inni. n
einar@dv.is
Íbúar við fjölfarnar
götur eru líklegri
til að fá elliglöp
n Athyglisverðar niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar
Niðurstöður
n Skoðuð var sjúkdómssaga 6,5 milljóna íbúa
Ontario á aldrinum 20 til 85 ára. Skoðuð var
búseta þessara einstaklinga fimm ár aftur í
tímann áður en rannsóknin hófst.
n Á árunum 2001 til 2012 þjáðust 243.611 af
elliglöpum, 31.577 af Parkinsons og 9.247 af MS
á einhverjum tímapunkti rannsóknarinnar.
n Einstaklingar sem bjuggu í innan við 50
metra fjarlægð frá fjölförnum umferðaræð-
um voru sjö prósentum líklegri til að þjást af
elliglöpum en þeir sem bjuggu í 300 metra fjar-
lægð eða meira frá fjölförnum umferðaræðum.
n Líkurnar stiglækkuðu eftir því sem fólk bjó
lengra frá; engin tengsl voru milli elliglapa og
þeirra sem bjuggu í 200 metra fjarlægð eða
meira frá fjölförnum umferðaræðum.
Umferð Niðurstöður
rannsóknarinnar sýndu að
tengsl eru á milli elliglapa
og nálægðar búsetu við
fjölfarnar umferðargötur.