Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Síða 27
Vikublað 10.–12. janúar 2017 Sport 23
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Gervigras og
sparkvellir
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vegasölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjólagrindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is
Inni- og
útilýsing
Sími: 565 8911 & 867 8911 - www.ledljos.com - ludviksson@ludviksson.com
Led sparar
80-92% orku
Ledljós
Ludviksson ehf
Selfyssingar
sem lofa góðu
Tveir framtíðarmenn í landsliðinu sýndu góða takta í Danmörku
Tveir ungir leikmenn eru líklegir til að leika stór hlutverk á HM í
handbolta og vera áberandi í sóknarleik liðsins. Þar er um að
ræða tvo Selfyssinga, hinn 22 ára Janus Daða Smárason
og 19 ára Ómar Inga Magnússon.
Janus Daði spilaði sérstaklega vel í Danmörku og skor-
aði 11 mörk í þremur leikjum, auk þess að leggja mikið
upp fyrir félaga sína. Ómar Ingi átti líka góða spretti og
var öruggur á vítalínunni.
DV fékk Gunnar Magnússon, þjálfara Hauka, til að
segja frá þessum tveimur leikmönnum.
Janus Daði Smárason er frá Selfossi. Hann er 22 ára gamall
og spilaði með unglingaliði Århus í tvö ár þar til hann samdi
við Hauka 2014. Hann var frábær fyrir Hauka í fyrravetur.
Í úrslitaeinvíginu á móti Aftureldingu dró hann á löngum
köflum vagninn með stórkostlegum leik. Gunnar segir
að styrkleiki hans felist í því hvað hann er óhræddur
við þau verkefni sem fyrir hann eru lögð. „Ég hef ekki
áhyggjur af stressi hjá honum. Hann er mjög fljótur að
aðlagast nýju hlutverki. Ég held að hann sé tilbúinn að
fara inn á stóra sviðið og muni vaxa í því hlutverki.“ Hann á
þó ekki von á því að hann muni bera íslenska landsliðið uppi
á sínu fyrsta stórmóti. „Hann hefur góð vopn sóknarlega og góð
undirhandarskot. Hann skapar mikið fyrir aðra og er með góð gegnumbrot.“ Gunnar
segir það helsta veikleika hans að hann eigi það til að fara fram úr sér. Hann sé bestur
þegar á reyni en eigi það stundum til að reyna of erfiða hluti.
Janus skrifaði nýverið undir samning við Álaborg, sem Aron Kristjánsson stýrir. Þar
leika líka Stefán Rafn Sigurmannsson og Arnór Atlason. „Honum bauðst í sumar að fara
til liða sem eru ekki eins sterk og Álaborg. Við ákváðum í sameiningu að koma honum í
betra lið. Það er frábært fyrir okkur að geta komið honum í toppklúbb í Skandinavíu.“
Ómar Ingi Magnússon er frá Selfossi en gekk 17 ára til liðs við Valsmenn. Hann hefur
undanfarið verið einhver efnilegasta skytta landslins. Hann skrifaði í vor undir þriggja
ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Århus, 19 ára gamall.
Gunnar segir að góður leikskilningur sé einn af hans bestu kostum. „Hann er svo góður
í að velja, sem er svipaður styrkleiki og Ólafur Stefánsson hafði.“ Hann segir að Ómar sé
mjög sterkur að fara einn gegn einum í sókninni. „En fyrst og fremst skilur hann leikinn
vel og er mjög góður spilari. Það má eiginlega segja um þessa leikmenn báða að það sé
veikleiki að þeir séu ekki tíu sentimetrum hærri. Þeir eru ekki alveg nógu hávaxnir.“ Hann
segir að Ómar geti ýmist leikið sem skytta, hornamaður og leikstjórnandi. „Hann hefur
verið að vaxa í vetur í Danmörku og mun örugglega gera það áfram. Hjá Århus leikur líka
línumaðurinn Róbert Gunnarsson, sem lagt hefur landsliðsskóna á hilluna margfrægu.
mætt Noregi, Rússlandi eða Jap-
an. „Ég er bjartsýnn á þessa keppni,
það verður spennandi að sjá þessa
nýju stráka.“ Hann hefur þó hóflegar
væntingar. „Ég held að stærsti sigur-
inn á þessu móti verði sá að eignast
nýja landsliðsmenn og fjárfesta vel í
framtíðinni.“ Ekki sé hægt að ganga
að árangri á mótinu sjálfu vísum. Þar
geti brugðið til beggja vona.
Ungir með góðan leikskilning
Hann vonast til að Aron Pálmarsson
verði með og hann hlakkar til að sjá
þá Janus og Ómar vinna saman. Allir
séu þeir leikmenn sem búi yfir miklum
leikskilningi. Hafa beri þó í huga að
Janus og Ómar muni ekki ekki draga
vagninn á þessu móti, gegn stóru
þjóðunum. Of mikið væri að ætlast til
þess. Þessum leikmönnum til fulltingis
eru svo reynslumiklir menn á borð við
Arnór Atlason, Rúnar Kárason, Ásgeir
Örn Hallgrímsson og Ólaf Guðmunds-
son, sem hefur farið áður á stórmót.
Gunnar segir viðbúið, miðað við
breytingarnar sem orðið hafa á liðinu,
að leikur liðsins verði kaflaskiptur í
Frakklandi. Við því sé ekkert að gera.
Það taki tíma að slípa saman nýtt lið. n
Sterkur Framari
Annar nýr og spennandi leikmaður lét
til sín taka í a-landsliðinu í Danmörku
og gæti leikið hlutverk á HM í Frakk-
landi. Þar fer línumaðurinn og Fram-
arinn Arnar Freyr Arnarsson. Hann er
afar sterkur varnarmaður
og getur att kappi við
hvaða línumann sem
er. Arnar Freyr er tveir
metrar á hæð, 110 kíló
og leikur með IFK
Kristianstad í Svíþjóð
ásamt Gunnari
Steini
Jónssyni og
Ólafi Guð-
munds-
syni.
Hann er
21 árs
gamall.
„Ég held að stærsti
sigurinn á þessu
móti verði sá að eignast
nýja landsliðsmenn og
fjárfesta vel í framtíðinni.