Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Qupperneq 31
Vikublað 10.–12. janúar 2017 Menning Útópíur 27 rótatímum hvað varðar heimsmynd, þetta er á tímum landafunda. All- ur heimurinn er að breytast, bæði landakortið og hvernig Evrópu- menn hugsa um sjálfa sig, og stöðu sína gagnvart öðrum. Það vakna upp spurningar um hlutverk Evrópu gagnvart heiminum: „Erum við siðuð, eða eru það hinir sem eru sið- aðir?“ Hann nýtir sér þannig líka hefð ferðabókmennta, sem voru mjög vin- sæl bókmenntagrein í Evrópu frá þessum tíma og allt fram á 19. og 20. öld, þar sem menntamenn ferðast um heiminn og skrifa eþnógrafískar lýsingar á fjarlægum þjóðum. Eins og hefur verið bent á fjalla slíkar lýsingar yfir leitt minna um þetta fólk og meira um þann sem er að skrifa. Þarna eru menn að spegla sig í öðrum og yfir- leitt felst í því einhver krítík á eigið samfélag.“ Skylda menntamannsins Þó að flestir tengi Útópíu við hið ímyndaða fyrirmyndarríki er hún einnig innlegg í umræður sem höfðu verið gegnumgangandi í hugmynda- sögu Vesturlanda – að minnsta kosti frá dauðadómi Sókratesar – um stöðu og skyldur menntamannsins, að hversu miklu leyti hann eigi að taka þátt og beita sér í stjórnmálum. „Sú hugmynd hafði verið við- varandi í stjórnspeki miðalda að ríkisvaldið væri í raun afleiðing af syndum mannsins. Maðurinn væri syndug vera og stjórnskipan væri ill nauðsyn. Það þyrfti harða hönd til að tyfta lýðinn og halda uppi aga og refsingum, og maðurinn væri í raun og veru ófær um að búa sér gott sam- félag. En svo gerist það á síðmiðöld- um að menn fara að hafa aðrar hug- myndir um eðli mannsins, telja að hann geti verið skynsamur og rök- samur, geti skapað sjálfum sér sam- félag sem sé honum til bóta – menn geti betrað sjálfa sig. Þess vegna köll- um við þetta húmanisma, að maður- inn eigi að vera í öndvegi á jákvæð- an hátt. Húmanistar eins og Thomas More stíga fram boða þá hugmynd að hinir sönnu stjórnspekingar eigi að taka þátt í stjórnmálum og móta samfélagið, hrinda óréttlæti og svo framvegis. „Þetta eru menn eins og sögumað- urinn Rafael Hyþlódíus, sem er mik- ill spekingur og sér siðfræðina alla rétta. Thomas segir að hann ætti að taka þátt í stjórnmálum en Rafael er ósammála, segir það vera allt annan vettvang, bara græðgi og eiginhags- munagæslu, algjör sjálfseyðing fyrir heimspekinginn. En Thomas boðar að það sé borgaraleg skylda mennta- manna og þeirra sem hafa fræðin á takteinum að sinna samfélaginu og móta það. Það er ekki bara eitthvað sem þeir ættu að eiga kost á, heldur beinlínis siðferðisleg skylda. Útópía er framlag í þessa umræðu sem er gegnumgangandi í evrópskri hug- myndasögu allt frá Plató: eiga fræðin og háskólarnir að vera til fyrir sjálf sig í einhverjum fílabeinsturni, eða eru fræðin fyrst og fremst til fyrir sam- félagið og almannaheill. Thomas er augljóslega á hinu síðara.“ n Vægðarlaus gagnrýni í skjóli staðleysu n Útópía er komin út í íslenskri þýðingu á 500 ára afmæli bókarinnar n Viðar Pálsson sagnfræðingur ræðir um fyrirmyndarsamfélag Thomas More „Hann skrifaði líka mikið í tengslum við guðfræðilegar deilur sínar við „apann“, „svínið“ og „fyllibyttuna“ Martein Lúther. Útópía Landakort af fyrirmyndarsamfélaginu sem birtist í einni af fyrstu útgáfum bókarinnar. Merkilegt rit Viðar Pálsson sagnfræðing- ur segir Útópíu hafa verið stórt framlag til húmanismans sem mennta- og menn- ingarhreyfingar á 16. öld. Mynd Sigtryggur Ari Þú færð fallega borð- búnaðinn og fullt af fíneríi frá greengate hjá okkur Austurvegi 21, Selfoss / Sími 482 3211 facebook.com/sjafnarblom Höfðabakka 3, Reykjavík / Sími 587 2222 facebook.com/litlagardbudin Hreinsun á kjólum 1.600 kr. Opið Virka daga 08:30-18:00 laugardaga 11:00-13:00 Hringbraut 119 - Einnig móttaka á 3.hæð í Kringlunni hjá Listasaum - Sími: 562 7740 - Erum á Facebook

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.