Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Side 38
Vikublað 10.–12. janúar 201734 Fólk
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Okkar kjarnastarfssemi er
greiðslumiðlun og innheimta.
Hver er þín?
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Síðan 2006
G
leði í bland við eftirvæntingu
var einkennandi í Þjóðleik-
húsinu á föstudagskvöld
þegar leikritið Gott fólk var
frumsýnt í Kassanum.
Leikritið er byggt á samnefndri
skáldsögu Vals Grettissonar sem
hlaut góða dóma þegar hún kom út
á síðasta ári. Leikgerð var í höndum
þeirra Vals og Símonar Birgissonar
í samvinnu við Unu Þorleifsdóttur
sem leikstýrir.
Gott fólk segir frá Sölva og Söru
sem kynnast við ofbeldisfullar að-
stæður. Þau eiga í stuttu en ástríðu-
fullu ástarsambandi. Nokkru síð-
ar fær Sölvi bréf þar sem Sara sakar
hann um að hafa beitt hana kyn-
ferðisofbeldi. Sölvi þarf að játa á sig
brot sem hann er þó ekki viss um að
hafa framið. Í kjölfarið fer af stað at-
burðarás þar sem engum sem hlut á
að máli er hlíft, og lífi Sölva og Söru
er umturnað, eins og segir í lýsingu á
verkinu á vef Þjóðleikhússins. n
Gott fólk í Þjóðleikhúsinu
Leikritið, sem er byggt á samnefndri skáldsögu
Vals Grettissonar, var frumsýnt á föstudagskvöld
Góð saman Verkið er byggt
á samnefndri skáldsögu Vals
Grettis sonar sem er hér með
kærustu sinni, blaðakonunni og
rithöfundinum Hönnu Ólafsdóttur.
Reynslubankinn
Ari Matthíasson (til
hægri) þjóðleik-
hússtjóri lét sig að
sjálfsögðu ekki vanta
á frumsýninguna. Hér
sést hann með hjón-
unum Páli Baldvini
Baldvinssyni og
Katrínu L. Ingvadóttur.
Trúlofuð og fín
Blaðakonan Marta
María Jónasdóttir
og Páll Winkel
fangelsismálastjóri
létu sig ekki vanta
á frumsýninguna.
Flott
hjón Lilja
Pálmadóttir
og Baltasar
Kormákur
eru líklega
ein flottustu
hjón landsins.
Þau mættu
á sýninguna
á föstudags-
kvöld.
Fyrrverandi þjóðleikhússtjórar ásamt mökum Sveinn Einarsson og Þóra Kristjáns-
dóttir og Stefán Baldursson og Þórunn Sigurðardóttir.
Félagar Símon
Birgisson og Valur
Grettisson eru góðir
félagar enda störfuðu
þeir lengi saman í
fjölmiðlum. Símon
er í dag handrits- og
sýningardramatúrg í
Þjóðleikhúsinu og kom
hann að leikgerðinni.