Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 2
2 Helgarblað 2. júní 2017fréttir Theodóra er enn í laun- uðum nefndarstörfum n Sagðist ætla að draga sig úr þeim n Mánaðarlaun upp á um 2,4 milljónir á mánuði A lþingiskonan Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þing­ maður Suðvesturkjör­ dæmis, situr enn í öllum ráðum og nefndum Kópa­ vogsbæjar þrátt fyrir að hafa sagt opinberlega í janúarlok að hún hygðist draga sig úr nefndarstörf­ um og segja sig úr stjórnum í ljósi setu sinnar á Alþingi. Síðan þessi orð féllu hefur Theodóra þegið um 2,4 milljónir í laun í heildina fyrir nefndarstörfin sem hún ætlaði að segja sig frá. „Ég mun klárlega draga mig úr nefndarstörfum“ Þann 31. janúar síðastliðinn birti DV úttekt á kjörum tveggja al­ þingiskvenna. Brynhildi S. Péturs­ dóttur og Theodóru S. Þorsteins­ dóttur, sem eiga það sameiginlegt að sitja báðar í bæjarstjórnum sinna sveitarfélaga auk þess að sitja á þingi. Brynhildur er bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ en Theodóra í Kópa­ vogi. Í umfjöllun DV kvaðst Bryn­ hildur ekki hafa í hyggju að segja sig frá trúnaðarstörfum fyrir Mosfells­ bæ en öðru máli gegndi um Theo­ dóru. „Ég mun klárlega draga mig úr nefndarstörfum og segja mig úr stjórnum. Við erum að fara yfir þau mál hér í Kópavogi. Ég vil samt sem áður klára kjörtímabilið sem fulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs, enda var ég kjörin til fjögurra ára,“ sagði Theo­ dóra í skriflegu svari til DV af því til­ efni. Launahærri en forsætisráðherra Við þinglok, fjórum mánuðum síðar, hefur lítið orðið um efndir hjá Theo­ dóru. Auk þess að eiga sæti í bæjar­ stjórn Kópavogs þá er hún enn for­ maður bæjarráðs sem og formaður skipulagsráðs. Þá situr hún enn í al­ mannavarnarnefnd og hafnarnefnd en launin í þessum nefndum eru óveruleg. Í heildina eru mánaðar­ laun Theodóru 2.188.994 krónur nú um stundir en ættu að vera 1.583.373 krónur ef hún sæti að­ eins á Alþingi og í bæjar stjórn. Mis­ munurinn er rúmlega 600 þúsund krónur á mánuði. Þá má ekki gleyma því að Theo­ dóra sat í stjórn Isavia ohf. fram að aðalfundi félagsins þann 31. mars síðastliðinn. Hún sóttist ekki eftir endurkjöri þar en mánaðarlaun hennar voru 160 þúsund krónur á mánuði fyrir stjórnar setuna. Heildarlaun hennar hinn 1. apríl 2017 voru því 2.348.994 krónur. Þess má geta að mánaðarlaun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra eru 2.021.825 krónur. Tekur Kópavog fram yfir þjóðina Það er ekki heiglum hent að sitja á Alþingi, í bæjarstjórn hjá stóru sveitarfélagi og fjölmörgum ráðum og nefndum fyrir ríki og bæ. Fyrir utan þá umfangsmiklu vinnu sem felst í því að setja sig inn í gríðar­ legan fjölda mála á báðum víg­ stöðvum þá þarf Theodóra að sinna mikilli vinnu sem þingflokksfor­ maður Bjartrar framtíðar. Síðan eru það fundirnir en þeir eru fjölmargir á dagskrá Theodóru í hverri viku. Blaðamaður renndi yfir fundar­ gerðir og tímasetningar þeirra funda sem alþingiskonan þarf að mæta á og þar á talsverð skörun sér stað. Meginniðurstaðan er þó sú að Theodóra virðist taka Kópavog fram yfir þjóðina. Í febrúar átti Theodóra í tals­ verðum vandræðum þar sem fund­ ir bæjarráðs á fimmtudagsmorgn­ um kl. 8.15 rákust iðulega á fundi atvinnuveganefndar Alþingis sem eru stundum á þriðjudögum en yf­ irleitt flesta fimmtudagsmorgna kl. 8.30. Afleiðingin var sú að Theodóru tókst bara að mæta á einn þriðju­ dagsfund í mánuðinum en skrópaði á þremur fimmtudagsfundum. Hún gerði þó sitt allra besta til þess að mæta á fund nefndarinnar fimmtu­ daginn 2. febrúar en þá brunaði hún úr Kópavogi eftir stuttan bæjarráðs­ fund og mætti til leiks kl. 9.20. Fundi var slitið kl.09.35. Svo heppilega vildi hins vegar til að í byrjun mars var fundartími bæjarráðs Kópa­ vogs á fimmtudögum færður til kl. 7.30 á morgnana. Afleiðingin varð sú að mæting Theodóru á fundi at­ vinnuveganefndar Alþingis stór­ batnaði en ekki voru allir sáttir við breytinguna. Ætluðu að hefja fundi kl. 7.00 Í fundargerð bæjarráðs frá 23. mars 2017 kemur fram bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar, bæjar ráðsmanns VGF, og í henni segir: „Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarráðsmaður VGF, getur ekki mætt á þennan fund bæjar ráðs þar sem föstum fundartíma hefur verið breytt á miðju starfsári ráðsins. Bæjarfull­ trúar gegna margvíslegum störfum og hafa margvíslegum skyldum að gegna sem í mörgum tilfell­ um eru skipulögð marga mánuði fram í tímann. Breytingar sem gerðar eru með þessum hætti án samþykkis allra fulltrúa eru afar óheppilegar. Enginn haldbær rök­ stuðningur hefur komið fram sem réttlætir breytingar á þessum tíma­ punkti. Velta má fyrir sér tilgangi breytinga sem þessara þ.s. þær geta útilokað rétt kjörinna fulltrúa frá að­ komu að málum.“ Bæjarstjórinn Ármann Kr. Ólafs­ son greip til varna og undraðist gagnrýnina. Kom fram að upphaf­ lega hafi átt að færa fundartímann fram til klukkan sjö um morgun­ inn en því hafi Ólafur Þór tekið illa. Seinkun um hálftíma hafi því verið málamiðlun sem Ármann hefði talið sátt ríkja um. Tók bæjarstjórinn það fram að hann fagnaði breytingunni enda nýttist hefðbundinn vinnutími hans í annasömu starfi betur. Þessi orðaskipti Ármanns og Ólafs Þórs urðu til þess að bæjarráðsfundurinn dróst á langinn og Theodóra missti af fundi atvinnuveganefndar þann daginn. Stanslausir árekstrar Svipuð vandamál hafa herjað á Theodóru varðandi hefðbundna þingfundi Alþingis og fundi skipulagsráðs Kópavogsbæjar. Alls hafa verið haldnir níu fundir það sem af er ári og er mæting Theo­ dóru afar góð. Hún hefur mætt stundvíslega á átta fundi ráðsins en missti af síðasta fundi, þann 29. maí síðastliðinn. Það er mjög skilj­ anlegt enda gífurlegt annríki á Al­ þingi vegna þingloka. Þá hafa þing­ fundir Alþingis einnig skarast við bæjarstjórnarfundi í Kópavogi. Alls hefur Theodóra misst af átta þing­ fundum Alþingis, að hluta til eða í heild sinni, vegna starfa sinna fyrir Kópavogsbæ frá 1. febrúar á þessu ári. Þingfundir hafa verið 56 talsins á þessu tímbili. Ekki náðist í Theo­ dóru við vinnslu fréttarinnar. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Theodóra S. Þorsteinsdóttir Alþingiskonan og bæjarfulltrúinn ætlaði að klárlega að draga sig úr launuðum nefndarstörfum í janúar á þessu ári. Af því hefur ekki orðið enn. Mánaðarlaun hennar hafa verið a bilinu 2,2–2,35 milljónir síðan, þar af um 600 þúsund á mánuði fyrir nefndarstörfin. Mynd ALÞingi Laun Theodóru 1. maí 2017: n Þingfararkaup: 1.101.194 n Álag vegna þingflokksformennsku, 15%: 165.179 krónur n Laun bæjarfulltrúa: 317.000 krónur n Formaður bæjarráðs: 432.587 krónur n Formaður skipulagsráðs: 173.034 krónur n Heildarlaun: 2.188.994 krónur *Til 1. apríl 2017 fékk Theodóra 160 þúsund krónur aukalega á mánuði fyrir stjórnarsetu í Isavia ohf. Hún sóttist ekki eftir endurkjöri. Að auki situr Theodóra í almannavarnarnefnd og hafnarnefnd en laun þar eru óveruleg. Alþingi Tímasetningar funda bæjarráðs Kópavogs og Alþingis hafa skarast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.