Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Síða 12
12 Helgarblað 2. júní 2017fréttir Þ að var alvörusvipur og ein- beiting í andlitunum í morgunskímunni. Fólk athugaði búnaðinn, herti ólarnar og beit á jaxlinn, enda langferð framundan. Undir Sandfellsheiðinni í suðvesturjaðri Öræfajökuls funduðu fararstjórarnir með hópnum og lögðu línurnar. Ganga átti á Sandfellið með skíðin á bakinu, síðan á skíðum upp á jökul- inn, yfir öskjuna og til norðausturs, þar sem klífa átti Sveinstind, sem rís í 2044 metra hæð. Þaðan skyldi haldið á Sveinsgnípu með sínum bröttu hlíðum og ægifagra útsýni, áður en hópurinn myndi renna sér niður það sem talin hefur verið landsins lengsta skíðabrekka niður að býlinu Kvískerjum, suðaustan undir jökl- inum. Brekkan mældist hafa verið um tíu kílómetra löng á GPS-tækjum ferðalanga. Nú léttist brúnin á fólki. Haldið var af stað. Þetta var laugar- dagsmorguninn 20. maí síðastliðinn. „Þetta er ferð sem mig hafði dreymt um að fara í mörg ár en það leist ekki öllum jafn vel á hugmyndina,“ segir Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir og annar tveggja leiðangursstjóra ferðarinnar. „Sveinstindur hefur stundum verið kallaður týndi risinn, af því að stóri bróðirinn Hvannadals- hnjúkur fær vanalega alla athyglina.“ Leiðin talin ófær Framan af tuttugustu öld var Kvískerjaleiðin talin ófær, allt til ársins 1936, þegar systkinin á Kvískerjum fóru leiðina sem stund- um hefur verið kölluð læknaleiðin. Það var Sveinn Pálsson læknir sem lýsti leiðinni fyrstur manna eftir að hafa gengið hana þann 11. ágúst árið 1794. Við hann er Sveinstind- ur kenndur en einnig Sveinstindur sunnan Langasjávar. Félag íslenskra fjallalækna, FÍFL, með Tómas innan- borðs, gerði fyrst tilraun til þess að ganga á Sveinstind árið 2012, þegar 250 ár voru liðin frá fæðingu Sveins læknis. Hópurinn varð þó frá að hverfa eftir að snjóflóð féll af hryggn- um. Færið var þungt og ferðin varð löng. Frá henni er nánar greint í 5. tölublaði Læknablaðsins, árið 2014. Meðlimir FÍFL áttu eftir að sigrast á Sveinstindi um Kvískerjaleið í maí 2013. „Við sáum að þetta var að lík- indum lengsta skíðabrekka á öllu landinu,“ ítrekar Tómas. Leiðin reyndist örugg yfirferðar. Vissulega voru sprungur í jöklinum, en engar engar þeirra illfærar með hefð- bundnum varúðarrástöfunum. Dagbók Sveins Við grípum niður í dagbók Sveins Pálssonar: „Við héldum áfram upp eftir suðausturhalla jökulsins, þar sem brattinn var minnstur, fór- um fram hjá nokkrum svörtum þursabergsklettum, sem stóðu upp úr ísnum, og yfir fjöldamargar sprungur, sem sást ekki til botns í. Loftið tók nú, eins og vant er á slík- um stöðum, að verða of þunnt og andardrátturinn alltof léttur. Annar félaga minna varð svo kvíðafullur og syfjaður, að við urðum loks að skilja hann eftir, og féll hann jafnskjótt í svefn og hann fleygði sér niður í snjóinn. Hinn fylgdarmaðurinn, sem að upplagi átti vanda fyrir hjartverk og þunglyndi og auk þess var fullur af kenjum, varð því léttari í lund og kátari, því hærra sem við komum, og fann ekki til neinna óþæginda né þreytu vegna loftsins.“ Fjallaskíðin Hópurinn sem nú fór um jökul- inn var á svonefndum fjallaskíð- um. Nútímatækjum, sem gera fólki kleift að ganga upp fjöll á skíðum með búnaði sem kemur í veg fyrir að þau renni afturábak, og hreyfast nánast eins og gönguskíði. Skíðun- um má svo með nokkrum hand- tökum breyta í svigskíði. Á þessum skíðum er auðvelt að fara yfir snjó sem annars getur verið erfiður fyr- ir göngufólk. „Það hefur orðið algjör sprenging í fjölda þeirra sem iðka fjallaskíði síðustu tvö til þrjú ár. Sjálf- ur eignaðist ég mín fyrstu fjallaskíði þegar ég var átján ára. Þá voru skórn- ir ófullkomnir. Það má segja að stóra byltingin hafi orðið í skónum og bindingunum. Fjallaskíðaskór í dag gefa venjulegum svigskíðaskóm lítið Týndi risinn og landsins lengsta brekka Hópur fjallaskíðafólks fór á Öræfajökul og renndi sér niður landsins lengstu skíðabrekku Sveinsgnípa Hópurinn þokast eftir hryggnum, áleiðis upp á Sveinsgnípu. MynD Sigtryggur Ari Kvískerjaleið Brekkurnar ofan af jökli eru ærið langar. MynD Sigtryggur Ari Sigtryggur Ari Jóhannsson sigtryggur@dv.is Stansað og notið Hópurinn áir og nýtur útsýnis frá Tómasarbrekku, neðan Sveinsgnípu. MynD Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.