Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Blaðsíða 17
Helgarblað 2. júní 2017 KYNNING 17 Fullkomnasta háþrýsti- þvottavél sem völ er á Stjörnumálun ehf. er fram­sækið og stöndugt verk­takafyrirtæki sem getur tekist á við alls kyns krefjandi verkefni af öllum stærðum. Eigendur fyrirtækisins eru þeir Ívar Þór Hilmarsson málarameist­ ari og Marek Ireneusz málari og verkstjóri. Að sögn Ívars hefur Stjörnumálun ehf. áratuga reynslu í alhliða málningarvinnu. „Við erum einnig með eina fullkomnustu háþrýstiþvottavél sem völ er á. Við bjóðum upp á háþrýstiþvott með 200–500 bar. dælu með 120°C heitu vatni eða köldu. Við getum þvegið veggjakrot og alla málningu af húsum, bílaplönum, gangstétt­ um og ýmsu fleira. Nú þegar vor­ hreingerningar standa fyrir dyrum er háþrýstiþvottur húsa og ýmissa plana einmitt mjög mikilvægur.“ Öll almenn viðhaldsvinna „Við getum gert heildartilboð í viðhaldsvinnu í samstarfi við aðra verktaka, t.d. smiði, rafvirkja, múrara og pípara,“ segir Ívar. „Starfsmenn fyrirtækis okkar hafa fjölbreytta menntun og mikla reynslu. Við erum vel búnir tækjum og eigum m.a. fimm þjónustubíla, tíu vinnulyftur og mikið magn af vinnupöllum fyrir stærri útiverk ásamt öllum þeim verkfærum og tækjum sem þarf í öll verk; stór sem smá. Fyrirtækið leigir einnig út vinnulyfturnar og palla. Hjá fyrir­ tækinu starfa allt að 30 manns, eftir verkefnastöðu hverju sinni, og höfum við tekið að okkur ýmis verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, félaga­ samtök, húsfélög og einstaklinga. Fyrirtækið er með lagerhúsnæði í Hafnarfirði og er aðili að Sam­ tökum iðnaðarins og gjaldgengt í ábyrgðarsjóð MSI.“ Mikilvægi viðhalds Ívar segist gjarnan vilja vekja athygli á mikilvægi þess fyrir húseigend­ ur að huga að reglulegu viðhaldi fasteigna sinna til þess að rýra ekki verðgildi þeirra og koma í veg fyrir varanlegar skemmdir. „Vel máluð hús eru einn mikilvægasti þátturinn í að skapa fallega heildarmynd og lífga upp á umhverfið. Fagmenn Stjörnumálunar ehf. ráðleggja og veita aðstoð við efnis­ og litaval auk þess sem úthugsaðar kostnað­ aráætlanir eru gerðar og verðtilboð út frá þeim. Stjörnumálun ehf. notar einungis efni og málningu sem stenst íslenska veðráttu og við gæt­ um þess að sprungu­ og undirvinna sé mjög góð enda tryggja slík vinnu­ brögð betri endingu. Fjölmörg fyrirtæki, stofnanir, húsfélög og einstaklingar á meðal viðskiptavina Viðskiptavinir Stjörnumálunar ehf. eru orðnir töluvert margir en fyrirtækið hefur unnið verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, bæjarfélög, húsfélög, einstaklinga og ýmis félagasamtök,“ segir Ívar. Vefsíða Stjörnumálunnar er www.stjornumalun.is. Einnig er hægt að hafa beint samband í síma 869-5302 eða á netfagnið stjornumalun@stjornu- malun.is. Stjörnumálun ehf. ­ Áratugareynsla í alhliða málningarvinnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.