Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Qupperneq 22
22 fólk - viðtal Helgarblað 2. júní 2017 B jörn Óli Hauksson, for- stjóri Isavia, er 56 ára gamall rekstrarverkfræðingur, upp- haflega miðbæjarrotta en hefur farið um allan heim og lítur á sig sem tengdason Vestfjarða. Svo sem að framan er talið hefur hann fengist við svo fjölbreytt verk- efni á sinni ævi að fáheyrt má telja. En æska Björns Óla, sem er alinn upp í Þingholtunum, var í engu frá- brugðinn æsku annarra íslenskra barna og svo sem ekkert sem benti til þess að lífshlaup hans yrði eins ævin týralegt og raun ber vitni. „Ég var á gömlu Grænuborg sem barn og þar hlupum við krakkarnir all- ir til og héngum á girðingunum og fylgdumst með flugvélunum fara í loftið. Ef maður ætlaði að vera virki- lega óþekkur á þessum árum hljóp maður hingað niður í Vatnsmýrina og yfir flugbrautirnar með flugbraut- arstarfsmenn keyrandi á ógnarhraða á eftir manni, alveg brjálaða. Ég er held ég búinn að gera allt sem ekki má í tengslum við flugvelli.“ Ætlaði að bjarga Íslandi Björn Óli segir að uppvöxtur sinn hafi verið ósköp venjulegur fyrir strák úr miðbænum á þessum árum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykja- vík og fór síðan til náms í Kaup- mannahöfn og útskrifaðist sem verk- fræðingur þaðan árið 1989. „Ég kom svo heim og taldi mig nokkuð góð- an; rekstrar verkfræðingur með sér- þekkingu í tölvustýrðri framleiðslu. Ég ætlaði að verða einn af bjargvætt- um Íslands, kynna flæðis greiningar og hvernig tölvutæknin virkaði og svo framvegis. Ég hélt sannarlega að þetta væri eitthvað sem Íslendingar þyrftu á að halda en þetta var árið 1990 og þá skall á litla kreppan. Ég fékk því ekkert að gera en hoppaði þess í stað inn í fyrirtæki föður míns, verkfræðistofuna Forverk, og vann þar. Það er skemmtilegt að segja frá því að þarna var unnið við korta- gerð og Forverk var fyrsta fyrirtækið til að vinna slík kort út frá loftmynd- um. Enn kemur flugið sem sagt inn. Við erum stundum að fletta gömlum kortum af flugvöllum og þá dúkkar nafn föður míns iðulega upp á þeim. Þá dregur maður svona smá fram vasaklútinn,“ segir Björn Óli bros- andi. Vikunámskeið sem dró dilk á eftir sér Björn Óli starfaði hjá Forverki í um það bil ár en skimaði hins vegar alltaf eftir öðrum verkefnum. Þá rak hann, eða öllu heldur móðir hans, augun í auglýsingu í dagblaði þar sem verið var að auglýsa eftir sendifulltrúum hjá Rauða krossinum. Björn Óli gaf ekki mikið fyrir það fyrsta kastið þegar móðir hans sagði honum að þetta væri nú eitthvað fyrir hann en engu að síður sótti hugmyndin á hann. Hann fór því á vikunámskeið í Munaðarnesi í Borgarfirði þar sem hann fékk þjálfum í hlutverki sendi- fulltrúa. Þetta var í ársbyrjun árið 1991 en einmitt þá hófst Flóabar- daginn, hernaðaraðgerðir banda- lagsþjóða Sameinuðu þjóðanna gegn Íraksher sem hafði ráðist inn í Kúveit í ágúst árið áður. Hernaður- inn stóð frá því í janúar og lauk að segja má í lok febrúar með fullnað- arsigri bandalagsþjóða. „Það leið ör- stuttur tími frá námskeiðinu sem ég tók, einhverjar örfáar vikur, þar til ég fékk símhringingu þar sem ég var spurður hvort ég gæti hugsað mér að fara til Íraks í hjálparstarf, að vinna að því að dreifa vatni og bjarga börn- um. Ég kunni nú ekki við annað en að bregðast við því, ég var ókvæntur, barnlaus og skuldaði engum neitt og ekkert sem aftraði mér. Ég fór því með góðum hópi Íslendinga til Íraks í apríl.“ Líður vel þegar maður lætur gott af sér leiða Björn Óli vann í Írak að því að setja upp vatnsdreifikerfi, með tankbílum fyrst á meðan unnið var að því að byggja upp vatnsveitukerfi í nýjan leik, og fór hann um allt Írak í því skyni. „Það var mjög spennandi og skemmtilegt að vera þarna og tak- ast á við þessi verkefni, en það var líka dramatískt að sjá þarna eyði- legginguna eftir stríðið. Þótt að það hefði staðið þarna stríð sem leitt var áfram af vestrænum þjóðum þá voru Írakar mjög jákvæðir gagnvart útlendingum, það var mín upplif- un. Það sem maður sá síðan eftir seinna Íraksstríðið var allt annað en ég þekkti þarna. En þetta var ákaf- lega skemmtileg reynsla og góður tími. Það er líka þannig þegar mað- ur sinnir svona störfum, þá verður maður svo ánægður með sjálfan sig. Maður er að láta eitthvað gott af sér leiða og það lætur manni líða vel.“ Fyrsti dagurinn í Eþíópíu áfall Björn Óli starfaði í Írak þar til um áramótin 1991/1992 en kom síð- an heim til Íslands. Árið 1992 fór hann hins vegar aftur út á vegum Rauða krossins, í þetta skiptið til Eþíópíu og raunar einnig til Sómal- íu. Þar sinnti hann mannúðarstarfi sem laut meðal annars að aðstoð við innri flóttamenn í Eþíópíu og að- stoð við flóttamenn frá Sómalíu. En verkefnin voru flókin og starfið víð- feðmt og margt sem þurfti að glíma við. „Ég var þarna tengiliður milli margra aðila, kom að útdeilingu matvæla og styrkja og uppbyggingu á svæðunum.“ Björn Óli segir að starfið hafi Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Það má sannarlega segja um Björn Óla Hauksson, rekstrarverkfræðinginn sem hugðist færa Ísland inn í nútímann í upphafi tíunda áratugarins með tölvuvæðingu framleiðslu í landinu. En örlögin gripu í taumana og stutt námskeið uppi í Borgarfirði árið 1991 leiddi Björn Óla til mannúðarstarfa í Austurlöndum nær og síðar í Afríku. Að því loknu stýrði hann einu af minnstu sveitarfélögum Íslands og fór svo þaðan beint í að byggja upp heilt þjóðfélag sem átti sér enga stjórnsýslulega innviði, Kósóvó. Í dag stýrir þessi maður margra verka flugmálum á Íslandi á tímum þar sem vöxtur er slíkur að vart er nokkru saman að jafna. Líður vel þegar maður lætur gott af sér leiða Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.