Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 64
Helgarblað 2. júní 2017 38. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS SENDUM ÚT UM ALLT LAND -20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM PLÖNTUM til 7. júní STJÚPUR 985KR. 55092000 Almennt verð: 1.295kr. 20% 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM REGNFATNAÐI AFSLÁTTUR AF ALLRI INNIMÁLNINGU OG VIÐARVÖRN PALLA- LEIKUR BYKO Vertu með! 1. ÞÚ KAUPIR GAGNVARIÐ PALLAEFNI FYRIR 50.000 KR. EÐA MEIRA Á TÍMABILINU 1. MAÍ - 17. ÁGÚST 2017. 2. ÞÚ SKRÁIR NÓTUNÚMER OG AÐRAR NAUÐSYNLEGAR UPPLÝSINGAR Á www.byko.is/pallaleikur 3. ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN OG GÆTIR UNNIÐ VEGLEGA VINNINGA!Vinningshafar eru kynntir á Facebooksíðu BYKO á hverjum föstudegi frá 14. júlí. 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM LJÓSUM OG PERUM Ö ll v er ð er u bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r o g/ eð a m yn da br en gl . T ilb oð gi ld a ú t 7 . j ún í. FJÖLDI FRÁBÆRRA VINNINGA AÐEINS Í BREIDD Ekkert sjálfsmark n Það var mikið markaregn í Árbænum þegar stjörnum prýtt lið Augnabliks heimsótti Elliða í fjórðu deild knattspyrnu karla á miðvikudagskvöld. Leiknum lauk með 7-2 sigri Augnabliks sem hefur innanborðs nokkr- ar gamlar kempur úr boltanum. Þeirra á meðal fjölmiðlamenn- ina Hjört Hjartarson og Hjörvar Hafliðason. Í fyrstu leit út fyrir að þeir hefðu báðir komist á blað með mörkum skoruðum en markamaskínan Hjörtur skoraði tvö mörk og úrslitavef- síðan urslit.net vildi síðan eigna markverðinum Hjörvari sjálfs- mark. Hjörvar var þó ekki á því að láta slíkan orðsporshnekki yfir sig ganga, enda jafnan óskeikull milli stanganna og krafðist þess á Twitter að vef- síðan leiðrétti þessar dylgjur. Fékk Hjörvar leiðréttinguna og stendur því keikur eftir misskiln- inginn. Fallegur Dagur n Bubbi Morthens var allt ann- að en sáttur við að lag hans „Þessi fallegi dagur“ hefði ekki komist á lista yfir bestu sumar- lög Íslands á Rás 2. „Er nokk- uð ísöld, ertu ekki að grínast, ég veit hvað gott Sumarlag er,“ skrifaði kóngurinn á Twitter enda hefur hann mikið til síns máls. Hefur hann á löngum ferli samið aragrúa af góðum lögum fyrir hverja árstíð. Bubba barst stuðningur frá borgarstjóranum Degi B. Eggertssyni sem endur- varpaði tísti með þeim orðum að hann væri hjartanlega sam- mála. „Hækka alltaf ósjálfrátt þegar ég heyri það #guilty- pleasure“, skrifaði Dagur kím- inn enda vafalaust hughreystandi að heyra þær yfirlýs- ingar ítrekaðar í lagi að maður sé fallegur. Er borgar- stjórinn ekki dagavilltur? Raggi Bjarna mætti á þyrlu Fékk far með Landhelgisgæslunni upp á Úlfarsfell til að taka þátt í einstökum viðburði á glæsilegum ferli sínum Þ að var alveg gífurlegur stæll á þessu,“ segir stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason (82) sem var meðal þeirra listamanna sem komu fram í hlíðum Úlfarsfells í Mosfellsbæ á miðviku- dagskvöld þar sem mikið var um dýrðir í skemmtigöngu Ferðafélags Íslands. Tilefnið var ærið enda Reyn- ir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, að fara sína þúsundustu ferð upp Úlfarsfellið. Auk Ragga komu fram Stuðmenn, Valdimar og Bjart- mar Guðlaugsson. En erfitt var fyrir göngugarpana að toppa innkomu Ragga Bjarna á hátíðarhöldin enda var honum flogið upp í þyrlu Land- helgisgæslunnar. „Þetta er stærsta þyrla sem ég hef séð,“ segir Raggi léttur í samtali við DV en á löngum og glæsilegum ferli hefur hann aldrei komið fram á fjalli áður. Þó var þetta ekki í fyrsta skipti sem hann er ferjaður á tónleikastað með þyrlu, en hann fór með lítilli þyrlu frá Bakka yfir til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð. „En aldrei svona græju. Þetta var alveg stórkostlegt.“ Raggi segir að það hafi verið ógleymanlegt að sjá mannfjöldann samankominn á fjallinu úr lofti. Við- tökurnar og andinn í mannskapnum lét hann heldur ekki ósnortinn. „Þetta var yndislegt, fólkið tók mér svo vel. Það var svo mikil gleði og við urðum þarna öll eins og ein stór fjölskylda. Ég vil nýta tækifærið og færa flugmönnum Land- helgisgæslunnar, sem dekr- uðu við mig, og öllum sem að þessum viðburði komu hjartans þakkir fyrir mig. Þetta var alveg einstakt.“ n mikael@dv.is Stjörnumeðferð Raggi Bjarna fékk far með Gæslunni upp Úlfarsfell en Landhelgisgæslan var að koma fyrir neyðarsendi frá Ferðafélagi Íslands sem settur verður upp í fjallinu. MynDir Sigtryggur Ari Stuð á mönnum Reynir Traustason fagnaði ferð númer eitt þúsund upp Úlfarsfellið og sést hér með hluta Stuðmanna á sviði. Meistarinn Bjartmar Guðlaugsson var mættur með gítarinn og tók nokkra af sínum fjölmörgu smellum fyrir göngugarpana á Úlfarsfelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.