Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 23. júní 2017fréttir Spurning vikunnar „Eyjafjörðurinn. Þar eru mínar æskuslóðir og þar er mjög fallegt.“ Elísabet Gunnarsdóttir „Skagafjörðurinn. Hann er svo fallegur og þar er líka óskaplega gott fólk.“ Hulda Katarína Sveinsdóttir „Mér dettur Ásbyrgi fyrst í hug. Sá staður geymir fallega sögu og þar er gott að vera.“ Ástríður Sóley Harðardóttir „Akureyri. Bæjarstæðið er fallegt, lognið í Pollinum er heillandi og það er sjarmi yfir bænum.“ Sæmundur Sævarsson Hver finnst þér vera fallegasti staðurinn á landinu ? Varnarlausir þegar lygin er notuð gegn okkur Fordæmir lögreglu fyrir að tala opinberlega um andlega heilsu sambýlismanns síns A llt þetta mál er sorglegt frá upphafi til enda. Sú at­ burðarás sem þessi unga kona lýsir er lygi frá upp­ hafi til enda. Þá er framganga lög­ reglu í málinu til skammar. Ég skil ekki hvernig þeir voga sér að tala opinberlega um heilsu fólks,“ segir listamaðurinn Jón Þorgeir Ragnarsson í samtali við DV. Hann er sambýlismaður Halls Heiðars Hallssonar sem í fyrradag var sak­ aður um að hafa veist að ungri konu, Töru Líf Styrmisdóttur, og fjölskyldu hennar þegar þau voru að skoða kanínur í Elliðaár­ dal. Ríkisútvarpið greindi frá mál­ inu á vef sínum en í fréttinni kom fram að lögreglan hefði nokkrum sinnum haft afskipti af Halli vegna sams konar mála. Þá var haft eft­ ir Gunnari Hilmarssyni, aðal­ varðstjóra á Lögreglustöðinni í Kópavogi, að Hallur, sem var ekki nefndur á nafn í fréttinni, gengi ekki heill til skógar. Þá kom fram að Hallur yrði kallaður til skýrslu­ töku vegna meintra eignaspjalla og að lögð yrði fram kæra. Hótanir og eignaspjöll Eins og áður segir var Tara Líf stödd í Elliðaárdal ásamt móður sinni, dóttur og ungri systur að virða fyrir sér kanínurnar. Tara Sif tók eitt dýrið í fangið og við því brást Hallur illa. „Hann öskrar á mig að láta sig fá kanínuna og hendir frá sér vespunni og setur hnefann upp að hausnum á mér og fer að ógna mér, öskrar að ég sé bara helvítis hóra og hálf reif hana úr fanginu á mér, þarna stend ég með báðar stelpurnar við lapp­ irnar á mér,“ segir Tara Sif á Face­ book. Þá heldur hún því fram að Hall­ ur hafi kallað mæðgurnar öllum illum nöfnum, tekið upp mynda­ vél og tekið af þeim myndir. Þá hafi hann haft í alvarlegum hótun­ um og gerst sekur um eignaspjöll: „Hann fer á vespunni og kemur svo aftur á fleygiferð og hrifsar í handlegginn á mömmu og grýt­ ir símanum hennar í mölina og mölbrýtur hann. Það munaði einu skrefi að hann færi beint á litlu systur mína þar sem hann brun­ aði á milli hennar og mömmu,“ skrifar Tara. Að hennar sögn hafi Hallur reynt að keyra hana nið­ ur á vespunni á meðan hún hafi verið hlaupandi með barnið sitt í fanginu. Lögreglan kom skömmu síðar á staðinn og tók skýrslu en þess ber að geta að fjölmargir einstaklingar hafa stigið fram og kvaðst hafa átt í skærum við Hall í tengslum við kanínurnar. Fyrirtæki fæða dýrin Jón Þorgeir vísar þessari meintu árás sambýlismanns síns til föður­ húsanna. Hann kannast hins vegar við rifrildi og skærur. „Hall­ ur er óhræddur og lætur reglulega í sér heyra. Ég hef heyrt fólk kvarta yfir því að hann sé að öskra á það en það er ekki eins og hann geti staðið í dyragættinni og hvíslað til fólks sem er lengst í burtu. Við höfum reynt að afmarka svæðið en margir virða það að vettugi. Þar er mikið af holum sem fólk getur slasað sig á, sérstaklega börn,“ segir Jón Þorgeir. Auðheyrt er að honum og Halli sambýlismanni hans þykir afar vænt um kanínurnar. „Þegar við fluttum hingað inn þá voru allir að spyrja hvort við ætluðum ekki að fá okkur gæludýr, hund eða kött. Ég sagði að við vildum helst að dýrin væru frjáls og síðan birtust kanínurnar hér,“ segir Jón Þorgeir. Síðan þá hafa sambýlis­ mennirnir haldið verndarhendi yfir kanínunum en það hafa þeir ekki gert einir. „Yfirgnæfandi meirihluta fólks þykir vænt um kanínurnar enda er eitthvað við þessi dýr sem erfitt er að útskýra. Börn elska þær og hingað er stöð­ ugur straumur af ömmum og öfum með ungviðið. Þá eru fjöl­ mörg fyrirtæki sem leggja hönd á plóg varðandi fæði handa þeim,“ segir Jón Þorgeir. Veiddar og barðar til ólífis með kylfum Velvilji í garð dýranna sé þó ekki algildur því að margir vilja kan­ ínurnar burt og þá hafi þær orðið fyrir stöðum árásum illvirkja. Sem dæmi má nefna að Reykja­ víkurborg skoðaði alvarlega að fækka dýrunum árið 2013. „Ég hef aldrei skilið þetta tal. Mávurinn og kettirnir halda kanínum í skefj­ um. Að auki verða þær reglulega fyrir árásum fólks, stundum bara af hreinni mannvonsku. Síðan höf­ um við oft orðið vitni að því að fólk af erlendu bergi brotið sé að veiða þær, þá annaðhvort til matar eða til að komast yfir feldinn af þeim. Ef kanína hér eignast tíu unga þá er það heppni ef einn kemst á legg,“ segir Jón Þorgeir. Að hans sögn gerðu unglingsstrákar sér það að leik að berja kanínurnar til ólíf­ is með hafnaboltakylfum fyrir nokkrum árum og það var í raun kornið sem fyllti mælinn. „Við tókum kanínurnar stund­ um í fangið og létum vel að þeim. Við áttuðum okkur þá á því að við vorum að gera þær of gæfar og þannig urðu þær varnarlaus­ ar gagnvart fólki. Það gerist reglu­ lega að fólk tekur kanínurnar upp og þeim líður ekki vel með það. Þær reyna að koma sér í burtu og stökkva úr fangi fólks. Fallið er þá oft mjög hátt og þær slasast stund­ um þegar þær lenda í jörðinni,“ segir Jón Þorgeir og bendir á að á heimili þeirra séu nú sjö slasaðar kanínur sem þeir séu að hlúa að. Það sé skýringin á því að Hallur hafi hrifsað kanínuna af Töru Sif. „Hann tók af henni kanínuna og hún brást illa við því. Hún byrjaði að hóta honum lífláti og hand­ rukkun. Ég hef ekki heyrt aðrar eins svívirðingar og það fyrir fram­ an börn,“ segir Jón Þorgeir og kveðst ekki hafa staðið á sama. „Ég vil ekki eiga í deilum við neinn. Hallur lætur hins vegar í sér heyra, en það er af og frá að hann eigi í stríði við allt og alla,“ segir Jón Þor­ geir. Hann segir málið vera storm í vatnsglasi en segist sannfærður um að eitthvað gott komi út úr því. „Við erum varnarlausir þegar lygin er notuð sem vopn. Sem betur fer var sjónarvottur að uppákomunni, annars hefði Hallur verið handtek­ inn á staðnum.“ n Skálará Dýralífið við heimili Halls og Jóns Þorgeirs er fjölbreytt með afbrigðum. Mynd Frásögn sjónarvotts: „Maðurinn brást of harkalega við þegar hann reif af henni kanínuna. Hins vegar blöskraði mér framganga ungu konunnar. Hún jós svívirðingum yfir manninn og gerði ástandið margfalt verra,“ segir sjónarvottur sem var staddur á sömu slóðum að skoða kanínurnar. Konan vildi ekki láta nafns síns getið en hún kveðst hafa verið á leiðinni frá staðnum þegar lögreglubíll renndi í hlað. „Þá ákvað ég að snúa við enda grunaði mig hvað væri í vændum,“ segir konan. Að hennar sögn varð hún vitni að tilþrifamiklum leikþætti hjá Töru Líf. „Hún á framtíðina fyrir sér í þeim efnum því það var logið blákalt upp á manninn og atvikið blásið þvílíkt upp. Mér blöskraði einfaldlega,“ segir konan. Þá segist hún hafa orðið miður sín að sjá frétt RÚV um málið. „Það er ótrúlegt að lögregla dylgi um veikindi manns opinberlega og hafi ekkert fyrir sér í þeim efnum auk þess sem aðeins önnur hliðin kemur fram,“ segir konan. Jón Þorgeir Ragnarsson Gagnrýnir lögreglu fyrir að segja í fréttum RÚV að sambýlismaður hans glími við andleg veikindi. „Hallur verið á Kleppi,“ segir Jón Þorgeir. Mynd: EyÞóR ÁRnaSon Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.