Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 23. júní 2017 Stelpurnar sem eru á leið á EM opna sig Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í knattspyrnu eru að fara á Evrópumótið í Hollandi og hefur liðið leik þann 18. júlí næstkomandi. Stelpurnar okkar hafa staðið sig vel á síðustu stórmótum og ætla sér stóra hluti í Hollandi. Fram að móti ætlum við að kynnast leikmönnum liðsins betur, spurt er um allt milli himins og jarðar en þær Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir ætla að ríða á vaðið. hoddi@433.is Fanndís Friðriksdóttir er kröftugur kantmaður sem gæti hrellt varnarmenn allra liða á EM í sumar. Fanndís ólst upp í Vestmannaeyjum áður en hún fluttist á malbikið og hefur spilað með Breiðabliki alla tíð fyrir utan nokkur ár í Noregi. Fanndís er fædd árið 1990 og er einn af lykilmönnum Íslands. Uppáhaldsmatur? Grillað kjöt og svo elska ég líka indverskan mat. Besti veitingastaðurinn? Margir góðir, fer eftir því hvernig skapi maður er í, Sushi Social er góður, Hraðlestin, Grillmarkaðurinn og fleiri. Hvað færðu þér á pítsuna? Pepperóní, rjómaost, sveppi, lauk, papriku og jalapenjo. Hvað drekkurðu á djamm- inu? Einstök. Hvert ferðu á djamminu? B5. Twitter eða Facebook? Facebook. Draumabíllinn? Væri alveg til í að eiga Audi A7. Uppáhaldstónlistarmaður? Justin Bieber. Uppáhaldsborg? New York. w Hvaða þrjá einstaklinga í heimin- um tækir þú með þér til Vegas? Ég mundi taka kærastann minn Alexander Frey Sindrason, Hallberu Guðný, því hún er skemmtilegust og fyndnust, og svo mundi ég taka David Beckham til þess að við fjögur gætum farið á „double date“. Hvaða leikmaður í landsliðinu er erfiðastur á æfingum? Sonný Lára í skotæfingunni daginn fyrir leik. Hvaða leikmaður í landsliðinu tuðar mest? Tuðbjörg. Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum? Hita upp. Á hvaða velli er skemmtilegast að spila? Kópavogsvelli. Hvernig takkaskó notar þú? Nike Vapor. Gras eða gervigras? Gras. Besta íslenska knattspyrnukona í sögunni? Ætli það sé ekki MLV9 en Sara Björk á eftir að verða það. Hvað er það skemmtilegasta við stór- mót í fótbolta? Að njóta þess að vera á meðal þeirra bestu. Hvar endar Ísland á EM í Hollandi? Á palli. Hallbera Guðný Gísladóttir er þrítugur vinstri bakvörður sem hefur átt fast sæti í landsliðiðinu í mörg ár. Hún er einn af lykilmönnum liðsins og verður mikilvægur hlekkur í liðinu á EM í Hollandi. Uppáhaldsmatur? Alls konar mexíkóskur matur. Besti veitingastaðurinn? Í Stokkhólmi er það Kasai en Public House er í miklu uppáhaldi á Íslandi. Hvað færðu þér á pítsuna? Pepp, rjómaost, svartan pipar og jalapenjo. Hvað drekkurðu á djamminu? Einn ískaldur hefur ekki drepið neinn. Hvert ferðu á djamminu? Elti hópinn. Twitter eða Facebook? Twitter. Draumabíllinn? Nýju Volvo-jepparnir eru flottir! Uppáhaldstónlistarmaður? Helst bland í poka, mjög erfitt að velja einhvern einn þar sem ég hlusta á alls konar tónlistarmenn, allt frá KK til Rolling Stones. Uppáhaldsborg? Ég elska að búa í Stokkhólmi og hún kemur sterk inn sem uppáhaldsborg, en tilfinninguna sem maður fær þegar maður röltir um Róm er samt erfitt að toppa. Hvaða þrjá aðila í heiminum tækir þú með þér til Vegas? Fyrst á lista er Fanndís Friðriksdóttir. Fanndís er fædd í brekkunni í Herjólfsdal á miðri Þjóðhátíð og fékk því alvöru skemmtanaúthald í vöggugjöf. Ferð ekki til Vegas til að láta þér leiðast. Næst á lista væri Khloe Kardashian. Langskemmtilegasta Kardashian-systirin og er með öll helstu sambönd sem við gætum nýtt okkur í Vegas. Myndum líka láta hana borga reikninginn. Síðast en ekki síst myndi ég bjóða Harvey Specter með okkur. Mikilvægt að hafa einn fjallmyndarlegan lögfræðing með í ferðinni sem gæti séð um að leysa öll vandamál sem gætu skapast eftir þessa ferð. Hvaða leikmaður í landsliðinu er erfiðastur á æfingum? Sonný Lára þegar við tökum skotkeppni. Þá lokar hún búrinu. Hvaða leikmaður í landsliðinu tuðar mest? Tuðbjörg getur tuðað yfir ótrúlegustu hlutum (Guðbjörg Gunnarsdóttir). Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum? Ég er ekki mikill aðdáandi upphitunar, myndi helst alltaf vilja fá að hita upp í reit. Á hvaða velli er skemmtilegast að spila? Laugardalsvelli. Spilaði reyndar leik hér í Stokkhólmi á móti Hammarby um daginn þar sem allar helstu bullur Hammarby voru mættar á pallana. Það var mjög gaman að vinna á þeim velli. Hvernig takkaskó notar þú? Nike Vapor. Gras eða gervigras? Mikil grasmanneskja. En tek samt gott gervigras fram yfir lélegan grasvöll. Besta íslenska knattspyrnukona í sögunni? Sara Björk hefur verið að gera ótrúlega flotta hluti síðustu ár. Hún og MLV deila þessum titli. Hvað er það skemmtilegasta við stórmót í fótbolta? Andrúmsloftið á vellinum rétt áður en leikurinn byrjar. Síðan er fátt sem toppar það að vinna leik á stórmóti. Hvar endar Ísland á EM í Hollandi? Ofar en áður. Yfirheyrslan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.