Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 40
40 menning Helgarblað 23. júní 2017 Masókískt maraþonverk flutt í fyrsta skipti á Íslandi Strokkvartettinn Siggi situr í fimm tíma og flytur ægilangan Annan strengjakvartett Feldmans A nnar strengjakvartett bandaríska tónskáldsins Mortons Feldman er lengsti strengjakvartett allra tíma, rúmir fimm tímar á lengd. Eins og gefur að skilja er verkið ekki reglulega á efnisskrá strengjasveita enda gríðarlega krefjandi fyrir flytjendurna – eins konar maraþonhlaup eða jafnvel masókismi í þágu fegurðarinnar. Nú um helgina gefst íslensk- um tónlistarunnendum í fyrsta skipti færi á að heyra verkið flutt í heild sinni þegar Strokkvartett- inn Siggi flytur það í Mengi sem hluta af tónlistarhátíðinni Reykja- vik Midsummer Music. Rannsókn á tímanum Hinn gríðarlega langi Annar strengjakvartett Mortons Feldman var fyrst fluttur árið 1983. Nótna- blaðið er 124 blaðsíður og takt- urinn á köflum ógurlega hægur, þannig að verkið tekur yfirleitt um fimm tíma í flutningi. Í verkinu veltir Feldman fyrir sér tímahug- takinu og upplifun manneskj- unnar á tímanum. „Feldman var alltaf að skoða kvarða og hvern- ig við skynjum tímann og hvernig við getum frelsast undan honum,“ sagði Víkingur Heiðar Ólafsson, listrænn stjórnandi RMM, í viðtali við DV á dögunum. „Þetta er gríðarlega fallegt verk með mörgum ólíkum litum,“ segir Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleik- ari og ein þeirra sem mun flytja verkið á sunnudag. „Lengdin setur hins vegar allt tónmálið í svolítið sérstakt samhengi. Það má segja að maður fari í hálfgerða leiðslu þegar maður spilar þetta,“ segir Una og sellóleikarinn Sigurður Bjarki Gunnarsson bætir við lýs- inguna: „Það er gegnumgangandi í verkum Feldmans þessi ofboðs- lega lágstemmda dýnamík eða daufu styrkleikamerki. Hann notar gjarnan stórar einingar, er búinn að breikka verkið út, en svo eru litlir gimsteinar inni á milli sem koma og fara nokkuð fljótt. Þarna blandast líka saman óskýrleiki, sem er nánast eins og skipulagt kaos, og svo ofboðslega skýrar og einfaldar einingar. Feldman forð- ast líka þessa línulegu framþróun, þar sem stefin og efnið þróast línu- lega í átt að tilteknum hápunkti. Hann er því að brjóta upp hefð- bundnar væntingar áheyrenda til tónverka.“ Þarf maður að sitja alla fimm tímana til að njóta verksins al- mennilega? „Ef þú ætlar að njóta þess al- veg í botn þá þarftu auðvitað að vera í fimm tíma,“ segir Una og hlær. „En ég get alveg lofað því að það eru bútar í verkinu sem eru þess virði að heyra þótt maður sitji ekki alla fimm tímana. Fólk getur því komið á tónleikana og svo kíkt yfir á Mokka og fengið sér vöfflu og komið aftur.“ Bananar og orkudrykkir Víkingur Heiðar hefur lýst því sem augljósri klikkun og masókisma að flytja verkið en Una segir að strokkvartettinn hafi þó ekki ver- ið lengi að ákveða að þiggja boð hans um að flytja það á Reykjavik Midsummer Music. En það sé hins vegar óvenjulega mikill undirbún- ingur sem fylgi verkefninu. „Við byrjuðum á því að nota heila viku í að sauma okkur í gegn- um hvert einasta smáatriði, all- ar 124 blaðsíðurnar. Í þessari viku höfum við svo meira verið að renna hlutum verksins í gegn, ná tengingu, finna fyrir flæðinu og taktinum – en það er flókinn takt- ur í verkinu sem skiptir miklu máli að sé réttur. Við höfum bara notað vekjaraklukku til að stoppa okkur af eftir ákveðinn tíma, spila í einn og hálfan tíma og taka svo pásu,“ segir Una. „Þetta verk er náttúrlega hálf- gert maraþonhlaup. Siggi er sá eini okkar sem hefur hlaupið maraþon og það er því rosalega gott að eiga hann að. Hann ákvað til dæmis að við myndum ekki spila allt verkið í heild sinni fyrr en á sjálfu sviðinu,“ segir Una, en maraþonhlauparar fara yfirleitt ekki alla vegalengd- ina í æfingahlaupum í aðdraganda maraþonsins. En hvað með praktísku líkam- legu atriðinu, fáið þið engar mat- ar- eða klósettpásur meðan á flutn- ingnum stendur? „Nei, ég held að það verði bara hafragrautur um morguninn og svo borði maður banana og verði með einhverja drykki við hendina, kannski einhverja orkudrykki sem maður fer sparlega með,“ segir Una. Siggi string quartet flytur Ann- an strengjakvartett Feldmans í Mengi við Óðinsgötu frá klukkan 13 til 18.00 sunnudaginn 25. júní. Aðgangseyrir er 2.000 krónur. n Morton Feldman (1926–1987) Morton Feldman var fæddur árið 1926 í Bandaríkjunum, sonur rússneskra gyðinga- innflytjenda, og var áberandi í framúrstefnutónlistar- og tilraunalistasenunni í New York á sjötta og sjöunda áratugnum. Góðvinur hans John Cage hvatti hann til að prófa sig áfram með óvenjulega nótnaskrift og vann hann með ýmiss konar óhefðbundna nálgun á tónsmíðar framan af ferlinum, en á níunda áratugnum fór Feldman að einbeita sér að tímavíddinni í tónlist, meðal annars með ofurlöngum tónverkum á borð við Annan strengjakvartettinn frá 1983. Siggi Strokkvartettinn Siggi brýtur blað í íslenski tón- listarsögu þegar hann flytur fimm tíma strengjakvartett Feldmans mynd SigtRygguR ARi Metsölulisti Eymundsson 15.– 21. júní 2017 Allar bækur 1 Talin afSara Blædel 2 Með lífið að veðiYeonmi Park 3 Eftirlýstur Lee Child 4 Teppaprjón Þuríður Magnúsdóttir / Guðrún S. Magnúsdóttir 5 BrestirFredrik Backman 6 Gestir utan úr geimnum Ævar Þór Benediktsson 7 Litla bakaríið við Strandgötu Jenny Colgan 8 Independent people Halldór Laxness 9 Sagas Of The Icelanders Ýmsir höfundar 10 Morðið í Gróttu Stella Blómkvist Handbækur / Fræði- bækur / Ævisögur 1 Með lífið að veðiYeonmi Park 2 Teppaprjón Þuríður Magnúsdóttir / Guðrún S. Magnúsdóttir 3 Útilífsbók fjöl-skyldunnar Vilborg Arna Gissurardóttir / Pálína Ósk Hraundal 4 Brjálæðislega róandi Sævar Jóhannesson 5 HÍF OPP! Gaman-sögur af íslenskum sjómönnum Guðjón Ingi Eiríksson 6 StofuhitiBergur Ebbi Benediktsson 7 FlökkusögurSigmundur Ernir Rúnarsson 8 171 Ísland: Áfanga-staðir í alfaraleið Páll Ásgeir Ásgeirsson 9 Gæfuspor - Gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 10 Volcano Sudoku Ýmsir höfundar Kristján guðjónsson kristjan@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.