Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 15
Helgarblað 23. júní 2017 fréttir 15
Hann segir að dómari hafi
gagnrýnt þetta við fyrirtöku máls-
ins í vikunni. „Við teljum að blóðið
á vettvangi sé úr Árna eftir að hann
varði sig en lögreglan hefur ekki
séð ástæðu til að rannsaka það.
Dómarinn sagði bara: „Bíddu,
svona alvarleg ákæra og þið ætlið
ekki að rannsaka blóðið?“,“ segir
Hjalti.
Hjalti segir ennfremur ein-
kennilegt að símasamskipti Árna
við konuna hafi ekki verið skoðuð.
Hann telur að þau myndu varpa
talsvert öðru ljósi á málið.
Hnífurinn líkari sveðju
Hjalti segir að eitt meginvitnið
í málinu sé æskuvinkona Árna.
Hjalti segist hafa talað við hana og
hún hafi sagt honum að hennar
fyrsti framburður hjá lögreglu hafi
verið rangur. Að sögn Hjalta hefur
sá framburður ekki verið Árna í
hag.
„Hún segist ætla að fara upp á
stöð og leiðrétta framburðinn. Nú
lagast ekki málið þótt hún segi lög-
reglunni að meint fórnarlamb hafi
komið með hnífinn en ekki Árni.
Hún hefur setið undir hótunum,
ég veit að henni hefur verið hótað
að hundurinn hennar yrði drep-
inn ef hún héldi sig ekki við fyrri
framburð.
Niðurstaðan er að hún fer mitt
á milli og segir að meint fórnar-
lamb hafi komið með hnífinn,
þeir hafi svo farið að takast á og þá
detti hnífurinn upp úr vasanum
hjá meintu fórnarlambi. Hnífur-
inn sem um ræðir er með 40 senti-
metra blað, þetta er miklu líkara
sveðju. Svona hnífur dettur ekki
upp úr vasanum,“ segir Hjalti.
„Það er ekkert samræmi í vitn-
isburði þeirra. Fyrst segja þau
bæði að Árni hafi stolið bíln-
um, síðan segja þau bæði að Árni
hafi komið með hnífinn. Hann
átti sjálfur hnífinn og er búinn að
farga honum að eigin sögn. Síð-
an er annað, Árni er fílefldur og ef
hann hefði ætlað að drepa hann
með hníf sem er eitt kíló þá væri
hausinn farinn af honum. Hann er
160 kíló og meint fórnarlamb segir
að hann hafi verið brjálaður. Ég vil
sjá Árna við réttarhöldin taka hníf-
inn og stinga honum af alefli í tré-
drumb og sjá hvort að hann stoppi
á einhverjum millimetrum,“ segir
Hjalti.
Í einum nýjasta gæsluvarð-
haldsúrskurði Árna er þetta stað-
fest. „Fyrrgreint vitni sem hafi ver-
ið sjónarvottur að atvikinu hafi
óskað eftir því við lögreglu að fá
að gefa aðra skýrslu hjá lögreglu
til þess að leiðrétta það sem hún
hafði áður borið um að ákærði
hafi komið með hnífinn á vettvang
og kvað vitnið það ekki rétt heldur
hafi það verið brotaþoli sem hafi
komið með hnífinn á vettvang,“
segir í úrskurði.
Tvídæmdur
Árni Gils hefur tvisvar sinnum ver-
ið dæmdur til refsingar fyrir afbrot.
Þann 11. maí síðastliðinn var hann
dæmdur í fjögurra mánaða fang-
elsi fyrir líkamsárás á karlmann
við 10-11 í Austurstræti árið 2015.
Lögregla kom þar að er Árni dró
manninn eftir gangstéttinni. Sam-
kvæmt dómi voru þeir báðir ölv-
aðir og höfðu lent í orðaskaki inni
í versluninni. Hann var jafnframt
dæmdur fyrir brot gegn valdstjórn
með því að hrækja á lögreglu-
mann í febrúar í fyrra. Árið 2015
fékk hann 30 daga skilorðsbund-
inn dóm fyrir brot gegn lögum um
ávana- og fíkniefni.
Líkt og fyrr segir dregur Hjalti
engan dul á að Árni hafi ekki verið
engill undanfarin ár. „Hann er bú-
inn að vera í rugli og þegar hann
sagði mér þessa sögu upphaflega
þá trúði ég ekki orði af því sem
hann sagði, því hann er náttúr-
lega búinn að vera í neyslu og hef-
ur logið að mér. Ég get aftur á móti
ekki neitað hans frásögn hans eftir
að ég er búinn að sjá rannsóknar-
gögn málsins,“ segir Hjalti og bætir
við að Árni hafi verið edrú í nokkra
mánuði en fallið stuttu fyrir at-
burðinn í mars.
Leiddur fyrir dómara nakinn
Hjalti telur að lögregla gangi
óvenjuhart fram gegn Árna vegna
þess að hann sé stór og kraftmik-
ill maður. „Þeir eru svo ákafir að
kæra Árna vegna þess að hann
hefur lent í slagsmálum við lög-
reglu og öðru rugli og er ríflega
tveir metrar á hæð og 160 kíló. Það
eru ákveðnir fordómar gagnvart
stórum mönnum í líkamsrækt. Allt
í einu er byrjað að hatast út í stóra,
mikla menn. Þetta er nýtt í samfé-
laginu.
Þeir taka öll fötin af honum
þegar hann er handtekinn og loka
hann í einangrun á Litla-Hrauni.
Þegar hann er leiddur fyrir dóm-
ara þá eru engin föt á hann, hann
er svo stór og þrekinn. Þannig að
hann er leiddur fyrir kvendómara
í allt of lítilli og rifinni sundskýlu
með handklæði yfir axlirnar, með
hauskúputattú yfir allt brjóstið á
sér. Konan sér hann svona nakinn,
hvaða líkur heldurðu að séu á því
að hún segi honum að hann sé að
fara að losna?“ spyr Hjalti.
Málið verður næst tekið fyrir
við Héraðsdóm Reykjavíkur þann
30. júní. n
jólinÞað eru ekki alltaf
Ávaxtaðu betur
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Árni Gils og Hjalti Úrsus Faðir hans segir algjörlega ljóst að Árni Gils hafi verið verja sig.