Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 23. júní 2017
B
laðamaður hitti Styrmi á
heimili hans í Kópavogi.
Talið barst fyrst að aldri
og því að eldast. „Það er
merkilegt að fylgjast með því á
sjálfum sér hvernig maður eldist,“
segir Styrmir. „Þegar ég var sjö
tugur fannst mér það alveg eins
og að vera sextugur og þegar ég
varð 75 ára fann ég heldur engan
mun. Ég fór raunverulega ekki að
finna mun á mér fyrr en ég varð 78
ára. Núna er ég orðinn 79 ára og
finn ennþá meiri mun sem sýnir
sig í því að þrekið minnkar. Mað
ur verður nokkuð hissa þegar það
gerist. Á sama tíma finnur maður
að maður færist smám saman út í
jaðar samfélagsins og er að mestu
leyti áhorfandi að því sem er að
gerast.“
Varla finnst þér æskilegt að við
gefum þeim sem eldri eru svo lítið
vægi í okkar þjóðfélagi?
„John McCain er einn aðal
gagnrýnandi Donalds Trump á
Bandaríkjaþingi. Hann er einu
ári eldri en ég og einn af forystu
mönnum Repúblikana. Fyrir
vestan er annað viðhorf til aldurs
en hér á landi. Í Bandaríkjunum er
líka mikið um fólk á mínum aldri
sem er ennþá virkt í fjölmiðlum og
að hluta til einnig í Bretlandi.
Ég held að áhersla á æsku sé
meiri hér en víða annars staðar, en
ég skil það vel. Þegar ég var tví tugur
og var að byrja starf í Heimdalli þá
vildi ég losna við allt gamla liðið,
sem mér fannst orðið úrelt.“
Blaðamaður hefur einhverja
fyrirfram hugmynd um að Styrmir
sitji við skriftir og spyr hvort hann
sé kannski að skrifa ævisögu sína.
„Mér hefur aldrei dottið í hug að
skrifa ævisögu mína. Mér finnst
ævi mín ekki vera neitt merki
leg,“ svarar Styrmir. „Það má þó
kannski segja að tvær bækur sem
ég skrifaði séu partur af ævisögu.
Önnur var um átökin í Sjálfstæðis
flokknum og hin um kalda stríðið,
hvort tveggja hefur verið mikill
partur af starfsævi minni.
Ég hef verið að bauka við hand
rit sem ég veit ekkert hvort á eftir
að koma út. Það er framhald af
þessum tveimur bókum með
áherslu á Sjálfstæðisflokkinn og
hans vegferð í okkar sam félagi.
Mér hefur líka dottið í hug að
skrifa bók um Morgunblaðið sem
mér finnst hafa verið merkilegt
fyrirbæri í okkar þjóðfélagi.“
Allt varð falt fyrir peninga
Ein frægasta tilvitnun seinni ára
eru orð sem Styrmir sagði við
rannsóknarnefnd á vegum Al
þingis vegna hrunsins: „Þetta er
ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt
ógeðslegt. Það eru engin prinsipp,
það eru engar hugsjónir, það er
ekki neitt. Það er bara tækifæris
mennska, valdabarátta.“ Styrmir
er spurður hvort það hafi lengi
við skoðun hans að þjóðfélagið sé
ógeðslegt.
„Fannst ég aldrei sitja
í valdamiklu starfi“
Styrmir Gunnarsson var í 36 ár ritstjóri Morgunblaðsins og afar áhrifa-
mikill í því starfi, þótt sjálfur vilji hann ekki gera mikið úr þeim áhrifum. Hann lét
af starfi ritstjóra árið 2008 en lætur sig þjóðfélagsmál enn miklu varða. Kolbrún
Bergþórsdóttir hitti Styrmi og ræddi við hann um hrunið, stjórnmálin, Morgun-
blaðið, þroskandi lífsreynslu og ævi forfeðranna.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Styrmir Gunnarsson„Mér
hefur aldrei dottið í hug að
skrifa ævisögu mína. Mér
finnst ævi mín ekki vera neitt
merkileg.“ Mynd SiGtryGGur Ari