Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 64
Hamingjuvísir Heiðrúnar og Hrefnu Hamingja Íslendinga í skemmtilegum búningi Vinkonurnar Heiðrún Ólafsdóttir og Hrefna Guðmundsdóttir gáfu nýlega út bókina „Why Are Icelanders So Happy?“, þar sem þær setja fram á léttan og skemmtilegan hátt hvað það er sem gerir okkur að þriðju hamingjusömustu þjóð í heimi. Bókinni er beint að ferðamönnunum sem sækja landið heim, en hún á þó erindi við okkur öll, því hvað er betra en að kynna sér hamingjuna og auka hana með öllum ráðum. Hrefna kom með hug-myndina að bókinni og við fórum að skoða hvað það er sem gerir okkur svona hamingjusöm og ákváðum að færa það til ferðamannanna sem hingað koma,“ segir Heiðrún, en ekki leið langur tími frá því að hugmyndin fæddist og þar til bókin var tilbúin. „Þetta gerðist mjög hratt, enda var hugmyndin góð.“ Hrefna er félagssálfræðingur og er búin að kynna sér hamingjuna í nokkur ár, bæði í jákvæðri sálfræði og hamingjufræðum, auk þess sem hún hefur haldið úti vefsíðunni hamingjuvisir.is um nokkurra ára skeið. Hrefna tók því að sér fræðilega hlutann, en Heiðrún, sem starfar sem rithöfundur og þýðandi tók að sér textann. Heiðrún vinnur nú að þýðingu erlendrar skáldsögu og er að leggja lokahönd á eigin ljóðabók sem væntanleg er í haust, en áður hefur hún sent frá sér eina skáldsögu og nokkrar ljóðabækur. Íslendingar koma vel út í hamingjurannsóknum „Það var einhver sem sagði að við værum kannski svona hamingjusöm af því að við værum svo lygin. Við byggj- um hins vegar bókina á niðurstöðum hamingju- rannsókna sem við höfum skorað hátt í undanfarin ár og förum aðeins í gegnum hvað það er sem gerir okkur hamingjusöm og af hverju við erum svona ham- ingjusöm. Hvað gerir það að verkum að við skorum svona hátt í þess- um rannsókn- um. Við setjum upplýsingarnar fram á léttan og skemmti- legan hátt,“ segir Heiðrún og bætir við að Íslendingar hafi tekið bókinni mjög vel. „Bókin á að höfða bæði til útlendinga og Íslendinga þó að hún sé skrifuð á ensku og megin- markhópurinn sé ferðamenn. Það má segja að Gullfoss og Geysir hafi náð sínum hápunkti, heimurinn þolir aðeins ákveðið mikið af því. Við erum í öðrum pælingum, við erum svolítið spes þjóð. Ferðamenn sem koma hingað nefna oft fólkið og andann sem svífur yfir vötnum,“ segir Heiðrún. Sérfræðingar í hamingju eru álitsgjafar Í bókinni má finna ráð frá nokkrum álitsgjöfum sem allir koma úr innsta hring Heiðrúnar og Hrefnu, eins og til dæmis faðir Heiðrúnar, Ólafur Sveinsson, þjónn og fjallagarpur, sem fagnaði sjötugsafmæli sínu í fyrra. „Það gildir í þessu eins og mörgu öðru að hafa skal það sem hendi er næst,“ segir Heiðrún. „Við tölum við sérfræðinga í hamingjunni, en eins og við segjum í bókinni þá eru þeir skilgreindir sem venjulegir Íslendingar.“ Álitsgjafarnir eru af báðum kynjum, á aldrinum 14 til 93 ára, búa bæði í sveit og borg og í bókinni má finna tilvitnanir frá þeim um í hverju ham- ingjan er fólgin. Vinir skipta okkur miklu máli eins og sjá má af tveimur tilvitn- unum álitsgjafa: „Ég er hamingjusamur þegar ég er með vinum mínum,“ segir Arnaldur, 14 ára, og „Ég er hamingjusöm þegar ég hugsa um vini mína,“ segir Margrét, 93 ára. Hamingjuaukandi æfingar Í bókinni sem fæst í helstu bóka- og ferðamannabúðum má meðal annars finna hamingjuaukandi æfingar. „Við viljum setja fræðin í samhengi við daglegt líf því það eru venjulegir Íslendingar sem svara þessum spurningum, þess vegna fáum við þetta háa skor. Við viljum vera upplýsandi, skemmtilegar og gefa fólki tækifæri á að auka eigin ham- ingju með léttum æfingum.“ Hamingjuvísir Kápa bókarinnar er létt og skemmtileg. Hamingjunnar leitað Heiðrún og Hrefna voru hressar þrátt fyrir veðrið, enda ekkert til sem heitir vont veður, ef maður er vel klæddur. Mynd Sigtryggur Ari Brugðið á leik Vinir eru eitt af því sem gerir okkur ham- ingjusöm og þær stöllur eru miklar vinkonur.Mynd Sigtryggur Ari H-in tvö Heiðrún og Hrefna geisla af heilbrigði og hamingju og í nýrri bók þeirra leitast þær við að finna svarið við hvað gerir Íslendinga hamingjusama. Mynd Sigtryggur Ari „Hugsaðu minna, lifðu meira. – Guðbjörg, 48 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.