Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 64
Hamingjuvísir
Heiðrúnar
og Hrefnu
Hamingja Íslendinga í skemmtilegum búningi
Vinkonurnar Heiðrún Ólafsdóttir og Hrefna Guðmundsdóttir gáfu nýlega út bókina
„Why Are Icelanders So Happy?“, þar sem þær setja fram á léttan og skemmtilegan
hátt hvað það er sem gerir okkur að þriðju hamingjusömustu þjóð í heimi. Bókinni er
beint að ferðamönnunum sem sækja landið heim, en hún á þó erindi við okkur öll,
því hvað er betra en að kynna sér hamingjuna og auka hana með öllum ráðum.
Hrefna kom með hug-myndina að bókinni og við fórum að skoða hvað
það er sem gerir okkur svona
hamingjusöm og ákváðum að færa
það til ferðamannanna sem hingað
koma,“ segir Heiðrún, en ekki leið
langur tími frá því að hugmyndin
fæddist og þar til bókin var tilbúin.
„Þetta gerðist mjög hratt, enda var
hugmyndin góð.“
Hrefna er félagssálfræðingur og
er búin að kynna sér hamingjuna í
nokkur ár, bæði í jákvæðri sálfræði
og hamingjufræðum, auk þess sem
hún hefur haldið úti vefsíðunni
hamingjuvisir.is um nokkurra
ára skeið. Hrefna tók því að sér
fræðilega hlutann, en Heiðrún, sem
starfar sem rithöfundur og þýðandi
tók að sér textann. Heiðrún vinnur
nú að þýðingu erlendrar skáldsögu
og er að leggja lokahönd á eigin
ljóðabók sem væntanleg er í haust,
en áður hefur hún sent frá sér eina
skáldsögu og nokkrar ljóðabækur.
Íslendingar koma vel út í
hamingjurannsóknum
„Það var einhver sem sagði
að við værum kannski svona
hamingjusöm af því að við
værum svo lygin. Við byggj-
um hins vegar bókina á
niðurstöðum hamingju-
rannsókna sem við
höfum skorað hátt
í undanfarin ár
og förum aðeins
í gegnum hvað
það er sem
gerir okkur
hamingjusöm
og af hverju
við erum
svona ham-
ingjusöm.
Hvað gerir
það að verkum
að við skorum
svona hátt í þess-
um rannsókn-
um. Við setjum
upplýsingarnar
fram á léttan
og skemmti-
legan hátt,“
segir Heiðrún
og bætir við
að Íslendingar hafi tekið bókinni
mjög vel. „Bókin á að höfða bæði
til útlendinga og Íslendinga þó að
hún sé skrifuð á ensku og megin-
markhópurinn sé ferðamenn. Það
má segja að Gullfoss og Geysir hafi
náð sínum hápunkti, heimurinn
þolir aðeins ákveðið mikið af því.
Við erum í öðrum pælingum, við
erum svolítið spes þjóð. Ferðamenn
sem koma hingað nefna oft fólkið
og andann sem svífur yfir vötnum,“
segir Heiðrún.
Sérfræðingar í hamingju eru álitsgjafar
Í bókinni má finna ráð frá
nokkrum álitsgjöfum sem allir
koma úr innsta hring Heiðrúnar
og Hrefnu, eins og til dæmis
faðir Heiðrúnar, Ólafur Sveinsson,
þjónn og fjallagarpur, sem fagnaði
sjötugsafmæli sínu í fyrra. „Það
gildir í þessu eins og mörgu öðru
að hafa skal það sem hendi er
næst,“ segir Heiðrún. „Við tölum
við sérfræðinga í hamingjunni, en
eins og við segjum í bókinni þá eru
þeir skilgreindir sem venjulegir
Íslendingar.“
Álitsgjafarnir eru af báðum
kynjum, á aldrinum 14 til 93
ára, búa bæði í sveit og
borg og í bókinni má
finna tilvitnanir frá
þeim um í hverju ham-
ingjan er fólgin.
Vinir skipta okkur
miklu máli eins og sjá
má af tveimur tilvitn-
unum álitsgjafa: „Ég
er hamingjusamur
þegar ég er með vinum
mínum,“ segir Arnaldur,
14 ára, og „Ég er
hamingjusöm þegar ég hugsa um
vini mína,“ segir
Margrét,
93 ára.
Hamingjuaukandi æfingar
Í bókinni sem fæst í helstu bóka-
og ferðamannabúðum má meðal
annars finna hamingjuaukandi
æfingar. „Við viljum setja fræðin
í samhengi við daglegt líf því það
eru venjulegir Íslendingar sem
svara þessum spurningum, þess
vegna fáum við þetta háa skor.
Við viljum vera upplýsandi,
skemmtilegar og gefa fólki
tækifæri á að auka eigin ham-
ingju með léttum æfingum.“
Hamingjuvísir
Kápa bókarinnar er
létt og skemmtileg.
Hamingjunnar
leitað Heiðrún og
Hrefna voru hressar
þrátt fyrir veðrið,
enda ekkert til sem
heitir vont veður, ef
maður er vel klæddur.
Mynd Sigtryggur Ari
Brugðið
á leik Vinir
eru eitt af
því sem gerir
okkur ham-
ingjusöm og
þær stöllur
eru miklar
vinkonur.Mynd
Sigtryggur Ari
H-in tvö Heiðrún og Hrefna geisla af heilbrigði
og hamingju og í nýrri bók þeirra leitast þær
við að finna svarið við hvað gerir Íslendinga
hamingjusama. Mynd Sigtryggur Ari
„Hugsaðu
minna, lifðu
meira.
– Guðbjörg, 48 ára