Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 38
38 menning Helgarblað 23. júní 2017 T ónlistarhátíðin Secret Sol- stice var haldin í fjórða skipi um þjóðarhátíðar- helgina. Hátíðin hefur smám saman fest sig í sessi sem stærsta tónlistar hátíð landsins – og eina hefðbundna sumartón- listarhátíðin að evrópskum sið. Að halda slíka hátíð árlega í almenn- ingsgarði í Reykjavík er metnaðar- fullt markmið og fagna því eflaust allir sem vilja sjá fjölskrúðugt og lifandi menningarlíf í borginni. Þrátt fyrir fjölmarga ljósa punkta og góðar stundir hafa fyrstu árin að mörgu leyti gengið brösuglega. Skipulag svæðis- ins hefur verið misvelheppnað og því umturnað í hvert skipti, ýmsar skemmtilegar hugmyndir verið illa framkvæmdar, upplýs- ingaflæði hefur oft og tíðum ver- ið lélegt og hámarki náði vesenið í alræmdu raðafargani á hátíðinni í fyrra. Kannski er það þess vegna sem gestir voru umtalsvert færri á hátíðinni í ár en maður hefði von- að – og margir þeirra virtust í þokkabót vera á gjafa- eða afsláttarmiðum. Þetta er synd því að í ár fannst mér hátíðin loksins finna takt- inn sinn. Hátíðarsvæðið er tals- vert betur uppsett og skemmti- legar skipulagt en áður. Í fyrsta skipti var allt svæðið á grasi (fyrir utan klúbbasvæðið sem er stað- sett inni í nýju Laugardalshöllinni til að lágmarka hávaðann í hverf- inu), Valbjarnarvöllur og svæð- ið í kringum heitu þvottalaugarn- ar var frábær viðbót, fjarlægðirnar milli sviða voru litlar en þrátt fyrir það truflaði hljóð frá nærliggjandi tónleikasviðum ekki, að minnsta kosti ef maður kom sér fyrir fram- an sviðið og hæfilega nálægt því. Dagskrá hátíðarinnar var líka fjölbreytt. Sem áður sinnir hátíðin hip-hopinu og danstónlistinni vel og að minnsta kosti í fyrrnefndu tónlistarstefnunni var mikið um erlenda gullmola, Princess Nokia, Novelist, Roots Manuva og Big Sean svo nokkrir séu nefndir. Sól- stöðuhátíðin sækir þó í auknum mæli einnig inn á almenna (rokk) tónleikahátíðamarkaðinn með því að flytja inn gamlar lummur á borð við Foo Fighters, Richard Ashcroft úr The Verve og The Prodigy. Þó að meðalaldur hafi varla verið langt yfir tvítugu var demógrafían þó nokkuð fjölbreytt á þessum tónleikum og gaman að sjá heilar fjölskyldur mæta á svæðið að deginum til. Það er enda ekkert lykilatriði að vera sérstakur unnandi tónlistar- innar sem kemur úr hátölurunum, heldur er það ekki verri skemmt- un að setjast niður í grasið og fylgj- ast með fólkinu, þarna fær maður tísku og stemningu samtímans al- gjörlega í æð. Bleikur var augljós- lega litur hátíðarinnar í ár, strákar gengu með fastar fléttur og gull- keðjur, stelpur voru með skærlitað hár, það var mikið veipað, kanna- bislyktin var víða, gallajakkar og kringlótt sólgleraugu voru áber- andi, sem og hvít geimverugler- augu eins og þau sem Kurt Cobain notaðist við á tíunda áratugnum. Skrýtnasti rappari Gana Fyrsti hápunktur hátíðarinnar fyrir mig kom á föstudeginum. Eftir skýfall fyrr um daginn byrjaði sólin skína svo að segja um leið og Ata Kak og hljómsveit hans byrj- aði að spila á sviðinu sem nefnt hefur verið Gimli – næststærsta útisviði hátíðarinnar. Leið þessa ganíska tónlistarmanns til Íslands er ansi löng og merkileg. Upp úr aldamótum rákust aðstandendur Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is n Vel heppnuð Secret Solstice n Anderson .Paak, Ata Kak og Birnir stóðu upp úr Takturinn fundinn Anderson .Paak og hljómsveitin The Free Nat ionals voru óaðfinnanlega þéttir á stóra sv iðinu á sunnudagskvöldinu Mynd Secret SolStice / BirtA rán Birnir var svalur og kraftmikill þegar hann kom fram á föstudagskvöldinu Mynd Secret SolStice / áSGeir HelGi Ata Kak frá Gana rappaði sínar skúbbí-dú rímur og dillaði sér með dansvænum skemmtaratöktunum Mynd Secret SolStice / BirtA rán „Mér fannst hátíðin í ár loksins vera að finna taktinn sinn Mynd Secret SolStice / BirtA rán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.