Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 20
20 sport Helgarblað 23. júní 2017 Væri ekta íslenskt að fara alla leið F reyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í gær 23 manna hóp sinn fyrir Evrópumótið í Hollandi sem hefst í næsta mánuði. Fyrsti leik- ur Íslands er gegn Frakklandi þann 18. júlí en þar á eftir koma leikir gegn Sviss og Austurríki. Liðið setur stefnuna á að koma sér upp úr riðl- inum sem gæti reynst erfitt en liðið hefur þó sýnt að í því býr magnað- ur karakter sem getur komið liðinu langt. Freyr er að gera hlutina í fyrsta sinn og er að fara með liðið í fyrsta sinn á stórmót. „Þetta var erfitt fyrir mig, það er nýtt fyrir mig að velja lokahóp. Ég hafði reynslu af því að vera í kringum Lars Lager- bäck og Heimi Hallgrímsson í fyrra, það er ótrúlega margt sem mað- ur þarf að pæla í til þess að vera ánægður með niðurstöðu sína. Það voru nokkrar erfiðar ákvarðan- ir þarna,“ sagði Freyr eftir að hann valdi hópinn í gær. Gríðarleg meiðsl hafa herjað á íslenska liðið síðustu mánuði og spurningarmerkin hafa verið afar mörg. Besti leikmaður Íslands í mörg ár, Margrét Lára Viðarsdóttir, meiddist til að mynda á dögunum. Frá því að liðið komst inn á mótið hefur því staðan breyst mikið og Freyr hefur þurft að taka á mörgum erfiðum málum. „Ef ég hefði skrif- að niður lista þegar við komumst inn á mótið væri hann eflaust tölu- vert breyttur. Miðað við hvaða leik- mönnum við vorum að spila á og voru í hóp þá er ýmislegt búið að breytast. Ég er komin yfir þær pæl- ingar og við erum búin að ná rosa- lega góðum tökum á því sem við erum að gera, andrúmsloftinu í hópnum og þeim hlutum sem við urðum að ná tökum á. Það gekk og mér finnst liðið kraftmikið og það er töffaragangur í því.“ Harpa klár nokkrum mánuðum eftir barneign Harpa Þorsteinsdóttir er ein af þeim sem er í hópnum en hún var stórt spurningarmerki. Hún eign- aðist barn fyrir nokkrum mánuð- um en er mætt inn á völlinn á nýjan leik. Hún er liðinu afar mikil væg eins og sást í undankeppni EM þar sem hún var markahæsti leikmað- ur liðsins. „Ég met stöðuna fyrst og fremst þannig að hún er frábær leikmaður, hún er markaskorari. Hún er í góðu líkamlegu standi en það vantar kraft, við getum hjálp- að henni með það. Við munum ásamt styrktarþjálfaranum gera allt sem við getum og svo verðum við að sjá hversu langt hún er kom- in og hversu mikið við getum not- að hana. Hún var markahæsti leik- maður liðsins í undankeppninni og stjarna liðsins, hún þurfti að fá að vita að hún væri að koma inn á ákveðnum forsendum með hlut- verk sem er kannski fyrir einhverj- um minna hlutverk en getur, fyrir okkur, verið gríðarlega mikilvægt hlutverk. Að koma inn í leiki með mikinn kraft í 15 til 30 mínútur, það er það hlutverk sem við sjá- um – að hún geti skilað inn hágæða frammistöðu í þann tíma. Þessir íþróttamenn eru keppnismenn og vilja alltaf spila, hún var frábær á fundinum þegar við ræddum þessi mál. Hún er svo klár í þetta og veit hvað þetta skiptir miklu máli, hún er klár í að gera þetta eins og meist- ari." Hólmfríður kann sitt hlutverk Annar leikmaður sem er að stíga upp úr meiðslum er Hólmfríður Magnúsdóttir en hún er klár á nýj- an leik eftir meiðsli en verður ekki lykilmaður. „Hólmfríður kemur inn sem vængbakvörður, okkur vantaði kröftugan leikmann í þá stöðu. Ef það er eitthvað sem Hólmfríður hef- ur þá er það kraftur og styrkur, hún á aðeins í land með formið. Lykilatriði fyrir hana var að átta sig á í hvaða hlutverki hún verður, hún er ekki að fara þarna inn sem byrjunarliðs- maður. Hún þarf að veita öðrum að- hald, koma inn í stuttan tíma í fram- línuna. Hún var sátt við þetta og tók þessu hlutverki, reynslan skipti líka máli. Við erum búin að missa út mikið af reynslu og það hjálpaði að hún hefur mikla reynslu.“ Sandra sýndi hroka sem virkaði Sandra María Jessen er einnig í hópnum en eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum er hún mætt til leiks og hefur raðað inn mörk- um fyrir Þór/KA. „ Sandra hefur náð ótrúlegum bata, hún hefur sýnt einstakt dæmi um endurkomu eftir erfið meiðsli. Ég kunni að meta hrok- ann í henni í öllum viðtölum, hún var ekki dónalegt eða neitt slíkt. Hún sýndi bara að hún er klár í þetta og hún ætlaði sér þetta, hún hefur svo skilað inn mjög góðri frammistöðu og mörkum. Það sem hún hefur svo fram yfir leikmenn á hennar aldri sem eru að spila þessa leikstöðu sem fremsti maður er að hún er góð- ur skallamaður, við þurfum mörk úr föstum leikatriðum og einhvern til að vera klár á fjærstönginni.“ Helmingsmöguleikar Freyr segir möguleika liðsins á að fara áfram vera talsverða en seg- ir að allt geti gerst. „Eigum við ekki að segja að það sé 50/50, sumir segja við mig að ég eigi að draga úr væntingum en aðrir segja við mig að við eigum að fara upp úr riðl- inum. Ég veit ekki alveg hvernig við eigum að horfa á þetta, við för- um inn í mótið með það markmið og erum grjóthörð á því við ætlum upp úr riðlinum. Það verður vissu- lega erfitt og það þurfa hlutir að detta með okkur, það er augnablik- ið sem við þurfum að skapa. Leikirn- ir munu ráðast á litlum atriðum. Ef við förum áfram í útsláttarkeppnina er það svo ekta íslenskt að fara bara alla leið. Það er stórhættulegt að fara að reikna út einhver stig hér og þar, ég var einu sinni á ferli mínum sem leikmaður með þjálfara sem fór að reikna út stigin og það var algjör vit- leysa. Við verðum að einbeita okk- ur að einum leik í einu, ef við tökum þrjú stig gegn Frakklandi er það bara geggjað. Það reiknar ekki neinn með því, við erum ekki með nein gefins stig. Það er þvæla að hugsa þannig, það þarf fimm stig til að komast upp úr riðlinum. Við þurfum bara að sækja þau sama hvernig það er gert.“ Öflugt starfslið Freyr fer með 18 manna starfslið á mótið sem er ansi gott, á meðal þeirra sem aðstoða hann eru Heim- ir Hallgrímsson, þjálfari karla- landsliðsins. „Það er mjög flott, vð erum búin að leggja mikla vinnu í að vera með gott starfslið. Við eru með reynslu í hópnum en líka með ungt fólk sem getur þroskast fyrir ís- lenskan fótbolta. Það eru 18 starfs- menn en eru þó ekki allir á staðn- um í einu, mönnum er skipt inn og út. Við erum með styrktarþjálf- ara, frábæra lækna og sjúkraþjálf- ara. Útsendara sem skoða liðin, ég held að við höfum ekki yfir neinu að kvarta. Ég er mjög ánægður.“ n Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is n EM hópur kvenna var opinberaður í gær n Erfiðar ákvarðanir fyrir þjálfarann Hópurinn sem fer á EM Markmenn Guðbjörg Gunnarsdóttir (Djurgården) Sandra Sigurðardóttir (Valur) Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðablik) Varnarmenn Anna Björk Kristjánsdóttir (LB07) Rakel Hönnudóttir (Breiðablik) Glódís Perla Viggósdóttir (Eskilstuna) Hallbera Guðný Gísladóttir (Djurgården) Sif Atladóttir (Kristianstad) Ingibjörg Sigurðardóttir (Breiðablik) Arna Sif Ásgrímsdóttir (Valur) Miðjumenn Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) Sara Björk Gunnarsdóttir (Wolfsburg) Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Valerenga) Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV) Málfríður Erna Sigurðardóttir (Valur) Agla María Albertsdóttir (Stjarnan) Hólmfríður Magnúsdóttir (KR) Dagný Brynjarsdóttir (Portland) Sóknarmenn Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan) Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik) Elín Metta Jensen (Valur) Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan) Sandra María Jessen (Þór/KA) „Þessir íþrótta- menn eru keppn- ismenn og vilja alltaf spila. MYnD SIGtRYGGuR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.