Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 6
6 Helgarblað 23. júní 2017fréttir
N1 Borgarnesi
Hamborgaratilboð: Ostborgaramál-
tíð sem samanstendur af ostborgara,
frönskum og gosi úr vél (frí áfylling)
1.755 kr. (1.395 kr.)
Pylsa með öllu: 390 kr. (325 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 298 kr. (259 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 365 kr. (310 kr.)
Prins Polo XXL: Ekki til
Baulan, Borgarfirði
Hamborgaratilboð: Ostborgari, franskar, kok-
teilsósa og súperdós kostar 1650 kr. (1.450 kr.)
Pylsa með öllu: 415 kr. (380 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 300 kr. (255 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 320 kr. (295 kr.)
Prins Polo XXL: 205 kr. (195 kr.)
Söluskálinn Freysnesi
Hamborgaratilboð: Ostborgari,
franskar og gos 1.490 kr. (1.490 kr.)
Pylsa með öllu: Pylsur ekki seldar
Kók í plasti 0,5 l: 295 kr. (260 kr.)
Lítill ís í brauðformi: Selja ekki ís
Prins Polo XXL: Ekki til
Víkurskáli, Vík í Mýrdal
Hamborgaratilboð: Ostborgari,
franskar og gos í vél 1.545 kr. (1.095 kr.)
Pylsa með öllu: 400 kr. (300 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 295 kr. (265 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 270 kr. (220 kr.)
Prins Polo XXL: 200 kr. ( 165 kr.)
Litla kaffistofan
Hamborgaratilboð: Ekki í boði
Pylsa með öllu: 400 kr. (350 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 300 kr. (270 kr.)
Lítill ís í brauðformi: Ekki til
Prins Polo XXL: 250 kr. (200 kr.)
Arnberg, Selfossi
Hamborgaratilboð: Ostborgari, franskar
og kók kostar 1.551 kr.. Ef gosinu er sleppt
kostar máltíðin 1.290 kr. (1.095 kr.)
Pylsa með öllu: 369 kr. (310 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 315 kr. (259 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 295 kr. (265 kr.)
Prins Polo XXL: 205 kr. (185 kr.)
Söluskálinn, Flateyri
Hamborgaratilboð: Hamborgari, franskar
og kokteilsósa kostar 1.250 kr. (1.200 kr.)
Með gosi kostar máltíðin 1.525 kr.
Pylsa með öllu: 350 kr. (300 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 275 kr. (275 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 360 kr. (270 kr.)
Prins Polo XXL: 200 kr. (200 kr.)
Hamraborg, Ísafirði
Hamborgaratilboð: Hamborgari,
franskar, gos í dós 1.499 kr. (1.099 kr.)
Pylsa með öllu: 420 kr. (320 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 299 kr. (265 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 399 kr. (350 kr.)
Prins Polo XXL: 250 kr. (200 kr.)
N1, Staðarskáli
Hamborgaratilboð: Ostborgaramál-
tíð, ostborgari, franskar og gos úr vél
(frí áfylling) 1.755 kr. (1.395 kr.)
Pylsa með öllu: 390 kr. (325 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 298 kr. (259 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 365 kr. (325 kr.)
Prins Polo XXL: 195 kr. (189 kr.)
N1, Blönduósi
Hamborgaratilboð: Ostborgari, franskar og gos úr
vél (frí áfylling) 1.755 kr. (1.395 kr.)
Pylsa með öllu: 390 (325 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 298 (259 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 365 (300 kr.)
Prins Polo XXL: 195 kr. (189 kr.)
KS, Varmahlíð
Hamborgaratilboð: Ostborgari,
franskar, kokteilsósa og gos úr vél (frí
áfylling) á 1.400 kr. (1.240 kr.)
Pylsa með öllu: 380 kr. (320 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 289 kr. (250 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 380 kr. (240 kr.)
Prins Polo XXL: 150 kr. (140 kr.)
Ak-inn, Akureyri
Hamborgaratilboð: Ostborgari, franskar og
0,5 l af gosi (hvað sem er) á 1.550 kr. (1.390 kr.)
Pylsa með öllu: 430 kr. (320 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 300 kr. (270 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 390 kr. (320 kr.)
Prins Polo XXL : 230 kr. (140 kr.)
Olís söluskáli, Reyðarfirði
Hamborgaratilboð: Ostborgari og franskar 1.299
kr. (1.020 kr.) Með gosi kostar máltíðin 1.614 kr.
Pylsa með öllu: 369 kr. (310 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 315 kr. (259 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 295 kr. (265 kr.)
Prins Polo XXL: 205 kr. (189 kr.)
Við voginn, Djúpavogi
Hamborgaratilboð: Hamborgari, franskar
og kokteilsósa 1.600 kr. (1.550 kr.)
Með gosi kostar máltíðin 1.870 kr.
Pylsa með öllu: 400 kr. (350 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 270 kr. (260 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 300 kr. (250 kr.)
Prins Polo XXL: 170 kr. (Ekki til)
Tvisturinn í Vestmannaeyjum
Hamborgaratilboð: Ostborgari, franskar, kok-
teilsósa og 0,5 l af gosi kostar 1.590 kr.
Pylsa með öllu: 420 kr.
Kók í plasti 0,5 l: 320 kr.
Lítill ís í brauðformi: 420 kr.
Prins Polo XXL: 270 kr.
Kría veitingasala, Eskifirði
Hamborgaratilboð: Ostborgari með osti og græn-
meti kostar 890 kr. Franskar 400 kr. Samtals 1.190
kr. (890 kr.) Með gosi kostar máltíðin 1.500 kr.
Pylsa með öllu: 400 kr. (360 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 310 kr. (260 kr.)
Lítill ís í brauðformi: 300 kr. (250 kr.)
Prins Polo XXL: 230 kr. (230 kr.)
Verslunin Ásbyrgi
Hamborgaratilboð: Ostborgari með frönsk-
um og kokteilsósu er á 1.690 kr. (1.450 kr.)
Með gosi kostar máltíðin 1.940 kr.
Pylsa með öllu: 450 kr. (395 kr.)
Kók í plasti 0,5 l: 250 kr. (250 kr.)
Lítill ís: Ekki seldur úr vél
Prins Polo XXL: 130 kr. (180 kr.)
Kantína við Geysi í Haukadal
Hamborgaratilboð: Hamborgari/kjúklingaborgari kostar stakur 990 kr.
Með frönskum kostar borgarinn 1.390. Þá er hægt að fá gos úr vél á 290
kr. Samtals 1.680 kr. fyrir hamborgara, franskar og gos úr vél
Pylsa með öllu: Pylsur ekki seldar
Kók í plasti 0,5 l: 390 kr.
Lítill ís í brauðformi: Ekki seldur úr vél
Prins Polo XXL: Ekki til
Ó
dýrasta hamborgaratilboðið,
með gosi, er hjá KS í Varma-
líð. Það kostar 1.400 krónur.
Innifalið í verðinu er ham-
borgari, franskar, kokteilsósa og
hálfur lítri af gosi í dós. Ódýrustu
pylsuna er að finna í Söluskál-
anum á Flateyri. Þar kostar pylsa
með öllu 350 krónur samkvæmt
verðkönnun DV á nokkrum vin-
sælum skyndibitum í vegasjopp-
um víðs vegar um landið. Dýrasta
hamborgaratilboðið er hins vegar
að finna í Versluninni Ásbyrgi. Þar
kostar hamborgari, með osti og
grænmeti, 1.690 krónur. Með gosi
myndi máltíðin þá kosta 1.940
krónur. Dýrasta pylsan er einnig
seld í Versluninni Ásbyrgi. Þar
kostar hún, með öllu, 450 krónur.
Slegið var á þráðinn til 18
veitingaskála og vegasjoppa um
landið og fengið verð á þeim
veitingum sem ferðalangar eru
líklegir til að kaupa á ferðalög-
um. Flestir tóku vel í erindi blaða-
manns og gáfu fúslega upp verð á
tilteknum vörum. Tekið skal fram
að ekki var lagt mat á gæði eða
þjónustu í þessari könnun.
Allir hafa hækkað verð
DV gerði síðast sambærilega
könnun sumarið 2014. Allar
vegasjoppurnar hafa hækkað verð
síðan, mismikið þó. Eina verslun-
in sem lækkaði verð á milli ára var
Verslunin Ásbyrgi. Aðeins var um
eitt verð að ræða og það á Prins
Polo XXL. Árið 2014 kostaði það
180 krónur en í dag kostar það 130
krónur.
Ódýrasta hamborgaratilboð-
ið (hamborgari og franskar að
frátöldu gosi) árið 2014 fékkst í
Víkurskála í Vík í Mýrdal og kost-
aði þá 1.095 krónur. Nú kostar
sambærilegt tilboð, í Víkurskála,
1.290 krónur. Með gosi úr vél er
verð á hamborgaratilboði, í Víkur-
skála,1.545 krónur. Tölurnar inn-
an sviga tákna verð í úttekt DV árið
2014.
Dýrasti ísinn í Vestmannaeyjum
Ódýrasti ísinn fæst í Víkurskála
í Vík í Mýrdal. Þar kostar
lítill ís í brauðformi
270 krónur. Dýrasta ís-
inn er hins vegar seldur
í Tvistinum í Vestmannaeyjum en
þar kostar lítill ís 420 krónur. Þá
er verð á Prins Polo nokkuð fjöl-
breytt. Ódýrasta XXL Prins Polo-
ið kostar 170 krónur í vegasjopp-
unni Við voginn á Djúpavogi.
Dýrasta Prins Polo-súkkulaðið
af sömu stærð fæst í Tvistinum í
Vestmannaeyjum og kostar 270
krónur. n
Dýrasta hamborgara-
máltíðin er í Ásbyrgi
Kristín Clausen
kristin@dv.is
n Verðkönnun DV á vegasjoppum n Flestir hafa hækkað verð