Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 23. júní 2017fréttir
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl
Á
sta Guðrún Helgadóttir er
ekki einangruð frá þing-
flokki Pírata heldur öfugt.
Þetta segir Smári McCarthy,
ritari þingflokks Pírata. Ásta hafi
ákveðið að stíga út fyrir þingflokk-
inn og standa ein sér, um sinn, en
Smári vonast til að hún komi til
baka. Ásta vildi í samtali við DV
hvorki játa þessu né neita.
Það vakti athygli þegar Ásta
Guðrún greindi frá því um
miðjan síðasta mánuð að hún
hefði ákveðið að stíga til hliðar
sem þingflokksformaður Pírata.
Ástæðurnar væru ágreiningur
„milli mín og meirihluta þing-
flokks Pírata varðandi innra
skipulag þingflokksins,“ sagði Ásta
Guðrún í færslu á Facebook þar
sem hún greindi frá málinu. Mun
Ásta Guðrún hafa haft aðra sýn en
meirihluti þingflokksins á hvert
hlutverk þingflokksformanns ætti
að vera. Vilji meirihluta þing-
flokks Pírata mun hafa verið að
dreifa valdi í meira mæli en verið
hafði en Ásta Guðrún var þeirrar
skoðunar affarasælast væri að
þingflokksformaður sinnti innra
skipulagi þingflokksins og væri
einnig talsmaður flokksins gagn-
vart þinginu og öðrum flokkum.
Eðlilegast væri að þessi hlutverk
væru á sömu hendi.
„Sumir verða smá fúlir“
Talsverð umræða hefur verið um
innanmein Pírata og því hefur
verið haldið fram fullum fetum að
flokkurinn sé ósamstíga, að þar
séu persónulegar erjur og lausa-
tök á stjórnun. Smári McCarthy,
ritari þingflokks Pírata, segir að
svo sé ekki, í stórum dráttum.
Hins vegar hafi Ásta Guðrún dreg-
ið sig út úr starfi þingflokksins, í
það minnsta tímabundið.
Smári segir að deilur um
skipulag og starf þingflokksfor-
manns, líkt og þær sem opinber-
uðust þegar Ásta Guðrún steig til
hliðar, megi rekja til þess hversu
ungur flokkur Píratar er og hversu
mikið flokkurinn hafi stækkað í síð-
ustu kosningum. „Eðli starfsins,
formanns þingflokks, er tvíþætt.
Annars vegar þættir sem snúa að
skipulagi starfs þingflokksins og
hins vegar pólitískt starf út á við,
svo sem samstarf við aðra þing-
flokka. Það eru ákveðnir þættir
þessa starfs sem þurfa á því að
halda að vera samþættir, og hugs-
anlega sinnt af sömu manneskju.
Aftur held ég að öðru leyti sé hægt
að skipta þessu starfi upp, og spurn-
ingin er sú hvernig það sé eðlilegt.
Við stækkuðum það mikið í síðustu
kosningum að það tekur bara tíma
fyrir okkur að finna það skipulag
sem hentar okkur. Við komum ný
til leiks, þurfum að læra þetta allt
saman, og stundum kostar það að
sumir verða smá fúlir.“
Á að nota sumarið til
að leysa ágreining
Hvað varðar fullyrðingar um
pólitískan ágreining innan þing-
flokksins neitar Smári að svo
sé. „Það er ekki ágreiningur um
pólitísk málefni en auðvitað kem-
ur fyrir að fólk er ekki sammála
um hvernig vinna eigi í ákveðnum
málum. Það er bara eðlilegt og
unnið í því. Það sem hefur verið
ágreiningur um er innra skipulag
og það er ágreiningur sem við
erum að nota sumarið í að leysa og
finna verkferla sem henta okkur.“
„Hún valdi þetta sjálf“
Hvað varðar persónulegan ágrein-
ing þá sé ekki um neitt stórmál
að ræða, segir Smári. Auðvitað
þurfi fólk tíma til að læra að vinna
saman en hann hafi ekki tekið
eftir persónulegum ágreiningi
milli fólks. Það rímar ekki við full-
yrðingar um að að Ásta Guðrún
sé einangruð frá þingflokki Pírata,
bæði málefnalega og persónu-
lega, sem DV hefur heimildir fyrir.
Málefnalega hallist hún nær Sam-
fylkingu og Vinstri grænum oft á
tíðum og persónulega sé hún ein-
angruð frá öðrum þingmönnum
Pírata. Aðspurður neitar Smári
þessu ekki en segir að vilji þing-
flokksins standi til þess að Ásta
komi þar inn af fullum þunga að
nýju.
„Satt að segja hefur hún
ákveðið sjálf að standa aðeins sér,
í ákveðinn tíma. Hún verður að
skýra það sjálf. Mér finnst sjálfum
ekki vera nein góð ástæða fyrir því
en hún er ekki einangruð frá okkur
heldur öfugt. Hún valdi þetta sjálf
en ég vona að það klárist sem fyrst
því það er heilmikil vinna sem þarf
að fara í og við þurfum að hafa
hana með í því.“
DV hafði samband við Ástu Guð-
rúnu sem vildi ekki tjá sig um málið
en neitaði hvorki né játaði þessari
lýsingu Smára á stöðunni. n
Ásta Guðrún sögð hafa
einangrað sig frá Pírötum
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Segir ekki málefnalegan ágreining innan þingflokksins Smári McCarthy, ritari
þingflokks Pírata, segir ekkert hæft í því að Píratar séu málefnalega ósammála. Hins vegar
hafi verið ágreiningur um innra skipulag sem unnið sé að því að leysa.
n Vék sem þingflokksformaður eftir deilur n Er sögð einangruð pólitískt og persónulega„Við komum
ný til leiks,
þurfum að læra
þetta allt saman.
Vill ekki tjá sig
Ásta Guðrún Helga-
dóttir vill ekki tjá sig
um fullyrðingar sam-
flokksmanns hennar
um að hún hafi sjálf
einangrað sig frá
þingflokki Pírata.