Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Qupperneq 26
26 fólk - viðtal Helgarblað 23. júní 2017 fylgja þeirri tilfinningu hans.“ Nú eru aðrir ritstjórar á Morgun- blaðinu, Davíð Oddsson og Har- aldur Johannessen. Hefur það hent að þú hafir sent þeim athugasemd- ir vegna efnis blaðsins? „Ég einsetti mér þegar ég hætti á blaðinu að ég myndi aldrei plaga eftirmenn mína með athugasemdum. Ég þekkti sjálfur hvernig það var að sitja þarna og fá athugasemdir úr öllum áttum. Ég hef aldrei verið með neinar slíkar athugasemdir, hvorki við ritstjóra blaðsins né aðra.“ Þroskandi lífsreynsla Þú hefur skrifað um ýmislegt, þar af mikið um málefni þeirra sem glíma við geðræn veikindi og ástæðan er að kona þín, Sig- rún Finnbogadóttir, glímdi við slík veikindi. Þú skrifaðir bók um þau veikindi, Ómunatíð – saga um geð- veiki. Hvarflaði aldrei að þér að leyna þessum veikindum og vera ekki að skipta þér af þessum mál- um opinberlega? „Mín fyrstu viðbrögð þegar þetta kom upp í okkar lífi voru að þetta mætti enginn vita. Það var bara nokkuð sem ég hafði verið alinn upp við. Í móðurætt minni, sem er af Vestfjörðum, er geðveiki og slík vandamál útbreidd. Ég átti móður- systur sem var alvarlega geðveik og það var aldrei um það talað Smátt og smátt áttaði ég mig á því að það var ekki hægt að þegja um þetta. Það vissu allir að Sig- rún væri orðin geðveik. Þá fór ég að svara spurningum. Hins vegar fann ég enga þörf fyrir að skrifa neitt um þetta í Morgunblaðið fyrr en Tómas Helgason hafði samband við mig þegar bygging nýrrar geðdeildar Landspítalans var til umræðu. Ég lagði Tómasi svolítið lið þegar hann var að koma því í gegn. Það voru mín fyrstu afskipti á síðum Morgun- blaðsins af þessum málum. Hópur ungs fólks kom líka til mín og vildi vinna í þessum málum á öðrum nót- um en gert hafði verið. Það voru Elín Ebba Ásmundsdóttir, sem nú er með Hlutverkasetur, og Anna Valdimars- dóttir, sem stofnaði klúbbinn Geysi, en ég hjálpaði henni aðeins með það og beitti blaðinu í þágu þess málstaðar, Auður Axelsdóttir, sem nú er með Hugarafl, Héðinn Unn- steinsson, sem ungur fór að skrifa um þennan málaflokk, og fleiri. Þegar ég fór að fjalla um þessi mál opinberlega þá áttaði ég mig á því að það var fólk úti um allt sem var alið upp eins og ég; að um þetta talaði maður ekki. Ég fór að átta mig á að það væri hægt að hjálpa fólki með því að tala um þessi mál og þess vegna fór ég að gera meira af því. Ég hef ekki séð eftir því, ég hef fundið að það hefur þurft að opna þessa umræðu. Þessi lokun á umræðunni um sjúkdóminn var mikið farg á fólki sem glímdi við hann og aðstandendur þess.“ Það hlýtur að taka á að búa með manneskju sem glímir við þessi veikindi. „Auðvitað var þetta erfiðast fyrir hana. Þetta var líka erfitt fyrir mig og erfitt fyrir dætur okkar. En á ákveðnum tímapunkti áttaði ég mig á því að þessi lífsreynsla var þroskandi. Sennilega höfum við öll öðlast meiri víðsýni en ella. Ég man alveg hvernig ég var þegar ég var að byrja starf í Heimdalli. Ég var mjög þröngur í hugsun. Það getur vel verið að þessi lífsreynsla hafi gert að verk- um að mín hugsun hafi opnast og ég hafi verið betur fær um að sinna starfi mínu á Morgunblaðinu af þeim sökum heldur en ef ég hefði verið áfram hinn litli þröngi Heim- dellingur í hugsun. Svona lífsreynsla hverfur ekki. Hún fylgir manni til æviloka. Ég held reyndar að hún muni líka fylgja dætrum okkar til æviloka.“ Ævi forfeðranna Við erum búin að tala um pólitík- ina en hefurðu skoðanir í trúmál- um? „Ég hef aldrei komist í sam- band við Guð. Ég var að vísu send- ur í KFUM þegar ég var krakki, eins og var algengt í Vesturbæn- um. Það hafði engin sérstök áhrif á mig. Það var ekki talað um trú- mál á mínu heimili. Ég varð nokk- uð hissa þegar ég uppgötvaði að móðir mín hafði talað um trúmál við dætur mínar. Stundum hef ég verið hrifinn af kaþólsku kirkjunni sem stofnun. Mér hefur þótt einstaka páfar vera mjög merkilegir. Mér finnst núver- andi páfi merkilegur. Mér fannst Jóhannes Páll páfi 2 merkilegur og sömuleiðis Jóhannes 23. En mér hafa ekki þótt boðberar kristinnar trúar á Íslandi skera sig úr nema einn maður. Það er eini maðurinn sem hefur haft einhver áhrif á mig að þessu leyti sem var Sigurbjörn Einarsson biskup. Sumir vinir mínir hafa sagt mér að þeir vorkenni mér fyrir að vera ekki trúaður. Þá bara er það þannig. Maður lærir afskaplega margt í lífinu. Æ meir sæki ég í að kynna mér ævi forfeðra minna. Föður- amma mín var ættuð úr Skaftafell- sýslum og átti um skeið heima á bæ sem hét Eintúnaháls og er fjarri öllum öðrum bæjum í Vestur- Skaftafellssýslu. Mér er ómögu- legt að skilja hvernig fólk gat lif- að þar af. Þessi amma mín missti manninn sinn mjög snemma og ól upp fjögur börn þeirra og tvö börn hans af fyrra hjónabandi. Ég skil ekki enn þann dag í dag hvern- ig hún fór að því að byggja hús yfir börnin. Hún lifði á því að selja kost og rak saumastofu um skeið. Móðuramma mín var sveita- stúlka úr Djúpinu og afi minn reri á árabát frá Skálavík sem er fyrir vestan Bolungavík. Ég hef sótt á þessa staði báða. Einu sinni kom ég á bæ í Djúpinu sem langamma mín átti heima á. Þessi bær heitir Hagakot. Það var af- skaplega undarlegt að koma þang- að. Bærinn er í eyði en allt í einu fannst mér eins og ég hefði alltaf átt heima þar. Ég velti þessu fólki fyrir mér og lífi þess og því hvers konar líf þetta hefur verið á Íslandi fyrir hund- rað árum. Þá var ekki sjálfgefið að komast af. Það hefur verið mikill dugnaður í fólki hér á landi bæði á 19. öld og snemma á 20. öld. Þetta er merkilegt land og saga þessarar þjóðar er sömuleiðis merkileg. Mér finnst fólk þurfa að hafa sterkari tilfinningu fyrir þessari litlu þjóð, þessu landi og þessari sögu. Mér finnst of mikið um að fólk geri lítið úr Íslandi.“ n „Hvar er hinn frjálsi markaður á Íslandi sem við höfum talið okkur vera að berjast fyrir? „Mér finnst að það eigi að breyta stjórnskipun Íslands þannig að þjóðin sjálf taki allar meginákvarðanir í þjóðaratkvæðagreiðslu og þingið útfæri síðan þær ákvarðanir í löggjöf. Það sem ekki var talað um „Þessi lokun á umræðunni um sjúkdóminn var mikið farg á fólki sem glímdi við hann og aðstand- endur þess.“ Mynd Sigtryggur Ariw
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.