Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Síða 46
46 fólk Helgarblað 23. júní 2017
K
viðdómur komst ekki að
niðurstöðu í réttarhöldum
yfir leikaranum Bill Cosby
sem ákærður var fyrir að
hafa beitt konu kynferðisofbeldi
fyrir þrettán árum. Talið er lík
legt að málið verði tekið upp að
nýju. Við réttarhöldin sat hinn 79
ára gamli Cosby, sem er lögblind
ur, úti í horni og hreyfði sig varla
nema þegar hann hristi höfuðið
til að sýna tilfinningar sínar.
Maðurinn sem hefur verið
margverðlaunaður og heiðraður
og var eitt sinn hæst launaði sjón
varpsleikari Bandaríkjanna hefur
misst æruna. Það er ekki einungis
þetta eina mál sem fór fyrir dóm
sem hefur orðið honum að falli
því rúmlega fimmtíu konur hafa
ásakað hann um að hafa beitt sig
kynferðisofbeldi. Elstu ofbeldis
verkin áttu að hafa gerst á miðj
um sjöunda áratug síðustu aldar.
Hann er meðal annars sakaður
um nauðgun og að hafa byrlað
konum ólyfjan. Þar sem þessi mál
eru fyrnd munu þau ekki koma
fyrir dóm. Cosby neitar sök en
ljóst er að ímynd hans er stór
löskuð.
Ímyndin og sannleikurinn
Cosby fæddist árið 1937, einn
fjögurra bræðra. Faðir hans var
víðs fjarri öll stríðsárin og sinnti
hermennsku. Cosby hefur lýst sér
sem bekkjartrúðnum sem hafði
meiri áhuga á að bregða á leik og
grínast en að sinna náminu. Hann
var mikill íþróttamaður og hafði
yndi af leiklist og lék í skólaleikrit
um. Fjárhagur fjölskyldunnar var
ekki upp á það allra besta og hann
vann því með skóla, meðal annars
við skóburstun og raðaði vörum í
hillu í stórmarkaði. Þegar hann
vann sem barþjónn í Fíladelfíu
áttaði hann sig á hæfileikum sín
um til að koma fólki til að hlæja.
Hann ákvað að stíga á svið. Hann
varð frábær uppistandari sem
sagði iðulega fyndnar sögur sem
tengdust æsku hans. Fljótlega var
hann farinn að leika í sjónvarps
þáttum og kvikmyndum.
Í fimm ár var The Cosby Show,
sem sýndur var á árunum 1984–
1992, vinsælasti sjónvarpsþáttur
í Bandaríkjunum. Þættirnir fjöll
uð um afar geðþekka svarta milli
stéttarfjölskyldu og þóttu bæði
skemmtilegir og sjarmerandi.
Bill Cosby varð í hugum heims
byggðarinnar að hinum svarta
ameríska pabba sem trúði á
ákveðin gildi og mikilvægi þess að
berjast fyrir þau. Engan grunaði
hversu miklum skugga átti eftir að
verða varpað á þá ímynd.
Vinir og kunningjar Cosby vissu
að ímyndin var ekki alveg svona
hrein. Vitað var að Cosby væri
konu sinni, Camillu, ekki trúr en
hún er sögð hafa umborið fram
hjáhald hans meðan
hann væri ekki að
flagga því. Um 1980
átti hann í stuttu
ástarsambandi við
konu sem fæddi
dóttur og sagði
hann vera föður
inn. Hann harðneit
aði faðerni en borg
aði henni fyrir að
fara ekki með málið
í fjölmiðla. Rúmum
tuttugu árum síðar
var meint dóttir hans
dæmd í 26 mánaða
fangelsi fyrir að hafa
beitt hann fjárkúgun.
Ekkert DNApróf hef
ur verið framkvæmt
sem sannar eða af
sannar að Cosby sé
faðir hennar.
Með eiginkonu
sinni eignaðist Cosby
fimm börn, fjórar dæt
ur og einn son. Mikill
harmur var kveðinn
að fjölskyldunni árið
1997 þegar sonurinn
Ennis var myrtur þar
sem hann var að skipta um dekk
á bíl sínum í Los Angeles. Þetta
sama ár sagði Camilla um hjóna
band sitt: „Við Bill vorum ung
þegar við giftumst, hann var 26
ára, ég var 19 ára. Við þurftum
að þroskast, við þurftum að læra
hvað skilyrðislaust ást er og okkur
tókst það. Í hjónabandi okkar ríkir
gagnkvæm ást, virðing og traust.“
Afdrifarík kynni
Árið 2004 kynntist Cosby ungri
konu, Andreu Constand, og með
þeim tókst góð vinátta. Constand
er samkynhneigð og
var á þessum tíma í
sambandi með konu.
Hún segist ekki hafa
haft neinn áhuga á
ástarsambandi við
leikarann. Hún hafi
litið á Cosby sem
einlægan vin og gef
ið honum gjafir, þar
á meðal baðsalt
og boli. Cosby gaf
henni sömuleiðis
gjafir og bauð henni
í kvöldverði með
valdamiklum vin
um. Constand seg
ir hann tvisvar hafa
gerst nærgöngull
við sig. Kvöld eitt
heimsótti Constand
Cosby og hann gaf
henni þrjár töflur
sem áttu að hjálpa
henni að slaka á.
Töflurnar gerðu
hana máttvanda og að hennar
sögn setti Cosby hendur sínar á
brjóst hennar og kynfæri. Con
stand segist ekki hafa getað hreyft
sig, hún hafi verið eins og frosin.
Ári eftir að atvikið átti sér stað
bjó hún hjá foreldrum sínum í
Toronto og glímdi við svefnleysi,
þunglyndi og kvíða. Hún fékk
stundum martraðir og æpti upp úr
svefni. Hún einangraði sig frá vin
um sínum. Loks sagði hún móður
sinni hvað hefði gerst. Constand
fór í mál við Cosby sem sagði að
allt sem þarna hefði gerst hefði
verið með vilja hennar. Cosby náði
samkomulagi við Constand um
miskagreiðslur árið 2006. Málið
var síðan tekið upp síðasta sumar.
Þar stóð orð gegn orði. Fjölskylda
Cosby stóð með honum í málinu,
þar á meðal hin langþjáða eigin
kona. Dóttir þeirra, Ensa, segir að
rasismi hafi þarna komið við sögu
og segir föður sinn hafa verið tek
inn af lífi opinberlega.
Málið hefur reynst afdrifaríkt
fyrir Cosby. Fjölda samninga við
leikarann hefur verið rift, bæði
samningum um leik í nýjum þátt
um og endursýningum á gömlum
þáttum hans. Umboðsskrifsstofa
hans rifti sömuleiðis samningi við
hann.
Nú er Cosby frjáls maður. Hvort
svo verði lengi er hins vegar óljóst.
Það ætti hins vegar að vera ljóst að
ómögulegt verður fyrir leikarann
að endurheimta æruna. n
Ris og
fall
Bills
CosBy
Vinsæl fjölskylda The Cosby
Show var um tíma vinsælasti sjón-
varpsþáttur í Bandaríkjunum.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Ekkert fyrirmyndarhjónaband Cosby með
eiginkonu sinni Camillu.
Með þeim er leikkonan Ruby Dee.