Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 50
Þjóðhátíðar-
brúðkaup
arons einars
& kristbjargar
Brúðkaup sumarsins fór fram á sjálfan þjóðhátíðardaginn þegar Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karla-
landsliðsins í fótbolta og leikmaður Cardiff,
og Kristbjörg Jónasdóttir, afrekskona í fitness
og einkaþjálfari, gengu í hjónaband. Brúð-
kaupið var hið glæsilegasta í alla staði og
gestalistinn stjörnum prýddur.
Aron Einar og Kristbjörg hafa verið í sam-
bandi í rúm fjögur ár og eiga soninn Óliver
Breka, sem er tveggja ára. Fjölskyldan býr
í Cardiff í Wales þar sem Aron Einar spilar
með liði borgarinnar.
Athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju og
voru brúðhjónin og gestir þeirra mynduð í
bak og fyrir af öllum fjölmiðlum landsins, auk
ferðamanna sem voru staddir á Skólavörðu-
holtinu. Gestalistinn var prýddur fjölda fót-
boltastjarna og liðsfélaga Arons Einars, bæði
innlendra og erlendra, auk fjölda afreksfólks
í fitnessheiminum. Veislan fór síðan fram
á Korpúlfsstöðum þar sem veislugestirnir
skemmtu sér fram á nótt og voru Bretarnir
mjög hressir í veislunni að sögn gesta.
Fjölda mynda má finna á Instagram undir
#aronkris17.
Fótboltakappar og fitnessstjörnur í brúðkaup
i sumarsins
Á sviðinu og í myndum setja leikarar upp hinar ýmsu grímur, enda felst
það í starfinu. Sami leikarinn
getur bjargað heiminum í einu
hlutverki og í því næsta verið
skúrkurinn. Í þessu felst starfið og
margir þeirra eru ótrúlega góðir í
því sem þeir gera.
En margir eru líka ótrúlega
góðir í þessu í daglega lífinu. Ein
gríma er notuð heima við og
önnur út á við, ein gríma er notuð
við upphaf kynna og hún svo
felld þegar á líður og hið sanna
andlit og innræti kemur í ljós,
og svona mætti lengi telja. Við
setjum okkur í hin ýmsu hlutverk,
í vinnu og einkalífi og stundum
er jafnvel orðið erfitt að sjá hvað
er „karakterinn“ og hvað er hinn
raunverulegi einstaklingur.
Með hækkandi aldri verður
manni ljóst hvað þetta hlýtur að
vera þreytandi vinna, það nennir
enginn, hvorki leikarar né aðrir,
að vera í vinnunni allan sólar-
hringinn og maður hlýtur að
verða hálfþreyttur að halda sífellt
grímunni uppi og einhverju leik-
riti. Með grímu lyga og undan-
bragða þarf líka að fylgja gott
minni og hæfileikar til að „halda
mörgum boltum á lofti.“ Sífelldur
leikur að grímum getur líka verið
dýrkeyptur fyrir hamingju og
sálarheill.
Hættum þessu leikriti í lífinu.
Leyfum fólki bara að sjá hvern-
ig við erum, stundum æðisleg,
stundum í fýlu, en oftast bara
venjuleg og ágæt. Leyfum fólki að
kynnast okkur eins og við erum,
í stað þess að setja sífellt upp ein-
hver leikrit og þykjast vera annar
en við erum. Leyfum okkur að
vera skrýtin, skemmtileg, furðuleg
og frábær og komum á sama tíma
vel fram við aðra, sýnum fólki
kurteisi, vináttu og virðingu.
Það er engin ástæða til að
óttast það að skilja grímuna eftir
heima. Það eru allar líkur á að
það sé einn þarna úti, jafnvel
heill hópur einstaklinga með
eigin galla sem falla eins og flís
við rass við þína. Lífið er betra
og skemmtilegra með öðrum,
einhverjum sem skilur mann og
tekur manni alveg eins og maður
er og elskar mann bæði á góðum
dögum og svo þeim sem eru síður
góðir.
Komdu þér út á meðal fólks,
sumarið er tíminn til að sýna sig
og sjá aðra, njóta lífsins og leika
sér. Það er svo mikið um að vera
alls staðar og fjöldi viðburða til
að skoða og upplifa. Skrifaðu
handritið í þínu lífi alla daga. Lífið
er eins og bók, sumir kaflar eru
daprir, aðrir eru fullir af gleði og
sumir eru æsispennandi, en ef
þú heldur ekki áfram þá veistu
aldrei hvað næsti kafli inniheldur
handa þér.
Tjaldið mun falla að lokum hjá
okkur öllum og það er mun betra
að uppskera viðbrögð og klapp
meðan á sýningunni stendur,
en þegar henni er löngu lokið.
Hvernig mun þitt handrit verða?
Sumarkveðja, Ragna
ragna@dv.is
Hvernig
ætlar þú að
skrifa þitt?
Leiksvið
og handrit
lífsins