Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Qupperneq 2
2 Helgarblað 15. september 2017fréttir Spurning vikunnar Já, Guðni er mjög fínn. Ég kaus hann ekki en er mjög ánægð með hann. Unnur Stefánsdóttir Ég hef ekki mikið fylgst með störfum hans, en mér sýnist hann standa sig vel. Ég kaus ekki í forsetakosn- ingunum því ég var alveg viss um að hann myndi vinna. Ég vildi fá ungan mann eins og hann í þetta starf, það þurfti endurnýjun. Guðjón Gunnarsson Hann er prýðismaður en mér finnst alltaf spursmál hversu mikil völd forseti á að hafa. Það þarf að skil- greina valdsvið forseta betur. Sigríður Kjærnested Já, mér fannst til dæmis gaman að heyra ræðu hans á Alþingi í vikunni þar sem hann var með alveg réttar áherslur. Steinunn Guðbjartsdóttir Ertu ánægð(ur) með störf forseta Íslands? Á dögunum var greint frá því í sjónvarpsfréttum Ríkisút­ varpsins að hrafn hefði flog­ ið inn um gluggann hjá fjöl­ skyldu í Sjálandshverfi í Garðabæ. Með fréttinni fylgdi myndskeið þar sem hrafninn sést gera sig heimakominn ofan á þvottagrind í stofu fjölskyldunnar og úða í sig gómsætum tómötum úr hendi heimilisfólks. Enginn var heima þegar hrafninn kom inn en hann náði að opna eldhúsglugga heim­ ilisins sem var ekki lokaður til fulls. Þegar inn var komið dundaði krummi sér við að henda munum niður á gólf og jafnvel út um glugg­ ann, þar til heimilisfólk kom heim. Síðan hefur komið í ljós að hrafn­ inn er þekktur í ákveðnum hverf­ um Garðabæjar og er uppátækja­ samur með afbrigðum. Merktur með málningu „Ég þekkti hann strax enda er hann með hvítan málningar­ blett á vinstri vængnum. Ég sá hann fyrst fyrr í sumar þegar ég kom að honum hangandi í þvottasnúru við heimili mitt. Þá höfðu þvottaklemmurnar vakið áhuga hans og hann reyndi að losa þær með öllum tiltækum ráðum,“ segir Hanna Dóra Magnúsdóttir, íbúi í Ásahverfi í Garðabæ. Fljót­ lega hafi komið í ljós að fuglinn sé afar gæfur og síðan þá hefur hann nokkuð reglulega kíkt í heimsókn. „Við gáfum honum að borða, með­ al annars hráan kjúkling, og hann kunni vel að meta það. Hrafnar eru ekkert fyrir smáfuglaæti eins og epli eða brauð. Hann var mjög gæfur, át úr hendi manns og leyfði öllum að klappa sér,“ segir Hanna Dóra. Fiðraður fáráðlingur Því hefur gjarnan verið haldið fram að hrafnar séu afar greindir fuglar. Í nýlegri grein í vísinda­ ritinu Science greindu vísinda­ menn frá því að hrafnar gætu skipulagt sig fyrir óorðnum að­ stæðum og stæðu jafnvel öpum og fjögurra ára börnum framar í vitsmunum. Það sama virðist ekki gilda um hrafninn í Garða­ bæ því á máli Hönnu Dóru má helst greina að þar sé á ferðinni fiðraða útgáfan af Ingjaldsfíflinu. „Hann virðist mjög sljór og hæg­ ur, maður sér það þegar honum er gefið að borða. Ég er ekki viss um að þessi fugl myndi lifa af án þess að fá matargjafir,“ segir hún. Áðurnefndu innslagi RÚV um hrafninn var dreift á Face­ book­síðu íbúa í Garðabæ. Þá kom í ljós að fjölmargir bæj­ arbúar höfðu orðið varir við fuglinn og birtu myndir því til staðfestingar. Sögurnar bentu til þess að fuglinn sæki fast í fé­ lagsskap við mannfólk. „Fyr­ ir nokkrum vikum hékk hann lengi á svölunum hjá okkur í Ás­ unum. Hann reyndi í fyrstu ákaft að komast inn og fór ekki fyrr en við lokuðum og drógum fyrir alla glugga,“ segir einn íbúi á síð­ unni. Þá höfðu borist fregnir af aðgangshörðum krumma á golf­ velli GKG í Leirdal og þar er að öllum líkindum sá sljói kominn. Hann virðist una hag sínum vel í Garðabæ. n Fiðraður Fáráður Flögrar um garðabæ n Félagslyndur hrafn vekur lukku í bænum n „Hann virðist mjög sljór og hægur“ Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Ég er ekki viss um að þessi fugl myndi lifa af án þess að fá matargjafir Ingjaldsfyglið Á þessari mynd sést hrafninn gæða sér á brauðmeti í Ásahverfi. Málningarslettan á vinstri væng hans sést greinilega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.