Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Síða 32
Um þessar mundir á Reykja-vík Kabarett hug hennar allan en með þeim frakka
hópi skemmtir hún áhorfendum
með örlítið djarfari og áleitnari
hætti en Íslendingar eiga almennt
að venjast.
„Þegar maður er búin að vera
að kenna og vera viðeigandi
veislustjóri, hegða sér vel, vera
á sparinu … þá finnst mér mjög
gott að breyta til og fá útrás í
kabarettinum. Í honum stjórnar
maður ferðinni sjálfur, má segja
dónabrandara, fara yfir strikið og
svoleiðis. Haustið hefur einmitt
alltaf dregið mig niður en eftir að
ég tók málin í mínar hendur, og
ákvað að gera eitthvað til að hlakka
til, hef ég hlakkað til þessarar
helgar í allt sumar,“ segir Margrét
en Burlesque-fjölskyldan hennar,
eins og hún kallar Reykjavík
Kabarett, verður með tvær sýningar
í Þjóðleikhúskjallaranum, á föstu-
dags- og laugardagskvöld. „Að sýna
með þessum vinum mínum er það
skemmtilegasta sem ég geri.“
Þerapía fyrir konur að fara úr
að ofan og segja dónabrandara
Margrét segir það að vissu leyti
þerapíu fyrir konur að fara úr að
ofan og segja dónabrandara: „Þetta
kom mér svolítið á óvart fyrst, en
ég fæ að heyra það reglulega frá
nemendum mínum að búrleskdans-
inn hafi frábær áhrif á sjálfsöryggi
þeirra og sjálfsmynd. Þær héldu sig
kannski vera að koma á venjulegt
dansnámskeið en fengu svo bara
miklu meira en þær áttu von á. Til
dæmis bara hvað líkamsvirðinguna
varðar. Ein hafði fengið að heyra
það einhvers staðar að hún væri of
feit, en hún tók sig bara til og gerði
flott atriði um það,“ segir Margrét
og bætir við að búrleskdansinn sé
þess eðlis að skemmtikraftarnir
framkvæmi allt sem viðkemur
atriði þeirra frá upphafi til enda.
„Þetta getur verið góð rannsókn á
því hvar hæfileikar manns enda.
Maður þarf að semja atriðið, orðin,
hreyfingarnar, finna tónlist. Maður
saumar meira að segja búninginn
sinn sjálfur. Hvar endar geta manns?
Hvenær þarf maður hjálp?“
Vinkona sem strippar í hjólastól
Í ensk-íslenskri orðabók með
alfræðilegu ívafi er burlesque
eða búrleskdansi lýst sem „Leik-
hússkemmtun með sundurleitu
efni, m.a. gamanþáttum (oft harla
grófum), nektardansi og fatafell-
ingu.“ Margrét útskýrir einmitt að
upprunalega hafi þetta nafn verið
notað yfir nektardans en í kringum
1990 hafi þróast sena í Los Angeles
sem gerði út á pólitískari tegund
af þessu formi sviðslista. „Þetta
er kallað „neo burlesque“ og er í
raun mjög pólitískt fyrirbæri sem
gengur út á að sýna allan aldur,
alls konar líkama, alls konar fólk
sem tekur til sín kynþokka sinn og
túlkar hann á eigin forsendum,“
segir Margrét. „Til dæmis á ég
vinkonu sem er í fallega skreyttum
hjólastól. Hún á mörg mjög góð
búrlesk atriði. Kallar sig strippara í
hjólastól. Það hafa allir bæði rétt og
leyfi til að vera kynverur,“ segir hún
ákveðið. „Svo er það mjög frelsandi
að taka kvenlíkamann, sem oftast
er sýndur undirgefinn eða við-
kvæmur, og sýna að hann getur líka
verið ógeðslega fyndinn, sterkur og
fær um að gera furðulegustu hluti.“
Það segir þér enginn
að fara úr fleiri fötum
Margrét Erla leggur mikla áherslu
á að búrleskdansinn snúist um
sjálfstæði og frelsi þess sem
flytur atriðið. „Um leið og ein-
hver annar segir þér hvað þú átt
að gera í þínu atriði þá er þetta
ekki lengur búrlesk. Það bókar
enginn skemmtikraft frá Reykjavík
Kabarett og segir henni eða honum
að fara úr fleiri fötum. Maður á
bara að bóka skemmtikrafta sem
maður treystir að séu með frábær
atriði og skipta sér svo ekkert meira
af því,“ segir hún og lagar til eyrna-
lokkinn sinn.
Vann milljón í happadrætti og missti
kærastann í sömu vikunni
En hvernig kom það til að Margrét
kynntist þessari tegund af leikhúsi?
„Það eru komin tíu ár síðan. Á
því herrans ári 2007 fór ég til
New York til að taka masterstíma
í magadansi. Það kom eiginlega
þannig til að ég hafði unnið milljón
í happadrættisvinning, einmitt
sömu vikuna og breski kærastinn
var nýbúinn að segja mér upp.
Við þetta tók lífið smá snúning og
ég, sem ætlaði að fara til London
þangað sem ég hafði komist inn
í leiklistarskóla, fór til New York.
Lífið sér um sína. Þessi milljón
dugði mér út sumarið,“ segir hún
og hlær að minningunni. Meðan
á dansnáminu stóð fékk Margrét
vinnu sem dansari á mjög vinsæl-
um skemmtistað í New York sem
heitir The Box. „Svo var þetta bara
eins og í Hollywood-mynd. Ein
aðal pían varð veik en ég smellpass-
aði í búninginn hennar og var þar
af leiðandi fengin til að leysa hana
af. Allt í einu var ég mætt upp á
svið að dansa fyrir aftan dvergvax-
inn mann sem var að herma eftir
Marilyn Manson og ég man bara að
ég hugsaði: þetta er það skemmti-
legasta sem ég hef gert!“
Kjöthöllin Tómas og erótíska uppvaskið
Margrét Erla fann ástina í nóvember
í fyrra. Kærastinn, sem er fjölhæfur
eins og Margrét, heitir Tómas
Steindórsson en hann starfar bæði
á sambýli og dagvistun fyrir fatlaða
auk þess að vera fyrirliði körfu-
boltaliðsins Gnúpverjar. Ekki nóg
með það, Tómas, sem var á sínum
tíma kosinn herra Helluskóli,
hefur nú gengið til liðs við kabarett
kærustunnar og ætlar að vera með
sitt eigið atriði í sýningum helgar-
innar. Margrét segir unnustann
ekki hafa haft hugmynd um hvað
búrlesksýning er þegar þau kynntust
en eftir að hafa séð stórkostlega sýn-
ingu á Slipper Room í New York, og
heillast alveg upp úr skónum, ákvað
fyrirliðinn að taka þátt.
„Hann sá fjölda stórkostlegra
stráka leika búrlesk listir sínar
í Slipper Room. Það fyrirbæri
kallast „boylesque“ og það má segja
að þetta hafi bara setið í honum
Margrét Erla Maack
komst fyrst á kortið þegar
hún, ásamt fleirum, stýrði
Kastljósi í fjögur ár. Eftir
að hún hætti í fjölmiðla-
bransanum hefur Margrét
verið á fljúgandi siglingu
í skemmtanageiranum.
Þar hefur hún starfað sem
plötusnúður, veislustjóri,
sirkusdama og nú síðast
búrleskdansari svo sitthvað
sé nefnt.
gott að fara yfir strikið
„Svo er
það mjög
frelsandi að
taka kvenlík-
amann, sem
oftast er sýnd-
ur undirgefinn
eða viðkvæm-
ur, og sýna
að hann getur
líka verið
ógeðslega
fyndinn,
sterkur og
fær um að
gera furðu-
legustu hluti.