Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2017, Page 65
KYNNING
Lifandi tónlist kvöld eftir
kvöld og landsins mesta
úrval af viskíi
Dillon, laugavegi 30, 101 Reykjavík
Dillon er orðinn rótgró-inn hluti af síbreytilegu skemmtanalífi mið-
borgarinnar en staðurinn
hefur starfað sleitulaust frá
stofnárinu 1999. lifandi tón-
list hefur alltaf verið í öndvegi
á Dillon en ákveðin tímamót
urðu í tónlistarlífi staðarins á
síðasta ári þegar ákveðið var
að breikka úrval þeirrar tón-
listar sem flutt er þar. Áður
hafði öll áherslan verið á
rokktónlist en núorðið er flutt
alls konar tónlist á staðnum.
í fyrra voru um 250 tón-
leikar haldnir á Dillon en þeir
verða yfir 500 áður en þetta
ár er liðið. Það er mögnuð
staðreynd um Dillon að ávallt
er frítt inn á tónleika og gildir
þá einu hvað stór nöfn eru að
spila. Sem dæmi hélt Bubbi
Morthens nýlega tónleika á
staðnum og er það í fyrsta
skipti sem hann treður upp
á Dillon. Tónleikarnir voru
þeir fyrstu í fjögurra tónleika
röð Bubba á Dillon í haust.
jafnframt má þess geta að
Dillon er stærsti off-venue
staðurinn á tónlistarhátíðinni
airwaves og í fyrra komu þar
fram rúmlega 80 hljómsveitir
á sjö dögum.
lifandi tónlist er nú á Dillon
öll kvöld frá miðvikudegi út
laugardagskvöld og frítt á
alla tónleika. Á miðvikudags-
kvöldum eru afar vinsæl
blúskvöld þar sem áhorfend-
ur fá að vera með. Á fimmtu-
dagskvöldum er trommarinn
einar Scheving með djass-
kvöld þar sem hann fær til
liðs við sig marga af færustu
djassspilurum landsins. Á
föstudagskvöldum og laugar-
dagskvöldum er dagskráin
síðan breytilegri.
Hljómburðurinn í þessu
rúmlega 100 ára gamla húsi
sem hýsir Dillon er einstakur
og er ein helsta ástæða þess
að þar koma fram margir af
flottustu tónlistarmönnum
landsins í dag ásamt erlend-
um gestum.
Dillon er ekki bara tón-
leikastaður, þar er líklega
mesta viskíúrval landsins
sem fyrirfinnst á einum bar.
viskítegundirnar eru yfir 170
og reglulega er boðið upp á
nýjar tegundir á barnum.
alla daga vikunnar er
Happy Hour á Dillon frá kl.
14 til 20. Þá er boðið upp
á 2 fyrir 1 af bjór auk þess
sem tilboð eru á dýrari
bjór, víni og viskíi.
Nánar má fylgjast með
dagskránni á Dillon á Face-
book-síðunni facebook.com/
DillonWhiskeyBar.