Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 22. september 2017fréttir
Spurning vikunnar Ertu búin(n) að ákveða hvaða flokk þú ætlar að kjósa 28. október?
Nei, og ég veit ekki hvort nokkuð breytist í nýjum
kosningum.
Rúnar Smárason
Vandamálið er hvort ég eigi virkilega að kjósa það sama
og síðast eða hvort ég eigi að fara inn á nýjar brautir.
Jakob Páll Jóhannsson
Já, ég kýs það sama og síðast, en mér líst illa á að ganga
aftur til kosninga.
Sigríður Sigurbergsdóttir
Nei, ég er ekki búin að því. Svo finnst mér of stutt liðið
frá síðustu kosningum.
Þórdís Þórarinsdóttir
G
uðbjörg Friðbjörnsdóttir
hefur undanfarin tvö ár
starfað sem þjónn í hinu
sögufræga hljóðupptöku-
veri Abbey Road í London. Á
daginn færir hún stórstjörnum á
borð við Paul McCartney, George
Clooney og Harry Styles kaffi og
samlokur og á kvöldin þjónar
hún á hinum ýmsu viðburðum í
stúdíóinu. Þó svo að Guðbjörg sé í
návígi við margar af helstu stjörn-
um samtímans á hverjum degi þá
segir hún að vinnan sé rétt eins
og hvert annað þjónustustarf.
Abbey Road er þekktast fyrir að
vera hljóðupptökuverið þar sem
Bítlarnir tóku upp samnefnda
plötu árið 1969. Síðan
þá hefur ógrynni heims-
þekktra tónlistarmanna
og framúr skarandi
einstaklinga innan kvik-
myndabransans lagt leið
sína í stúdíóið til að taka
upp tónlist og hljóð af
ýmsum toga.
Lítið starfsöryggi
Guðbjörg hefur búið
í London undanfarin
20 ár en áður starfaði
hún í markaðsmálum
og vörumerkjastjórnun
innan tískugeirans fyrir
hágæða vörumerki á
borð við Louis Vuitton
og Jimmy Choo. Guðbjörg sá
meðal annars um að koma vöru-
merki Jimmy Choo inn í sjón-
varpsþættina Sex and the City.
Fyrir nokkrum árum ákvað Guð-
björg hins vegar að taka sér hlé frá
tískuheiminum og finna starf þar
sem hún upplifði minni streitu,
gæti safnað orku og fengið meiri
frítíma. „Tískubransinn er eins og
að horfa á The Devil Wears Prada í
einn dag. Nema hvað ég gerði það
í 30 ár.“ Guðbjörg segir bransann
að sama skapi hafa breyst gríðar-
lega mikið frá því hún byrjaði.
Samkeppnin sé töluvert harðari,
ósvífnari og starfsöryggi lítið sem
ekkert.
Var ráðin á staðnum
Eftir að Guðbjörg sagði starfi sínu
lausu hafði hún litla hugmynd um
hvaða hana langaði að gera. Þar sem
Abbey Road er aðeins í nokkurra
mínútna fjarlægð frá heimili henn-
ar ákvað hún að athuga hvort ekki
vantaði þar fólk í vinnu. „Ég gekk
inn og spurði hvort þau gætu ekki
fundið eitthvað fyrir mig að gera. Ég
var beðin um að koma aftur næsta
dag og þegar ég mætti aftur var
ég spurð hvort ég kynni að útbúa
samlokur. Ég hélt það nú og var ráð-
in á staðnum. Vinnan hentar mér
vel. Ég er algjört fiðrildi og get kjaft-
að við hvern sem er um hvað sem
er. Það kemur sér vel hér.“
Þrátt fyrir að viðskiptavina-
hópur Guðbjargar sé mörgum
framandi þá segir hún þær
stjörnur, sem hún hefur kynnst í
gegnum starfið, mjög viðkunnan-
legar. „Það sem situr mest í mér er
þegar við Yoko Ono sátum dágóða
stund yfir kaffibolla og kjöftuð-
um um hitt og þetta. Svo hef ég til
dæmis rætt við Sting um íslenska
hestinn, en hann er mikill hesta-
maður, og farið á barinn með Kate
Moss. Hún er frábær.“
Þá hefur Guðbjörg hitt Bítlana
Paul McCartney og Ringo Starr.
„Paul er miklu alvarlegri týpa en
Ringo. Ringo er algjör húmoristi.
Fyrir nokkru var ég beðin um að
færa manni kaffi inn í stúdíó. Ég
var örugglega búin að spjalla
við hann í 30 sekúndur þegar
ég fattaði að þetta var George
Clooney. Svo þegar hann
kom síðast bað hann sér-
staklega um kaffi frá mér en
hann er mikill kaffiunnandi.
Það var mjög skemmtilegt.“
Maraþon og
50 ára afmæli
Þrátt fyrir að hafa dvalið lang-
dvölum í Bretlandi þá heimsækir
Guðbjörg Ísland eins oft og hún
getur. Síðast kom hún til lands-
ins í ágúst. Þá sló hún tvær flugur í
einu höggi þegar hún hljóp mara-
þon á Menningarnótt og hélt upp á
fimmtugs afmælið sitt sama kvöld.
Morguninn eftir gerði Guðbjörg
sér svo lítið fyrir og bauð gestunum
upp á breskan morgunverð. „Þetta
var æðislegt. Ég er þakklát fyrir
tækifærin sem ég hef fengið í lífinu
og hlakka til að sjá hvað framtíðin
ber í skauti sér.“ n
Guðbjörg þjónar fræga
fólkinu í Abbey Road
n Hefur hitt þekkta tónlistarmenn n Segir Ringo Starr mun skemmtilegri en Paul McCartney
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Tískubransinn er
eins og að horfa á
The Devil Wears Prada í
einn dag. Nema hvað ég
gerði það í 30 ár.
Guðbjörg
Friðbjörnsdóttir
Var ráðin á staðnum
þegar hún sótti um
vinnu í Abbey
Road-stúdíóinu.
Mynd Úr einKasaFni
abbey road studios Margir ferðamenn legg
ja leið
sína að stúdíóinu á hverjum degi. Mynd abbeyro
ad.CoM
Gatan fyrir framan hljóðverið Bítlarnir ganga yfir Abbey Road í London.
George Clooney Kann að meta gott kaffi.