Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 22. september 2017fréttir
Hjalti var viðriðinn
mjólkurhneyksli 1986
Ó
hætt er að fullyrða að Hjalti
Sigurjón Hauksson hafi
verið einn umtalaðasti
maður landsins undan
farna daga. Meint leyndarhyggja
ráðherra Sjálfstæðisflokkinn með
þá staðreynd að Benedikt Sveins
son, faðir Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra, hafi verið einn af
meðmælendum Hjalta Sigurjóns
vegna umsóknar um uppreist æru
varð þess valdandi að ríkisstjórn
in féll og óvæntar kosningar til Al
þingis eru yfirvofandi.
Fáir vita hins vegar að Hjalti
Sigurjón tengdist inn í hneykslis
mál hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík árið 1986 sem vakti
mikla athygli fjölmiðla á sínum
tíma. Um var að ræða skipulagð
an þjófnað starfsmanna á mjólk
sem var síðan seld á hálfvirði til
vel valinna kaupmanna á svört
um markaði. „Við vorum bara vill
ingar og hegðuðum okkur eins og
bjánar,“ segir Hjalti Sigurjón í sam
tali við DV og fullyrðir að hann hafi
verið peð í svindlinu.
Rekinn og handtekinn
Þann 7. febrúar 1986 greindi
Morgunblaðið frá því að bílstjóri
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík
hefði verið handtekinn, að beiðni
forráðamanna fyrirtækisins, grun
aður um að hafa stolið mjólk og
selt hana á hrakvirði til verslana.
Þessi ungi maður var Hjalti Sigur
jón Hauksson en þegar málið kom
upp hafði hann einungis starf
að hjá fyrirtækinu í sex mánuði.
Nokkru fyrr hafði Hjalta verið sagt
upp störfum vegna málsins. Hann
var síðan handtekinn og játaði að
ild sína að verknaðinum. Kom
fram í fyrirsögn Morgunblaðsins
að Hjalti Sigurjón hefði selt mjólk
til um tuttugu verslana.
Málið komst upp fyrir árvekni
annarra bílstjóra sem áttuðu sig á
því að þegar var búið að keyra með
mjólkurvörur í verslanir sem þeir
höfðu ekki heimsótt. Þar með fór
boltinn að rúlla og þjófnaðurinn
kom í ljós. Ekkert í bókhaldi fyrir
tækisins benti til þess að misferli
sem þetta hefði verið í gangi.
Í samtali við blaðamann DV
segir Hjalti: „Þetta er orðið svo
gamalt mál. Það voru örugglega
um áttatíu manns sem tengdust
þessu máli með einum eða öðrum
hætti. Ég vann þarna eitt sumar
og var kennt þetta þegar ég mætti.
Það voru stjórnendur þarna sem
höfðu byggt húsin sín með því að
stunda þetta,“ segir Hjalti Sigurjón
í samtali við blaðamann. Hjalta
Sigurjóni var umsvifalaust vik
ið frá störfum en tíu manns, sem
voru látnir sæta ábyrgð, fengu boð
um að segja upp að sjálfir. Að sögn
Hjalta sluppu höfuðpaurarnir hins
vegar og umfang málsins var þagg
að niður af Mjólkursamsölunni.
Lögðu niður störf í
mótmælaskyni
Starfsmenn Mjólkursamsölunn
ar voru afar óhressir með hvernig
tekið var á málinu. Stjórnendur
fyrirtækisins höfðu einir upplýs
ingar um hvaða verslanir höfðu
gerst sekar um að taka þátt í svika
myllunni sem og hvaða starfs
menn áttu að hafa skipulagt hana.
Nöfn þessara verslana voru ekki
gerð opinber. Svo fór að stór hluti
starfsmanna lagði niður störf og
neitaði að afgreiða mjólk frá af
greiðslustöðinni til þeirra verslana
sem þeir vissu um að hefðu tekið
þátt í svindlinu. Tilgangurinn var
að þannig gæti almenningur séð
hvar mjólk var ekki til sölu og þar
með lagt saman tvo og tvo.
Talsvert moldviðri þyrlaðist
upp í samfélaginu vegna þessa og
mikið mæddi á Ólafi Ólafssyni,
yfir trúnaðarmanni starfsmanna
hjá Mjólkursamsölunni. „Ég hef
verið stanslaust í símanum frá
því að þessi deila kom upp. Kaup
menn, sem eru á listanum okkar,
hafa hótað mér óskaplegum hegn
ingum, eiginlega öllu nema lífláti.
Þeir segjast geta gert mig eigna
lausan,“ sagði Ólafur í viðtali við
DV meðan á atganginum stóð.
„Gömlu jaxlarnir eru ekki í
þessu“
Starfsmennirnir voru með tíu
verslanir á lista en vildu fá upp
gefið hverjar hinar tíu verslanirnar
voru. Ólafur kvað starfsmenn hafa
samþykkt að hefja aftur útkeyrslu
á vörum gegn loforði um að sjá
heildarlistann en það hafi síðan
verið svikið. „Þessi deila stend
ur einfaldlega um það hvort við
starfsmennirnir eigum að hafa
aðgang að sömu gögnum í þessu
máli og forstjóri Mjólkursam
sölunnar. Forstjórinn veit allt um
þetta og rekur menn í samræmi
við það. Við vitum hins vegar lítið
hverju fram fer. Þó erum við vissir
í okkar sök varðandi þær tíu versl
anir sem við höfum sett í mjólkur
bann,“ sagði Ólafur í sama viðtali.
Þá kemur fram í umfjöllun DV á
þessum tíma að samkvæmt heim
ildum blaðsins hafi verið hylmt yfir
með stórverslunum sem tóku þátt
í svindlinu. „Það hefur verið kippt
í spottana vegna þess að stórhags
munir eru í húfi,“ sagði Ólafur og
benti einnig á að eingöngu ung
um mönnum sem hefðu starfað
skamma hríð við mjólkurkeyrslu
hefði verið sagt upp störfum.
„Gömlu jaxlarnir eru ekki í þessu.“
Sátt náðist loks í deilum starfs
manna og yfirstjórnar og starfsemi
Mjólkursamsölunnar féll í eðli
legt horf. Málið fjaraði síðan út og
enginn þurfti að svara fyrir gjörðir
sínar frammi fyrir dómstólum. n
n „Við vorum bara villingar og hegðuðum okkur eins og bjánar“
Stórt blaðamál Allir fjölmiðlar landsins fjölluðu ítarlega um mjólkurþjófnaðinn. Málið fjaraði hins vegar út og enginn var dreginn til
ábyrgðar fyrir utan unga menn, eins og Hjalta Sigurjón, sem misstu vinnuna.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is