Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 64
40 menning Helgarblað 22. september 2017 „Leikstjóra mistókst að skapa spennu og það var ein- faldlega erfitt að ná nokkrum tengslum við söguhetjurnar, baráttu þeirra og afdrif, þrátt fyrir góðan vilja. S káldsagan 1984 eftir George Orwell kom fyrst út árið 1949, ári áður en höfundurinn lést. Til marks um þá athygli sem sagan vakti, þá var íslensk þýðing komin út aðeins tveimur árum síð- ar. Þetta er ein þeirra bóka sem alltaf lenda ofarlega á listum yfir bestu skáldverk síðustu aldar en jafnframt verk sem margfalt fleiri þekkja af af- spurn en lestri. Ógeðfellt framtíðarsamfélag Verkið gerist í framtíðarsam félaginu Eyjaálfu, nánar tiltekið á Flugbraut eitt sem áður nefndist London. Samfélaginu er stjórnað með ógnar- valdi, nær öllu vinnuframlagi þegn- anna er eytt í njósnir, falskar ákærur, aftökur, stríðsrekstur og viðamiklar athafnir til heiðurs valdhöfum. Börnum er kennt að snúast gegn foreldrum sínum og tilkynna upp- lognar sakir til yfirvalda. Mál fara í nefndir og undirnefndir sem stöð- ugt er verið að stofna til og unnið er að stórkostlegri einföldun tungu- málsins. Verðmætasköpun er nán- ast engin, svo þrátt fyrir þrotlausa vinnu, lepja íbúar dauðann úr skel, örþreyttir alla daga í ömurlegum húsakynnum. Friðarráðuneytið stendur fyrir linnulausum stríðsrekstri og áróðri sem nýttur er til þess að berja íbúa landsins til hlýðni. Komi sú staða upp að einstaklingur skynji ann- an sannleik en þann sem stjórn- völd boða, beitir viðkomandi „tví- hugun“ til þess að samþykkja báðar hugmyndir án frekari ígrundunar. Alls staðar eru skjáir sem fylgjast með fólki og senda út fyrirskipan- ir. Fólk hverfur unnvörpum í ástar- ráðuneytinu sem annast fangelsun og aftökur og öllum heimildum um líf þess er eytt hjá sannleiksráðu- neytinu sem framkvæmir lygar og falsanir. Framtíðarsýnin rættist Þetta hljómar kunnuglega. Norður- Kórea kemur auðvitað fyrst upp í hugann enda eins og lifandi útgáfa sögunnar í heild sinni, jafnvel enn skelfilegri. Ósk um tvíhyggju má finna í útskýringum spunameistara Donalds Trump þegar þeir nefna rangfærslur hans „annars konar sannleika“ og möguleikar þagnar- innar til falskra frásagna og lyga ættu öllum að vera kunnir sem heyrt hafa aðeins hálfan sannleik. Ýmis forrit og upptökuvélar fylgj- ast grannt með gerðum okkar og ferðum, líkt og skjáirnir sem vaka yfir íbúum Flugbrautar eitt. Tján- ingarfrelsi okkar stendur ógn af net- níðingum, dómstól götunnar og jafnvel almennum vegfarendum sem hvetja til mannorðsmorðs með lestri, útbreiðslu níðs og glaðlegum velþóknunartáknum til aftökusveit- arinnar. Sagan talar beint til okk- ar tíma og speglar flesta verstu lesti samtíma samfélags. Vart tilbúið til frumsýningar Þessi leikgerð stendur sögunni sjálfri því miður langt að baki. Nær engar tilraunir eru gerðar í hand- ritinu til þess að gefa áhorfendum aðgang að hugsunum söguhetj- unnar Winstons Smith, og Þorvaldi Davíð Kristjánssyni tókst ekki að koma þeim á framfæri í undirtexta sínum. Skjálfandi leikstíllinn var of ýktur og hafði slæm áhrif á radd- beitingu leikarans. Annars konar nálgun hefði verið æskileg til að efla tengsl og þar með skilning áhorf- enda á þeirri vegferð sem Winston verður að fara, til þess að berjast við lygina sem valdhafar hafa vafið samfélagið inn í. Þuríður Blær Jóhannesdóttir lék Júlíu, ástina sem Winston svíkur. Gervi hennar var ekki gott og það skorti dýpt í karakterinn sem skrif- ast að hluta á handritið, auk þess sem hún virkaði stundum óklár á texta. Kröfur yfirvalda um tíma fólks með yfirgengilegu vinnuframlagi, auk endalausra dýrkunarfunda og hátíðarhalda til heiðurs Stóra bróð- ur, komust illa til skila. Þau Winston og Júlía áttu auðvelt með að skipu- leggja að því er virtust tíðar sam- verustundir sem er í hrópandi and- stæðu við sögurammann. Vali Frey Einarssyni tókst einstaklega vel upp í sköpun sinni á valdníðingnum O'Brien sem bæði vinnur traust Winstons og tortímir honum. Ísköld nálgun hans var hár- rétt, æsingarlausar pyntingar, unn- ar eins og hversdagslegt eldhús- verk, engin gleði, engin ást, aðeins nautnin að viðhalda valdinu. Jóhann Sigurðarson sýndi á sér áhugaverða hlið í hlutverki Charr- ingtons, hann náði ágætlega að sýna tvöfeldni persónunnar en tókst ekki jafn vel að sýna stéttar muninn á milli hans og Winstons. Þórunn Arna Kristjáns dóttir var ágæt í hlut- verki fr. Parsons og móður Win- stons en langdregnar skúringa- senur öreigakonunnar voru ekki í nokkrum takti við verkið. Barnið í leiksýningunni, Erlen Isabella Einarsdóttir, stóð sig frábærlega vel í hlutverki dóttur Parsons-hjónanna og reyndar einnig sem systir Win- stons, þótt hún hafi ekki alveg haft útlit sjúks og vannærðs barns. Slöpp úrvinnsla Sýningin hófst á því að dróni flaug yfir áhorfendur og gaf þannig tón- inn að öflugu eftirliti, jafnvel líka með áhorfendum en eftirfylgnin var lítil. Leikstjórinn, Bergur Þór Ing- ólfsson, virðist nánast hafa gleymt eftirlitsþættinum þrátt fyrir veiga- mikið hlutverk hans í verkinu. Þá sjaldan að skjárinn sýndi eitthvað sem leikararnir voru að gera og lék þannig hlutverk njósnarans, var það svo fínlega unnið að það líktist helst einhvers konar flúri við verkið. Leikmyndin þjónaði leikritinu ekki vel. Winston þurfti til að mynda gjarnan að hefja nýjar sen- ur með því að svara yfirvöldum hvar hann væri, væntanlega til út- skýringar fyrir áhorfendur því varla lék nokkur vafi á verustað hans hjá þeim sem voru alltaf að fylgjast með honum. Ef til vill voru þessar staðsetningarupplýsingar í hand- ritinu en það var þá að minnsta kosti ekki unnið úr þeim með spennandi hætti. Þrátt fyrir stórmerka og áhrifa- ríka sögu, sem leikgerðin byggir á, þá skorti tilfinnanlega undir- byggingu og skýrari þráð í þessa uppfærslu, samhæfðar sviðshreyf- ingar virtust lítt útfærðar og tæki- færi til tæknilegra tilþrifa voru illa nýtt. Leikstjóra mistókst að skapa spennu og það var einfaldlega erfitt að ná nokkrum tengslum við sögu- hetjurnar, baráttu þeirra og afdrif, þrátt fyrir góðan vilja. n Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús 1984 Höfundur: George Orwell Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson Leikgerð: Robert Icke og Duncan Macmillan Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Þuríður Blær Jóhannesdóttir, Jóhann Sigurðarson, Valur Freyr Einarsson, Hannes Óli Ágústsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson og Erlen Isabella Einarsdóttir Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir, Sigríður Sunna Reynisdóttir og Elísabet Alma Svendsen Lýsing og myndband: Björn Bergsteinn Guðmundsson og Ingi Bekk Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórsson Sýnt: á Nýja sviði Borgarleikhússins 2 + 2 = 5 Alræðisríkið beitir ofbeldi og pyntingu m til að brjóta niður þegna sína og fá þá til að samþykkja þær staðhæfinga r sem því hentar, jafnvel þær sem eru augljóslega rangar. Baráttan Sem BráSt á Sviði Ástin á tímum alræðisstjórnarinnar Þorvaldur Davíð og Þuríður Blær í hlutverk- um Winston og Júlíu sem fella hugi saman og hefja að berjast gagn alræðis- stjórn Stóra bróður. Vinsælast á Spotify Mest spilun 21. september Metsölulisti Eymundsson Vikuna 13.–19. september. 1 Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið - David Lagercrantz 2 Með lífið að veði - Yeonmi Park 3 Gagn og gaman - Helgi Elíasson /Ísak Jónsson 4 Nornin - Camilla Läckberg 5 Bláköld lygi -Quentin Bates 6 Afætur -Jussi Adler-Olsen 7 Verstu börn í heimi - David Walliams 8 Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir 9 Independent People - Halldór Laxness 10 Kóngulær í sýningarglugganum - Kristín Ómarsdóttir Vinsælast í bíó Helgina 15.–17. september 1 Undir trénu 2 IT 3 Emojimyndin 4 American Made 5 Happy Family 6 The Son of Bigfoot 7 American Assassin 8 Mother! 9 The Hitman's Bodyguard 10 47 Meters Down 1 B.O.B.A - JóiPé og Króli 2 Oh Shit - JóiPé og Króli 3 Rockstar - Post Malone og 21 Savage 4 Sagan af okkur - JóiPé, Króli, Helgi A og Helgi B 5 Ég vil það - Chase og JóiPé 6 Labba inn - JóiPé, Króli og S.dóri 7 Taktlaus - JóiPé og Króli 8 Too good at goodbyes - Sam Smith 9 GerviGlingur - JóiPé og Króli 10 Stælar - JóiPé og Króli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.