Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 41
legra. Alls konar fólk, sem vana- lega er örlítið feimið, er allt í einu mætt með míkrófóninn í svaka stuði. Alveg burtséð frá því hvort það kann að syngja eða ekki. Það finnst mér svo æðislegt. Enda þarf enginn að kunna að syngja til að vera með í karókí,“ segir Þórunn og ákafinn í röddinni sýnir að hún hefur einlæglega gaman af þessum kvöldum. Hollt fyrir sálina að syngja geggjað lag Eftir að hafa upplifað sæluna á hinu sódómíska bingókvöldi Sigríðar Klingenberg talaði Þórunn við rekstrarstjóra Sæta svínsins og bar undir hann þá hugmynd að hafa sambærileg partíkarókí skemmtikvöld á mið- vikudagskvöldum í kjallara staðarins. „Af hverju ekki? Lífið snýst jú um að gera það sem manni finnst skemmtilegt. Mér finnst ógeðslega gaman að syngja og hlusta á annað fólk syngja. Við bara slógum til og núna hef ég alltaf eitthvað til að hlakka til á miðvikudögum,“ segir Þórunn og bætir við að þegar hafi mynd- ast lítill hópur af fastagestum sem mætir næstum alla miðvikudaga auk annarra gesta. „Sumir syngja alltaf sama lagið og aðrir syngja alls konar lög. Þetta er svo frábært. Það er nefnilega svo ótrúlega hollt fyrir sálina að syngja eitthvert geggjað lag. Hvort sem maður er leiður eða glaður. Að syngja Total Eclipse of the Heart eftir sambandsslit eða Girls Just Wanna Have Fun þegar þú ert í stuði með vinkonum þínum. Nú eða gott Britney-lag þegar þú ert alveg „single“. Þetta er bara eitthvað ótrúlega skemmtilegt kikk sem fólk fær út úr þessu!“ Bannað að vera fáviti Þórunn segir kvöldin oft byrja frekar rólega en svo færist fjör í leikinn eftir því sem líður á kvöldið. „Þetta eru drauma djammkvöldin mín því ég nenni yfirleitt ekkert út um helgar. Þarna er bara hægt að mæta með vinum sínum, borða, drekka og mana hvert annað upp í að syngja. Þetta er tóm gleði. Fólk er oft hlédrægt til að byrja með en í lokin eru menn næstum því farnir að slást um míkrófóninn, svo mikill er ákafinn í sönginn. Þetta eru samt alltaf friðsamleg, og stundum falleg, kvöld, enda er líka alveg bannað að vera fáviti í partíkarókí.“ Er ekki á Tinder Að lokum snúum við talinu að ástarlífi söngkonunnar laglegu sem hefur nú verið einhleyp um nokkurt skeið. „Ég er ekki á Tinder og ég er ekki virk í að leita að ástinni. Ég er mjög róleg í þessum málum og sátt við líf mitt eins og það er núna. Ef einhver skyldi skjóta upp kollinum sem mér þætti sætur þá myndi ég ekki hefja samband af því ég gæti ekki hugsað mér að vera ein. Samband á bara að virka sem viðbót við það sem er gott fyrir. Ég get ekki ætlast til þess að það komi einhver karl og geri mig hamingjusama. Maður verður að byrja á sjálfum sér og læra að elska sjálfan sig. Þetta er ótrúlega mikil klisja en svo innilega satt. Við erum alltaf svo dugleg að rífa okkur niður, refsa og skamma í huganum. Við verðum að hætta því og læra að elska okkur sjálf eins og við vildum að aðrir myndu gera. Með aldrinum verður maður líka sáttari við sig og öruggari. Það er samt alveg á hreinu að ég nenni alls ekki einhverjum „bullshit“ týpum. Betra er autt rúm en illa skip- að. Svo einfalt er það nú.“ Heillast af fólki sem er einlægt og sér húmorinn í lífinu Hvað þarf áhugasamur vonbiðill svo að gera ef hann langar að heilla Þórunni Antoníu? „Sko. Það kemst enginn inn fyrir skelina hjá mér með einhverjum stælum. Ég fíla fólk sem er einlægt, fyndið og jákvætt. Það hafa allir milljón hluti til að nöldra yfir og lífið skuldar manni enga ham- ingju, maður skapar hana sjálfur, svo ég heillast af fólki sem er heiðarlegt og sér húmorinn í hlutunum af því það er raunverulega hægt að hlæja að öllu. Ég á til dæmis myndir af mér þar sem ég er með meðgöngu- eitrun og lít út eins og sólbrenndur blöðruselur. Auðvitað er þetta hrikalega fyndið eftir á. Það er bara þannig. Maður þarf líka bara að muna að lífið drepur mann alltaf á endanum. Maður kemst ekkert frá því lifandi. Þess vegna er eins gott að hafa bara gaman af þessu,“ segir hin hæfileikaríka Þórunn Antonía Magnúsdóttir að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.