Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 12
12 Helgarblað 22. september 2017fréttir henni íslensku enda hefur hún tek- ið miklum framförum í tungumál- inu síðustu mánuði. Listræn og ljúf Þessa dagana kemst lítið annað að hjá Haniye og vinkonum hennar en fyrirhuguð ferð að Reykjum. Hún ljómar öll þegar talið berst að skólabúðunum enda er undir- búningur nú í fullum gangi. „Við förum með rútu og verðum í fimm daga. Ég hlakka til að fá að gista og vera með vinkonum mínum,“ segir Haniye en líkt og hjá flestum stúlk- um á hennar aldri skipta vinkon- urnar hana gríðarlega miklu máli. Aðspurð hvað hún geri eftir skóla og á kvöldin, þegar hún er ekki úti með vinum sínum, svarar Haniye að henni þyki mjög gaman að föndra, lita, mála og teikna. Hún er augljós- lega mjög listræn en í herberginu hennar prýða litríkar myndir, borð- ar og annað föndur veggina. Þá kemur líka upp úr krafsinu að henni þyki gaman að elda og baka. „Uppá- haldsmaturinn minn er samt KFC- kjúklingur og hamborgari,“ segir hún hlæjandi. Haniye lætur áhyggj- ur sínar af framtíðinni ekki í ljós við blaðamann heldur einblínir á það jákvæða sem er að gerast í lífinu. Innt svara við því hvað hún hræðist mest, segir hún brosandi. „Kakka- lakka og mýs, það er ógeð.“ „Þorir að vona“ Þrátt fyrir ungan aldur býr Haniye yfir lífsreynslu sem við getum fæst gert okkur í hugarlund. Að sögn Guðmundar Karls Karlssonar, sem er vinur feðginanna og hefur aðstoðað þau hér á landi, hefur Haniye verið í sálfræðimeðferð við kvíða og áfallastreituröskun. Þegar hann kynntist henni fyrst var hún mjög lokuð og feimin. Hann segir það þó heldur betur hafa breyst síðustu vikur. „Hún er allt önnur. Brosir mikið, tjáir sig meira og virðist mun afslappaðri. Ég held að hún sé farin að þora að vona og treysta fólki. Svo er hún farin að hegða sér eins og barn. Það er dásamlegt að fylgjast með henni blómstra en á sama tíma skelfilegt ef þetta verður tekið af henni.“ Mary vill ekki deyja Mary Lucky hefur dvalið á Ís- landi í tvö ár. Hún er fædd árið 2009 í flóttamannabúðum á Ítalíu en er ríkisfangslaus. Mary kom til landsins ásamt foreldrum sín- um, Sunday Iserien og Joy Lucy, en búið er að vísa Sunday úr landi. Fjölskyldan, sem er búsett í Njarðvík, kom hingað til lands í leit að öryggi og betra lífi. Óttinn við að lenda aftur í þeim aðstæð- um, sem foreldrar Mary flúðu í heimalandi þeirra Nígeríu, hefur þó heltekið mæðgurnar í óvissu- ástandinu. Móðir Mary er fórnar- lamb mansals og vændis en hún óttast mjög að dóttir hennar lendi í sama hryllingnum ef þær verða sendar aftur til heimalandsins. Leikur við mömmu sína eftir skóla Mary er í Akurskóla í Njarðvík. Henni gengur ágætlega að aðlagast íslenska skólakerfinu og er farin að skilja þónokkra íslensku. Óöryggið sem vofir yfir þeim hefur sett mark sitt á móður hennar sem vill helst ekki líta af dóttur sinni. Mary hefur því til þessa ekki fengið að lifa hefð- bundnu lífi átta ára stúlku. Þegar blaðamann ber að garði á heimili Mary stendur hún bros- andi í glugganum og veifar. Hún er svolítið stressuð og finnst óþægi- legt að svara spurningum blá- ókunnugrar konu. Hún kveðst þó vera ánægð með skólann og finnst Ester, kennarinn sinn, skemmti- leg og góð. „Ég skrifa í skólanum, leik mér úti, borða, les og svo er skólanum lokað,“ segir Mary sem er líka búin að eignast marga vini. Eftir skóla er hún vön að læra heima, leika sér við mömmu sína og horfa á sjónvarpið. „Mér finnst skemmtilegast að horfa á Mashiu og björninn, vin hennar.“ Vill vera á Íslandi Þá kveðst Mary vera mjög hrifin af Frozen-prinsessunum Elsu og Önnu. Hún biður mömmu sína til skiptis um Elsu- eða Önnu-fléttur í hárið og uppáhaldslagið hennar er Let it go. Þá langar hana mikið að eignast Elsu- og Önnu-dúkkur. Þegar talið berst að því hvað Mary hræðist mest þá stressast hún öll upp, grípur fastar um dúkkuna sína, og byrjar að rugga sér í sófanum. „Ég vil vera á Ís- landi. Mig langar ekki að fara til Nígeríu með fjölskyldunni minni. Ég er ekki frá Nígeríu. Ég er frá Ítalíu og mig langar ekki að deyja.“ Það er ógnvekjandi að hlusta á svo nöturleg orð koma frá átta ára gömlu barni. Mary er hrædd við að vera rifin á brott frá vinum sín- um, skóla og heimili þar sem hún er örugg. n „Ég vil vera á Íslandi. Mig langar ekki að fara til Nígeríu með fjölskyldunni minni. Á skólalóðinni Mary er búin að læra þónokkuð mikið í íslensku. Hlakkar til að fara að Reykjum með vinum sínum Haniye er nú þegar farin að líta á Ísland sem heimaland sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.