Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 32
HRÚTUR 21. mars–19. apríl
Hrútur stendur á tímamótum. Veit
nákvæmlega hvernig staðan er og
hefur fullt vald á málunum. Fjármál
eru í brennidepli. Kaup og sala hjá
fjölskyldunni og margt í pípunum.
Eitthvað úr fortíðinni skýst upp á
yfirborðið og tengist samvinnu. Kær-
leikur ríkir hjá fjölskyldunni. Mikill
undirbúningur er í gangi. Vandamál
leysast. Kærleikur er heilun.
NAUT 20. apríl–20. maí
Góðar fréttir berast og naut kemst úr
óhagsstæðum aðstæðum. Breytinga
er þörf. Mikil uppbygging hefur verið
á viðskiptasviðinu og staðið lengi,
áhætta verður tekin og henni fylgja
mikil umsvif. Nautið þarf að fara vel
með orku og heilsu. Útlönd koma
sterkt inn og fylgir því hamingja. Naut
á að grípa gæsina meðan hún gefst.
Traust, góð vinátta er heilun.
TVÍBURAR 21. maí–20. júní
Eldmóður ríkir hjá tvíburum. Mik-
ill fjölbreytileiki. Jafnvægi er mikil-
vægt þegar sköpunarkrafturinn er
virkjaður. Fjölskyldan er mikilvæg.
Slaka á eftir erfitt tímabil. Óvæntir
atburðir eiga sér stað. Breytingar
eru undirliggjandi í viðskiptum
og varast ber togstreitu en treysta
innsæi sínu. Samvinna er lykill. Að
trúa og treysta er heilun.
KRABBI 21. júní–22. júlí
Nýtt samstarf eða nýir samningar
eru í farvatninu hjá krabbanum,
spennandi tímar framundan. For-
tíðin lætur á sér kræla. Vandamál
leysast. Erfitt tímabil endar. Upp-
skera. Krabbinn þarf að velja sín
orð vel. Vanda vel allt sem snertir
vinnuna. Fjölskyldan, vináttan og
kærleikur er heilun.
LJÓN 23. júlí–22. ágúst
Ljónið er umkringt mannkærleika
og fullkomnun. Mikill undirbún-
ingur er í farvatninu á erfiðum
verkefnum og tengist það viðskipt-
um. Góðar fréttir berast. Mikil er
andagiftin yfir ljóninu sem þarf
að treysta innsæi sínu. Mikið ber
á ráðgjöf. Þar fylgir hugur máli.
Fjölbreytileiki og breytingar ríkja.
Tign og ráðdeild er heilun.
MEYJA 23. ágúst–22. sept.
Gott er að hvílast eftir erfiða törn.
Allt erfiði tekur sinn toll. Jákvæðni
borgar sig. Félagsskapur eða útlönd
virðast í farvatninu og það tekur
sinn tíma. Fjárfestir eða fjármál
koma sterkt inn. Draumar rætast
eða ákveðnir þættir sem veita gleði
og ánægju. Velgengni og frjósemi
mikil og kemur næsta sumar sterkt
inn. Kærleikur er heilun.
VOG 23. sept.–22. okt.
Voginni berast fréttir sem hafa mikil
áhrif á hana. Krefjandi verkefni sem
tekur hugann allan og það tengist
vinnunni. Góðar og traustar fréttir frá
banka, eða sterkri stofnun sem hefur
völd. Mikið ljós og mikil vernd er yfir
öllu. Nú er vog í stakk búin til að taka
á móti. Fjárhagsleg og tilfinningaleg
vellíðan er framundan. Mannkærleik-
ur og fullkomnun er heilun.
SPORÐDREKI 23. okt.–21. nóv.
Eitthvað óvænt gerist í vikunni.
Sporðdreki er tilbúinn að ná árangri í
starfi, nýta listræna hæfileika til hins
ýtrasta og er mikil vinna framundan.
Einnig er í sjónmáli lausn á erfiðu
verkefni sem hefur íþyngt sporðdreka
um tíma. Nýir tímar. Ný áform. Ýmis
tækifæri bjóðast og þarf sporðdreki að
íhuga ákvarðanir sínar. Hann uppsker
eftir samvinnu og verður ánægður
með niðurstöðu allra mála.
BOGMAÐUR 22. nóv.–21. des.
Nýjar áætlanir og ný áform. Þó
erfitt hafi verið um tíma í kring-
um vinnuna þá er einhver búbót
framundan. Fjölskyldan fagnar og
tengist það vinnumálum. Eitthvað
óvænt sem snertir fjármálin kemur
upp . Vandvirkni er þar í fyrirrúmi.
Tímamót. Undirbúningur. Samvinna
og þjónustulund ríkir. Fjármál verða
örugg. Uppskera. Að elska er heilun
STEINGEIT 22. des.–19. jan.
Ef vinna skal vel, verður lítið sofið.
Steingeitin þarf að passa upp á að fá
nægan svefn. Góðar fréttir berast að
utan. Vinnusemin er mikil. Stjórn-
sýsla verður jákvæð eftir viðkvæma
stöðu. Athafnamenn og fjárfestar
ríkja, eldmóður og seigla. Lausnir,
en mikil vinna framundan. Góðar
fréttir berast af mikilli stjórn-
kænsku. Vinna og sköpun er heilun.
VATNSBERI 20. jan.–18. feb.
Jafnvægi er lykillinn að velgengni
vatnsbera í vikunni. Sköpunarkraft-
ur ríkir. Óvæntar uppákomur. Missa
ekki af markmiðum sínum. Passa vel
heilsu sína. Erfiðir tímar eru að baki.
Fortíðin verður kvödd, nýir tímar
taka við. Vernd. Ný áform og nýjar
leiðir. Áhyggjur hverfa af fjármálum.
Að hika er sama og tapa. Íhugun,
slökun og væntumþykja er heilun
FISKAR 19. feb.–20. mars
Forsjón og vernd umlykur fisk-
ana þó óvæntar uppákomur eigi
sér stað. Fiskar þurfa ekki að hafa
áhyggjur af vinnunni sinni þótt þeir
séu leiðir á henni. Ný áform, nýjar
leiðir ríkja. Fiskar njóta mikillar
leiðtogahæfni og kemur það í ljós
á næstunni. Ný verkefni. Fiskar ná
settum markmiðum og vinna sigra.
Breytingar eru heilun.
STJÖRNUSPÁ
22.–29. septemberVinnusemi er mikil hjá landanum þessa dagana. Mannkærleikur er ávallt lykillinn að árangri og vellíðan. Nýtt upphaf ryður sér til rúms og margir upplifa andrúmsloftið hvetjandi. Stjórnsýslan verður
að standa við sitt. Markmiðin sem unnið hefur verið eftir, fyrir
landið, eru undir mikilli vernd. Fjölskyldan verður í fyrirrúmi.