Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Blaðsíða 47
Klambratúnssalat með
sýrðum og sultuðum rófum
Marentza Poulsen hefur tekið við
kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum
Eftir að hafa í tuttugu ár rekið
kaffi Flóru, veitingahúsið vinsæla
í Laugardalnum, hefur færeyska
smurbrauðsdaman, frú Marentza
Poulsen, fært sig um set.
Marentza hefur nú tekið við
rekstri kaffihússins á Kjarvalsstöð-
um en þar hyggst hún bjóða upp á
fjölbreytt ljúfmeti, í bland við góða
stemningu, alla daga vikunnar frá
klukkan tíu til fimm.
„Það er svo þægilegt fyrir fólk
að koma hingað. Kjarvalsstaðir eru
auðvitað mjög miðsvæðis, alltaf
hægt að fá bílastæði og svo er líka
frábær aðstaða hérna fyrir börn,
bæði inni á safninu en líka á þessu
fallega túni hér í kring. Umhverfið
er bara alveg einstakt og við höfum
lagt mikinn metnað í að skapa gott
og fallegt andrúmsloft á kaffihús-
inu,“ segir hún glöð í bragði.
Marentza ætlar að bjóða upp
á smurbrauð, vegansúpur, hefð-
bundnar súpur og alls konar salöt
ásamt heimabökuðu brauði og
kökum en svo mun hún einnig vera
með sitthvað sem ekki hefur verið
á boðstólum hjá kaffihúsinu áður.
Meðal annars verður hægt að koma
í girnilegan dögurð frá klukkan
11.00–14.00 allar helgar og enn
nýstárlegra verður svokallað „high
tea“, eða te fyrir lengra komna,
sem hún hyggst bjóða upp á fyrstu
helgina í hverjum mánuði.
„Eftir að dögurðinum lýkur er
hægt að koma hingað og njóta lífs-
ins í góðu yfirlæti meðan hlustað
er á lifandi djass. Gestir geta pantað
sér kampavín eða kaffi, hvort held-
ur sem er, og notið veitinganna.
Ég hugsa að þetta verði dásamleg
stemning fyrir fólk sem vill gera
sér glaðan dag,“ segir hún og bætir
við að „happy hour“ verði einnig á
dagskrá. „Það er orðið svo vinsælt
að koma í vínglas að vinnudegi
loknum.“
Brakandi ferskt salat með bökuðum og
sýrðum rófum, fíkjum og geitaosti
Undanfarin ár hefur Marentza
komið sér upp einstaklega flottum
matjurtagarði í Grasagarðinum
í Laugardal. Þar ræktaði hún allt
grænmetið sem notað var í réttina
á Flóru. Sama áhersla á ferskleika
og gæði verður lögð á nýja staðn-
um.
„Við ræktum allt okkar græn-
meti í Grasagarðinum en núna
í ágúst og september höfum við
verið að fagna nýrri uppskeru. Ég
er alin upp við það í Færeyjum að
nota rauðrófur eins og kartöflur og
annað rótargrænmeti. Venjulegu
rófurnar eru líka mjög góðar. Ef
maður sýður þetta grænmeti þá
endist það lon og don, fyrir utan
að það er mjög hollt að borða sýrt
grænmeti og í raun flestan sýrðan
mat. Það er líka gaman að nota
ferskar fíkjur í þetta salat eða leika
sér að því að karamellísera þær.
Ferskar fíkjur fást meðal annars í
Hagkaupum og rétt er að benda á
að það er hægt að velja um að nota
geitarost eða kjúkling með þessu
salati.“
UPPSKRIFT
Klambratúnssalat með sultuðum og
sýrðum rófum
Grænt salat og jurtir helst úr
garðinum
Ofnbakaðar rauðrófur
Sultaður rauðlaukur
Sýrðar rófur
Fíkjur
Geitarostur
Ristuð fræ
Öllu hráefninu blandað fallega
saman og sett í skál eða á disk.
Notið einnig tækifærið og skreytið
salatið með ætiblómum úr garðin-
um áður en veturinn tekur völdin.
Bakaðar rauðrófur
Rauðrófurnar eru skrældar og
skornar í bita áður en þeim er
dreift í í eldfast mót eða ofnskúffu.
Blandið saman góðri ólífuolíu,
balsamic-ediki, smá hunangi, salti
og pipar og fersku timjan. Hellið
blöndunni yfir rauðrófurnar og
hrærið vel. Hitið ofninn í 175°C
og bakið rauðrófurnar í 30 mín-
útur eða þar til þær eru farnar að
mýkjast.
Sýrðar rófur
1 kg rófur, skrældar og skornar í
bita
Smá ferskt engifer, um það bil
3 sentimetrar, skorið í þunnar
sneiðar
1 l vatn
½ l kryddedik
1 kg sykur
Blandið saman vatni og ediki og
látið rófurnar og engiferið mar-
ínerast í þessu yfir nótt. Næsta dag
er grænmetið sett í pott í þessari
blöndu, sykrinum blandað saman
við og svo er þetta látið sjóða
við vægan hita þar til rófurnar
mýkjast mátulega mikið og verða
mjúkar undir tönn.