Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Page 47
Klambratúnssalat með sýrðum og sultuðum rófum Marentza Poulsen hefur tekið við kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum Eftir að hafa í tuttugu ár rekið kaffi Flóru, veitingahúsið vinsæla í Laugardalnum, hefur færeyska smurbrauðsdaman, frú Marentza Poulsen, fært sig um set. Marentza hefur nú tekið við rekstri kaffihússins á Kjarvalsstöð- um en þar hyggst hún bjóða upp á fjölbreytt ljúfmeti, í bland við góða stemningu, alla daga vikunnar frá klukkan tíu til fimm. „Það er svo þægilegt fyrir fólk að koma hingað. Kjarvalsstaðir eru auðvitað mjög miðsvæðis, alltaf hægt að fá bílastæði og svo er líka frábær aðstaða hérna fyrir börn, bæði inni á safninu en líka á þessu fallega túni hér í kring. Umhverfið er bara alveg einstakt og við höfum lagt mikinn metnað í að skapa gott og fallegt andrúmsloft á kaffihús- inu,“ segir hún glöð í bragði. Marentza ætlar að bjóða upp á smurbrauð, vegansúpur, hefð- bundnar súpur og alls konar salöt ásamt heimabökuðu brauði og kökum en svo mun hún einnig vera með sitthvað sem ekki hefur verið á boðstólum hjá kaffihúsinu áður. Meðal annars verður hægt að koma í girnilegan dögurð frá klukkan 11.00–14.00 allar helgar og enn nýstárlegra verður svokallað „high tea“, eða te fyrir lengra komna, sem hún hyggst bjóða upp á fyrstu helgina í hverjum mánuði. „Eftir að dögurðinum lýkur er hægt að koma hingað og njóta lífs- ins í góðu yfirlæti meðan hlustað er á lifandi djass. Gestir geta pantað sér kampavín eða kaffi, hvort held- ur sem er, og notið veitinganna. Ég hugsa að þetta verði dásamleg stemning fyrir fólk sem vill gera sér glaðan dag,“ segir hún og bætir við að „happy hour“ verði einnig á dagskrá. „Það er orðið svo vinsælt að koma í vínglas að vinnudegi loknum.“ Brakandi ferskt salat með bökuðum og sýrðum rófum, fíkjum og geitaosti Undanfarin ár hefur Marentza komið sér upp einstaklega flottum matjurtagarði í Grasagarðinum í Laugardal. Þar ræktaði hún allt grænmetið sem notað var í réttina á Flóru. Sama áhersla á ferskleika og gæði verður lögð á nýja staðn- um. „Við ræktum allt okkar græn- meti í Grasagarðinum en núna í ágúst og september höfum við verið að fagna nýrri uppskeru. Ég er alin upp við það í Færeyjum að nota rauðrófur eins og kartöflur og annað rótargrænmeti. Venjulegu rófurnar eru líka mjög góðar. Ef maður sýður þetta grænmeti þá endist það lon og don, fyrir utan að það er mjög hollt að borða sýrt grænmeti og í raun flestan sýrðan mat. Það er líka gaman að nota ferskar fíkjur í þetta salat eða leika sér að því að karamellísera þær. Ferskar fíkjur fást meðal annars í Hagkaupum og rétt er að benda á að það er hægt að velja um að nota geitarost eða kjúkling með þessu salati.“ UPPSKRIFT Klambratúnssalat með sultuðum og sýrðum rófum Grænt salat og jurtir helst úr garðinum Ofnbakaðar rauðrófur Sultaður rauðlaukur Sýrðar rófur Fíkjur Geitarostur Ristuð fræ Öllu hráefninu blandað fallega saman og sett í skál eða á disk. Notið einnig tækifærið og skreytið salatið með ætiblómum úr garðin- um áður en veturinn tekur völdin. Bakaðar rauðrófur Rauðrófurnar eru skrældar og skornar í bita áður en þeim er dreift í í eldfast mót eða ofnskúffu. Blandið saman góðri ólífuolíu, balsamic-ediki, smá hunangi, salti og pipar og fersku timjan. Hellið blöndunni yfir rauðrófurnar og hrærið vel. Hitið ofninn í 175°C og bakið rauðrófurnar í 30 mín- útur eða þar til þær eru farnar að mýkjast. Sýrðar rófur 1 kg rófur, skrældar og skornar í bita Smá ferskt engifer, um það bil 3 sentimetrar, skorið í þunnar sneiðar 1 l vatn ½ l kryddedik 1 kg sykur Blandið saman vatni og ediki og látið rófurnar og engiferið mar- ínerast í þessu yfir nótt. Næsta dag er grænmetið sett í pott í þessari blöndu, sykrinum blandað saman við og svo er þetta látið sjóða við vægan hita þar til rófurnar mýkjast mátulega mikið og verða mjúkar undir tönn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.