Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 6
6 Helgarblað 22. september 2017fréttir Hjalti var viðriðinn mjólkurhneyksli 1986 Ó hætt er að fullyrða að Hjalti Sigurjón Hauksson hafi verið einn umtalaðasti maður landsins undan­ farna daga. Meint leyndarhyggja ráðherra Sjálfstæðisflokkinn með þá staðreynd að Benedikt Sveins­ son, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, hafi verið einn af meðmælendum Hjalta Sigurjóns vegna umsóknar um uppreist æru varð þess valdandi að ríkisstjórn­ in féll og óvæntar kosningar til Al­ þingis eru yfirvofandi. Fáir vita hins vegar að Hjalti Sigurjón tengdist inn í hneykslis­ mál hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík árið 1986 sem vakti mikla athygli fjölmiðla á sínum tíma. Um var að ræða skipulagð­ an þjófnað starfsmanna á mjólk sem var síðan seld á hálfvirði til vel valinna kaupmanna á svört­ um markaði. „Við vorum bara vill­ ingar og hegðuðum okkur eins og bjánar,“ segir Hjalti Sigurjón í sam­ tali við DV og fullyrðir að hann hafi verið peð í svindlinu. Rekinn og handtekinn Þann 7. febrúar 1986 greindi Morgunblaðið frá því að bílstjóri hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík hefði verið handtekinn, að beiðni forráðamanna fyrirtækisins, grun­ aður um að hafa stolið mjólk og selt hana á hrakvirði til verslana. Þessi ungi maður var Hjalti Sigur­ jón Hauksson en þegar málið kom upp hafði hann einungis starf­ að hjá fyrirtækinu í sex mánuði. Nokkru fyrr hafði Hjalta verið sagt upp störfum vegna málsins. Hann var síðan handtekinn og játaði að­ ild sína að verknaðinum. Kom fram í fyrirsögn Morgunblaðsins að Hjalti Sigurjón hefði selt mjólk til um tuttugu verslana. Málið komst upp fyrir árvekni annarra bílstjóra sem áttuðu sig á því að þegar var búið að keyra með mjólkurvörur í verslanir sem þeir höfðu ekki heimsótt. Þar með fór boltinn að rúlla og þjófnaðurinn kom í ljós. Ekkert í bókhaldi fyrir­ tækisins benti til þess að misferli sem þetta hefði verið í gangi. Í samtali við blaðamann DV segir Hjalti: „Þetta er orðið svo gamalt mál. Það voru örugglega um áttatíu manns sem tengdust þessu máli með einum eða öðrum hætti. Ég vann þarna eitt sumar og var kennt þetta þegar ég mætti. Það voru stjórnendur þarna sem höfðu byggt húsin sín með því að stunda þetta,“ segir Hjalti Sigurjón í samtali við blaðamann. Hjalta Sigurjóni var umsvifalaust vik­ ið frá störfum en tíu manns, sem voru látnir sæta ábyrgð, fengu boð um að segja upp að sjálfir. Að sögn Hjalta sluppu höfuðpaurarnir hins vegar og umfang málsins var þagg­ að niður af Mjólkursamsölunni. Lögðu niður störf í mótmælaskyni Starfsmenn Mjólkursamsölunn­ ar voru afar óhressir með hvernig tekið var á málinu. Stjórnendur fyrirtækisins höfðu einir upplýs­ ingar um hvaða verslanir höfðu gerst sekar um að taka þátt í svika­ myllunni sem og hvaða starfs­ menn áttu að hafa skipulagt hana. Nöfn þessara verslana voru ekki gerð opinber. Svo fór að stór hluti starfsmanna lagði niður störf og neitaði að afgreiða mjólk frá af­ greiðslustöðinni til þeirra verslana sem þeir vissu um að hefðu tekið þátt í svindlinu. Tilgangurinn var að þannig gæti almenningur séð hvar mjólk var ekki til sölu og þar með lagt saman tvo og tvo. Talsvert moldviðri þyrlaðist upp í samfélaginu vegna þessa og mikið mæddi á Ólafi Ólafssyni, yfir trúnaðarmanni starfsmanna hjá Mjólkursamsölunni. „Ég hef verið stanslaust í símanum frá því að þessi deila kom upp. Kaup­ menn, sem eru á listanum okkar, hafa hótað mér óskaplegum hegn­ ingum, eiginlega öllu nema lífláti. Þeir segjast geta gert mig eigna­ lausan,“ sagði Ólafur í viðtali við DV meðan á atganginum stóð. „Gömlu jaxlarnir eru ekki í þessu“ Starfsmennirnir voru með tíu verslanir á lista en vildu fá upp­ gefið hverjar hinar tíu verslanirnar voru. Ólafur kvað starfsmenn hafa samþykkt að hefja aftur útkeyrslu á vörum gegn loforði um að sjá heildarlistann en það hafi síðan verið svikið. „Þessi deila stend­ ur einfaldlega um það hvort við starfsmennirnir eigum að hafa aðgang að sömu gögnum í þessu máli og forstjóri Mjólkursam­ sölunnar. Forstjórinn veit allt um þetta og rekur menn í samræmi við það. Við vitum hins vegar lítið hverju fram fer. Þó erum við vissir í okkar sök varðandi þær tíu versl­ anir sem við höfum sett í mjólkur­ bann,“ sagði Ólafur í sama viðtali. Þá kemur fram í umfjöllun DV á þessum tíma að samkvæmt heim­ ildum blaðsins hafi verið hylmt yfir með stórverslunum sem tóku þátt í svindlinu. „Það hefur verið kippt í spottana vegna þess að stórhags­ munir eru í húfi,“ sagði Ólafur og benti einnig á að eingöngu ung­ um mönnum sem hefðu starfað skamma hríð við mjólkurkeyrslu hefði verið sagt upp störfum. „Gömlu jaxlarnir eru ekki í þessu.“ Sátt náðist loks í deilum starfs­ manna og yfirstjórnar og starfsemi Mjólkursamsölunnar féll í eðli­ legt horf. Málið fjaraði síðan út og enginn þurfti að svara fyrir gjörðir sínar frammi fyrir dómstólum. n n „Við vorum bara villingar og hegðuðum okkur eins og bjánar“ Stórt blaðamál Allir fjölmiðlar landsins fjölluðu ítarlega um mjólkurþjófnaðinn. Málið fjaraði hins vegar út og enginn var dreginn til ábyrgðar fyrir utan unga menn, eins og Hjalta Sigurjón, sem misstu vinnuna. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.