Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Qupperneq 26
Það eru alls konar týpur til í heiminum en flestum má líklegast skipta í tvo flokka. Önnur týpan er sú sem sér glasið alltaf hálf fullt, hinni finnst eins og það sé alltaf hálf tómt. Samt vitum við að í raun er hvorugt rétt. Það er bara ákveðið magn í þessu glasi en viðhorf þín segja til um hvort þér finnst magnið mikið eða lítið. Raunsæismenn og rómantíkusar. Konur og karlar. Jin og jang. Stundum finnst mér eins og vinstrisinnað fólk haldi oftar á hálftómu glasi. Finnist allt frekar ómögulegt. Kvarta og kveina. Þá aðallega yfir hægrisinnuðu fólki sem þeysir ofur peppað fram veginn. Gobbiddigobb … Og hægrisinnaða fólkið, er það stundum fáránlega bjartsýnt? Veruleikafirrt? Kannski stundum? Ég veit bara að það er ekki gaman að taka þátt í selskap þar sem fólk röflar og tuðar yfir því hvað lífið er vonlaust og ömurlegt. Hvorki í netheimum né ketheimum. Samfélags- miðlar eru ekkert öðruvísi en venjuleg partí. Þið standið í eldhúsinu, skálið í freyðivíni og inn kemur frændinn sem hatar lífið. Ef það væri hægt að „blokkera“ hann þá myndi maður gera það en í staðinn laumar fólk sér bara út úr eldhúsinu. Ég var í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni að rabba við nágranna mína um kvikmyndina Undir trénu og sitthvað fleira skemmtilegt. Þetta var notaleg stund þar til frekar lifaður gamall rafvirki mætti til leiks og fór að röfla um hvað nútíminn væri hræðilegur. Allt svo ömurlegt á Íslandi. Annað en hérna áður fyrr. Ha? Ha? Karlinn talaði hátt og sperrti sig upp í pottinum meðan hann lét dæluna ganga. Ríkisstjórnin, heil- brigðiskerfið, vegakerfið, tollarnir, menntakerfið … honum fannst þetta allt saman endalaust rotið og ömurlegt. Líklegast þótti honum líka allt of lítið vatn í pottinum. Hálftómur bara. Ég komst ekki að því, vegna þess að auðvitað tæmd- ist potturinn þegar við flúðum rafvirkjann röflandi. Ætli ég sé ekki bara svolítið sammála prófessor Altúngu sem ráðlagði Birtingi með þessum orðum: „Maður á að segja að allt sé í allra besta lagi.“ Þá er lauflétt veruleikafirring skemmtilegri, svo lengi sem maður nær að rækta garðinn sinn í leiðinni. Margrét H. Gústavsdóttir Neikvæðni í netheimum og ketheimum Rafvirkinn sem tæmdi heita pottinn með röfli Danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, einnig þekkt sem Sigga Soffía, er meðal fárra kvenna í heiminum sem sérhæfa sig í að hanna flugeldasýn- ingar. Þrjú ár í röð hannaði hún til dæmis flugeldasýningarnar sem hafa verið hápunktur Menningarnætur en um helgina ræðst hún í sitt stærsta flugeldaverkefni til þessa; opnunar- sýninguna á lista hátíðinni La Mercé í Barcelona sem hefst laugardaginn 22. september. Hefð hefur skapast fyrir því að velja eina borg sem höfð er í forgrunni La Mercé-hátíðarinnar ár hvert. Buenos Aires var fókusborgin í fyrra en Reykjavík varð fyrir valinu þetta árið. Reiknað er með að um tvær milljónir þátttakenda leggi leið sína til Barcelona, bæði listamenn og listunnendur. Nú standa hins vegar yfir mikil mótmæli um alla borgina og því liggur beint við spyrja Siggu hvort hún sé ekki svolítið stressuð? „Jú, auðvitað. Ég er einmitt að lesa fréttir af þessum mótmælum á netinu. Það er víst mikil reiði í borgarbúum og mótmælendur úti um allt,“ segir Sigga Soffía sem er við það að stíga upp í flugvélina þegar viðtalið er skrifað. Fjölmargir listamenn frá Íslandi munu taka þátt í hátíðinni um helgina og svolítill uggur í mönnum. „Okkur er samt sagt að halda áfram eins og ekk- ert hafi í skorist. Þetta er líka svo stór hátíð. Það verða viðburðir alls staðar í borginni. Um leið og ég sýni mótmælendum fullan skilning, þá vonast ég samt til að að mótmælin haldi áfram að vera nokkuð friðsæl,“ segir Sigga sem var svo óheppin að þurfa að upplifa hryðjuverkaárás- irnar í París 13. nóvember 2015 þar sem hún var stödd ásamt eiginmanni sínum og dóttur á hóteli, mitt á milli árásarstaða, fjögur hundruð metra frá Bataklan-tónleikahöllinni. Vonar að ekki komi til borgarastyrjaldar „Við vorum í eldlínunni, á milli veitingastaðarins þar sem skotið var á fólkið og tónleikastaðarins. Sem betur fer sluppum við inn á hótel en þurftum svo að vera þar innilokuð í þrjá daga vegna útgöngubanns sem var sett á í borginni. Slíkt hafði ekki gerst síðan í seinni heimsstyrjöldinni í París. Þetta er alveg furðulegt. Ég hef ekki tekið dóttur mína með til útlanda eftir að við upplifðum þessi ósköp og nú þegar ég ætla að taka hana með til Spánar, þá er mögulega yfirvofandi borgarastyrjöld? Hvað er þetta eiginlega? Maður verður samt bara að vona það besta,“ segir hún bjartsýn enda spennandi verkefni framundan. Ein örfárra kvenna í bransanum Hvernig kom það til að þú fékkst það verkefni að stýra flugeldasýningu af þessari stærðargráðu? „Listrænn stjórnandi La Mercé gerði sér ferð til Íslands í vetur til að undirbúa hátíðina, hitta íslenska listamenn og velja þátttakendur. Henni fannst afar óvanalegt að „kona“ væri að hanna flugelda- sýningar þar sem þetta er mjög karllægur bransi og bauð mér að vera með. Ég hikaði auðvitað ekki í eina sekúndu enda ekki á hverjum degi sem maður fær það tækifæri að stýra svo stóru verki. Flugeldar eru rándýrir, þetta er flókið verk í framkvæmd og mikill heiður að vera valin til vera í forsvari fyrir þjóðina okkar á þessari hátíð,“ segir Sigga eftirvæntingarfull. „Þessi sýning mun standa yfir í þrjátíu mínútur en til samanburðar eru sýningarnar á Menningarnótt um sjö til tíu mínútur, þær lengstu. Það er gífurlegt magn af sprengi- efnum notað í þetta og sumar sprengjurnar eru ótrúlega skemmti- legar uppfinningar. Til dæmis nýjar sprengur sem kallast „vatnsskeljar“. Þær springa á vatni. Svo er það Nisiki Kamuro (ein vinsælasta sprengjan úti) sem setur ný viðmið í flugeldum þegar kemur að litasam- setningum og tvöföldun á stærð sprengjanna sem fara í loftið miðað við íslenskar sýningar.“ Northern Nights á ströndinni Sýningarstaðurinn er ekki af verri endanum. Sýningunni verður skotið upp af Barceloneta-ströndinni í Barcelona þar sem þúsundir áhorfenda munu fá tækifæri til að njóta verksins. „Mér finnst það ótrúlega mikill heiður að hafa verið valin fyrir hönd Reykjavíkur til að gera þessa stóru sýningu. Hún hefur fengið mjög viðeigandi nafn, „Northern Nights“, og ég hlakka mikið til að sjá hana fara í loftið,“ segir Sigga sem er þó ekki að fara að skjóta flugeldunum upp sjálf. „Ég kem þarna sem eins konar eftirlits- maður. Mitt hlutverk var að hanna sýninguna en svo eru aðrir sem sjá um að stilla þessu upp og setja hana í gang.“ Ætlar ekki að elta flugeldatískuna Sigga segist ekki ætla að hafa tónlist undir flugeldunum og hefur það sérstaka listræna þýðingu. „Ef ég myndi nota tónlist þá væri ég að hreyfa flugeldana eftir tónlistinni sem þýðir að þá væri ég að nýta mér smíðavinnu tónlistarmannsins og stytta mér leið, sem er svo sem í lagi. En ég ákvað að gera það ekki í þetta sinn. Maður vill að hreyfingarnar, hvort sem er dansarans eða flugeld- anna, séu sjálfstætt verk. Allir nota tónlist við flugeldasýningar þessa dagana en mig langar ekki að gera það. Ég vil ekki fylgja straumnum í flugelda tískunni. Svo hafa flugeldar alls konar hljóð, mishávær eða mjúk. Þannig að hægt er að skapa tónverk með því að nota hljóðin, eða þagn- irnar, sem þeir gefa frá sér,“ segir dansarinn og flugeldastýran Sigríður Soffía Níelsdóttir að lokum. Instagram: Sigga Soffía siggasoffiainc Lýsir upp Loftið með Ljósum og Látum! Sigga Soffía stýrir flugeldasýningu fyrir þúsundir áhorfenda í Barcelona um helgina Flugeldadrottning Sigríður Soffía Níelssen dansari er jafnframt flugeldasérfræðingur, sem er afar fátítt meðal kvenna. Mynd Marino Thorlacius
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.