Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Síða 31
Það er mikilvægt að láta sér líða vel með þeim sem manni þykir vænt um og
hér skiptir kynlífið miklu máli,
óháð aldri og heilsu. Fimm af
hverjum tíu körlum á aldrinum 40
til 70 ára lenda í vandræðum með
stinningu. Rétt er að leggja á það
áherslu að í mjög fáum tilvikum
stafar þetta af vanda í samskipt
um viðkomandi pars. Oftast nær
liggja líkamlegar eða líffræðilegar
ástæður að baki. Hjá körlum
með sykursýki er þetta til dæmis
algengur fylgikvilli, og hjá þeim
sem eru með hjartasjúkdóm lenda
fjórir af hverjum tíu í vandræðum
með stinningu. Það er ekki svo að
maður verði að sætta sig við þetta
því ýmislegt er hægt að gera og oft
getur það hjálpað ef konan hefur
frumkvæði að því að ræða málið.
Á maðurinn minn í vandræðum með
stinningu?
Ef eiginmaður þinn eða félagi á
erfitt með að láta sér rísa hold
þannig að það bitni á kynlífinu þá
má tala um stinningarvanda eða
ristruflun. En slíkt þýðir ekki að
hann sé ófrjór og geti ekki haft
sáðlát eða fengið fullnægingu.
Hvaða áhrif hefur þetta á manninn?
Karlar meta að hluta til eigin
verðleika út frá hæfileikum sínum
á sviði kynlífsins. Ef þeir ná
ekki stinningu eða tekst ekki að
viðhalda henni getur það ork
að sálrænt á þá. Vonbrigði geta
komið fram, taugatitringur og
áhyggjur af frammistöðu, einnig
reiði, þunglyndi og öryggisleysi.
„Ef ég get ekki stundað eðlilegt
kynlíf með elskunni minni þá hef
ég svikið hana sem ástmaður og
maður.“ Það getur reynst erfitt að
ræða málið og þá getur svo farið
að maðurinn þjáist í einrúmi og
þögn.
Hvaða áhrif hefur þetta á konuna?
Vandamálið getur einnig kallað
fram sterkar tilfinningar hjá
konunni, meðal annars reiði,
vonbrigði, áhyggjur af mannin
um, taugatitring, öryggisleysi og
áhyggjur af eigin frammistöðu.
Margar konur fara að ímynda sér
að þær séu ekki nógu aðlaðandi og
kvenlegar ef karlinn á í vandræð
um með stinningu.
Ef karl eða kona fær á tilfinn
inguna að hún (hann) sé ekki eins
eftirsótt(ur) og áður verður þörfin
meiri fyrir umhyggju og ást. Karl
inn reynir að vísu að forðast slíkt
af ótta við að það leiði til væntinga
um kynlíf sem hann getur ekki
staðið sig í.
Þessi vandi með stinningu get
ur smátt og smátt farið að orka á
aðra þætti sambúðarinnar. Spenna
getur myndast ásamt þeirri til
finningu að æ meiri fjarlægð sé að
verða í sambandinu.
Er unnt að meðhöndla þennan
vanda mannsins míns?
Það má meðhöndla ristruflun hjá
langflestum. Karlinn þinn þarf því
ekki að sætta sig við að búa bara
við þetta; margar leiðir til með
höndlunar eru fyrir hendi.
Hvað get ég gert sjálf?
Það er ýmislegt hægt að gera:
Mikilvægast er að geta rætt
þennan vanda við karlinn. Það er
kannski ekki auðvelt að eiga frum
kvæði að því en það sýnir áhuga
þinn á vandamálinu og vilja til að
leysa það ef þú kynnir þér hugsan
legar orsakir og meðhöndlun.
Ef maðurinn þinn á að fá
meðhöndlun verður hann að tala
við lækni. Þú getur kannski boðist
til að fara með. Því fyrr sem tekið
er á vandanum því fyrr er unnt að
finna hvaða meðhöndlun hentar
best. Auðvitað er það karlinn sem
fer í meðhöndlunina en stuðningur
þinn við að koma þessu í kring
getur skipt sköpum.
Ef karlinn þinn reykir eða neytir
mikils áfengis getur það aukið á
vandann. Þú skalt ráðleggja honum
að fá aðstoð læknis til að minnka
eða hætta reykingum og drykkju.
Ýmis lyf geta orsakað vanda við
stinningu eða bætt á vanda sem fyrir
er. Einkum er um að ræða lyf við
háum blóðþrýstingi, flogaveiki og
þunglyndi auk vatnslosandi lyfja. Ef
þið teljið að vandinn tengist nýjum
lyfjum sem maðurinn hefur fengið er
mikilvægt að hann láti lækninn vita.
Hvers konar meðhöndlun
er um að ræða?
Læknir ykkar getur leiðbeint ykkur
um ýmsa möguleika til meðhöndl
unar. Það er yfirleitt ekki þörf á
miklum rannsóknum áður en
meðhöndlun getur hafist. Maðurinn
þarf hins vegar að ræða við lækni
um hvað hafi angrað hann og hvaða
lyf hann tekur. Hugsanlega verður
tekið af honum hjartalínurit (EKG,
þar sem rafskaut eru sett á brjóstið)
og blóðþrýstingur mældur.
Það er óhætt að taka lyf við
ristruflun ef þess er gætt að:
n fá lyfin með lyfseðli frá lækni.
n ræða við lækni um fyrri sjúk
dóma og önnur lyf áður en með
höndlun hefst.
n ræða við lækni ef aukaverkanir
koma fram.
n fylgja ráðum læknis um
skammtastærð.
Fleiri upplýsingar við þessum
vanda og öðru sem tengist heilsu og
vellíðan er að finna á www.doktor.is
8 heilræði til að
koma kynlífinu í lag
1. Vertu hreinskilin Við sjálfa þig
Ef maðurinn þinn á við ristruflun að stríða skaltu spyrja þig nokkurra spurninga:
Hefur þetta vandamál áhrif á okkar samband? Hefur þetta vandamál haft áhrif
á innileikann í sambandi okkar? Gæti ég vel hugsað mér að maðurinn minn
næði aftur fyrri getu? Svörin við þessum spurningum segja til um hve reiðubúin
þú ert til að hjálpa manninum þínum við að finna lausn á vanda hans.
2. hreinskilnar samræður
Það er mikilvægt að þú spyrjir manninn þinn um vanda hans og hvort hann vilji
gera einhverjar ráðstafanir. Ræddu opinskátt við hann um tilfinningar þínar,
þarfir og óskir. Ef þið eruð bæði sammála um að meðhöndlun sé rétta skrefið
skaltu hjálpa honum að hrinda málinu í framkvæmd.
3. leitið eftir hjálp fagmanna
Góð meðhöndlun krefst aðstoðar frá lækni ykkar. Mikilvægt er að fara í
rannsókn hjá honum til að komast að raun um hvort orsakir vandans séu af
heilsufarsástæðum og til að glöggva sig á hvaða meðhöndlun eigi best við.
4. Veljið meðhöndlunina sameiginlega
Enda þótt sumir karlar geti komist að því sjálfir hvaða meðhöndlun henti er hitt
þó sennilega best að þið takið ákvörðunina saman um það hvaða leið þið hafið
mesta trú á.
5. Verið þolinmóð
Ekki er öruggt að fyrsta meðhöndlun sem valin er virki strax. Gefist ekki upp. Ef
þið eruð enn óánægð eftir nokkrar tilraunir, reynið þá aðra meðhöndlun. Verið
tilbúin að prófa ykkur áfram.
6. skipuleggið eftirlit hjá lækni
Það er mikilvægt að maðurinn fari til læknis með reglubundnu millibili til að
tryggja að meðhöndlunin sé fullnægjandi og að ekki komi upp neinir fylgikvillar.
7. Íhugið kosti Við ráðgjöf
Kynlífsráðgjöf getur verið heppileg til að styrkja sambandið.
8. haldið samVinnunni áfram
Par sem vinnur saman að því að ná góðu kynlífi uppsker vel í flestum tilvikum.
til kvenna
sem eiga
eigin- eða
ástmann með
ristruflun
Fimm af hverjum tíu karlmönnum
á aldrinum 40–70 ára eiga við
ristruflun að stríða