Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 38
Helgarblað 22. september 2017KYNNINGARBLAÐ4 Veislur Árbæjarblóm sjá um skreytingarnar í veisluna Góð samvinna við viðskiptavininn lykilatriði Eitt af því sem skiptir miklu máli í vel heppn­aðri veislu eru fallegar skreytingar sem gjarnan eiga stóran þátt í að skapa rétta stemningu sem hæfir tilefn­ inu. Blómaverslunin Árbæjar­ blóm hefur sérhæft sig í skreytingarþjónustu fyrir hin ýmsu tilefni. Eigandi versl­ unarinnar er Helga marta Helgadóttir en hún leggur mikla áherslu á góða sam­ vinnu við viðskiptavininn sem er lykilatriði að vel heppnaðri útkomu. „við tökum að okkur skreytingar fyrir alls konar veislur, brúðkaup, skírnir, fermingar, útfarir – hvað sem til fellur. Þegar fólk undirbýr veislu kemur það gjarnan til okkar með ákveðnar hug­ myndir sem við reynum útfæra í góðri samvinnu við viðskiptavininn. við förum jafnvel í salinn, skoðum okkur um og komum með hug­ myndir á móti um hvernig hægt er að vinna verkefnið. Ef við erum að skreyta sal förum við alltaf á staðinn ef við höfum ekki komið þangað áður,“ segir Helga. ljóst er að þessi ólíku tilefni krefjast færni í að skreyta sali á mjög ólíkan hátt eða eftir tilefninu hverju sinni. „líka að hlusta alltaf vel á viðskipta­ vininn og hvaða væntingar hann hefur,“ segir Helga og bætir við að Árbæjarblóm sinni fyrirtækjaþjónustu líka í sívaxandi mæli: „við sinnum fyrirtækjum mikið enda erum við þannig staðsett að við erum með gríðarlega mörg fyrirtæki í kringum okkur. Þetta eru gjarnan árshátíðir en líka ýmis önnur tilefni hjá fyrirtækjum, stór og smá.“ Árbæjarblóm er stað­ sett að Hraunbæ 102, 110 reykjavík. síminn er 567­3111. Heimasíðan er arbaejarblom. is. verslunin er opin mánu­ daga til laugardaga frá 10 til 19 og sunnudaga frá kl. 11 til 18. Helga segir algengast að fólk komi beint í verslunina til að panta skreytingar- þjónustu. Margir hringja þó á undan sér í síma 567-3111 til að gera boð á undan sér enda gott að finna tíma til að setjast niður með við- skiptavininum og ræða málin vandlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.