Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 46
Planið er að upplifa mjög skemmtilegt föstudags-kvöld með vinkonum á Strandgötunni í Hafnarfirði. Þar ætla nánast öll fyrirtækin að bjóða upp á eitthvað öðruvísi og skemmtilegt. Alls konar afslátt og tilboð. Til dæmis verður „happy hour“ af kokteilum á Von Mat- húsi fram á kvöld, Papar verða með tónleika í Bæjarbíói, Rósa Guðbjarts ætlar að kynna Betra líf án plasts, bókina sem hjálpar okkur að nota minna af plasti, Álfagull býður upp á vínsmökk- un og svo mætti lengi telja. Það verður meira að segja gert vel við hundana því Litla gæludýrabúðin verður með fría klóaklippingu og helmings afslátt af hundabaði! Við sem erum með verslanir í miðbæ Hafnarfjarðar höfum gert þetta nokkrum sinnum áður og það hefur alltaf tekist mjög vel til enda finnst bæjarbúum einstak- lega notalegt að rölta þarna um, skoða fallega gripi, smakka vín og veitingar og ganga svo kannski bara heim. Í búðinni minni ætla Octagon skartgripir að vera með „pop-up“ búð og auðvitað bjóðum við tuttugu prósenta afslátt af öllum Andreu-vörum. Á laugardaginn mun ég örugglega hvíla mig svolítið eftir föstu- dagskvöldið en hefst svo handa við að pakka í ferðatösku fyrir Spánarferð á sunnudaginn. Þá finn ég til kímonó, kjóla, sandala, einar stuttbuxur og auðvitað góð sólgleraugu.“ Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður: Ætlar að taka þátt í stelpukvöldi á Strandgötunni, smakka kokteila á „happy hour“ og fljúga svo til Spánar á sunnudag. Hvað ætlarðu að gera um helgina? Andrea ætlar að vera í stuði með stelpunum á Strandgötunni HEITT Sófasett Af því það er gefandi að sitja heima í stofu og spjalla við góða gesti. Nokia 6610 og aðrir ósnjallir farsímar Það er ágætt að fara svolítið aftur í tímann með tæknina. Jóga við stofuhita Mögulega besta líkamsrækt í heimi. Heilnæmar æfingar sem kyrra bæði líkama og sál. Best að iðka utandyra, ef vel viðrar, eða við góða loftræstingu inn- andyra. Helst sem oftast. KALT Sjónvarpssófar Af hverju ekki frekar sófasett sem hvetur gesti til að sitja gegnt hvor öðrum og spjalla um heima og geima? Snjallsímar Þeir eru ágætir í hófi en mættu hafa sams konar viðvörun og sígarettupakkar, enda nokkuð ávanabindandi og geta valdið óhamingju. Svita- eða hot-jóga Það hefur aldrei verið sannað að það geri líkamanum gott að kófsvitna við takmarkaða áreynslu í líkamsrækt. Og getur þessi ofhitun í lokuðu rými ekki haft skaðleg áhrif á byggingar? Valdið myglu og þess háttar? Fróðleikur um sushi Hvað heita þessir fallegu bitar? Ekki má teljast langt síðan fæstir Íslendingar vissu hvað sushi er en nú er þessi þjóðarréttur Japana ákaflega vinsæll hjá okkur, enda ekki langt að sækja gott hráefni. Sushi er bæði borðað sem skyndibiti og sem spariréttur en þá er það gjarna pantað af veitinga- stöðum eða matreiðslumeisturum sem hafa sérstaka þekkingu á því hvernig sushi er gert. Þetta þýðir þó ekki að sushi sé of flókið fyrir venjulegt fólk. Hver sem er getur búið til sushi svo lengi sem réttu græjurnar eru við höndina, til dæmis góður pottur fyrir hrísgrjónin og bambusmotta til að móta vefjurnar. Það getur verið prýðileg skemmtun fyrir vini að koma saman til að gera sushi á góðu laugardagskvöldi. Meginuppistaðan í sushi er smágerð hrísgrjón, soðin og blönduð ediki og sykri. Þetta er gert til að ná fram réttu „klístur- stigi“ en það er mikilvægt til að hrísgrjónin loði saman. Svo er margs konar hráefni notað með þessu. Aðallega hrár fiskur og annað sjávarfang, til dæmis rækjur, hrogn og þess háttar, en svo hafa sumir tekið upp á því að útbúa bæði grænmetis- og kjúklinga-sushi fyrir fólk sem kýs að borða ekki hráan fisk. Mangó, lárperur, agúrkur og rjómaostur eru meðal þess sem þykir góm- sætt í sushi-bitum. Sushi er borðað með sojasósu, wasabi og hráu engifer sem er búið að marínera en það er notað til að hreinsa munninn milli bita. Veistu hvað bitarnir heita? Sushi samanstendur af nokkrum tegundum smábita sem hver heitir sínu nafni en þetta eru þeir algengustu. Maki: Maki þýðir vefja á japönsku. Þetta er nafnið á bitan- um sem flestir sjá fyrir sér þegar sushi ber á góma. Hráefni og hrís- grjón vafin inn í nori-þangblað. Hosomaki: Minnstu vefjurn- ar, oftast með einhverju stökku í miðjunni. Nigiri: Hrísgrjónakoddi með bita af hráum fiski ofan á. Nigiri á að borða með fingrunum. Sashimi: Sashimi er einfald- lega bara biti af hráum fiski. Aldrei borið fram með hrís- grjónum og vanalega etið með prjónum. Temaki: Temaki er gert úr nori-þangblöðum, mótað í eins konar keiluform, fyllt með fiski og hrísgrjónum. Gjarna borðað á ferðinni. Uramaki: Uramaki er hvorki japanskt né samkvæmt þeirra hefðum. Þessar vefjur eru á röngunni, hrísgrjónin utanverð og stundum er sesamfræjum sáldrað yfir. Allt á röngunni „Uramaki er hvorki japanskt né samkvæmt þeirra hefðum. Þessar vefjur eru á röngunni, hrísgrjónin utanverð og stundum er sesamfræjum sáldrað yfir.“ Þú getur ÞettA Í raun geta allir útbúið sushi svo lengi sem réttu tólin eru við höndina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.