Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 63

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2017, Side 63
menning 39Helgarblað 22. september 2017 veit að það þarf að breyta aðstæð- um sínum, því þær eru fantasía. Svo skellur raunveruleikinn á þeim, þá fer spírallinn í gang og það gerir al- veg sömu vitleysuna og áður.“ Að deyja úr fantasíu „Hegðunarmynstur fólks eru svo oft óheilbrigð af því að þau tilheyra fantasíunni. Maður fantasíserar um hver maður er og hvernig sam- band manns við annað fólk er, en svo mætir maður raunveruleikan- um og bregst við með því að fara inn í eitthvert mynstur. Við erum oft að deyja úr fantasíu, sérstaklega við karlmenn. Ég á svo marga vini sem telja sig svo mikla snillinga að þeir enda á því að gera ekki neitt. Ef þeir ætla að skrifa leikrit þá eru þeir strax farnir að ímynda sér einhver Tony-verðlaun. Þarna er verið að misnota fantasíuna og hún verður að bælingartæki eða lélegu kvíða- lyfi,“ segir Tyrfingur. Annað sem hann segist hafa mikinn áhuga á, og sé að fást við í Kartöfluætunum, sé það sem hann kallar „leki“ í samskiptum. „Þetta eru persónur sem flæða, það lekur allt hjá þeim. Eins og til dæmis ef ég færi núna í miðju viðtali að reyna við þig – myndi leka yfir í þess konar samskipti – eða ef ég færi að stoppa blaðaviðtalið til þess að segja þér frá einhverjum persónulegum erfið- leikum í mínu lífi og væri að reyna að fá þig til að hjálpa mér. Persón- urnar eru allar þarna, þær eru allar hriplekar. Svona leki er ættgengur og hann er smitandi. Ef ég lek svona og þú fyllist af mínum leka þá ferð þú að leka í samskiptum við kærustuna þína. Þetta breiðist út og verður hálfgert vistkerfi af sulli.“ Mér sýnist að í nánast öllum verkunum þínum hafir þú verið á vettvangi fjölskyldunnar og óheil- brigðra samskiptamynstra í fjöl- skyldum. Er það bara eitthvað sem hentar leikhúsmiðlinum eða hvað er svona áhugavert við fjöl- skylduna? „Fjölskyldan er að einhverju leyti valdastofnun sem er að breyt- ast og liðast í sundur. Mér líður rosalega vel í þannig „dekadens“. Fjölskyldan er eins og eitthvert gamalt gestaboð, einhvern veginn alveg búið. Eitt af því sem mér finnst líka áhugavert er að í fjöl- skyldum er oftast einn aðili sem er stöðugt að fórna sér. Fólk sem er stöðugt að fórna sér tæmist af orku og fer þá að taka bensín af næsta manni í staðinn. Þetta er mjög ör- ugg leið til að verða einmana.“ Fast í sullukrók Tyrfingur segir að þótt persónurnar í verkum hans séu yfirgengilegar og gróteskar þá sé það bara væmni að halda því fram að þetta sé eitthvað sérstaklega ljótt eða vont fólk. „Fólk á bara erfitt með að viður- kenna að einhver geti bæði verið ljótur og góður, bæði asnalegur og eitthvað allt annað. Við erum bara að hitta fólk á vondum degi. Ég er sjálfur mjög gróteskur á vond- um degi. En það er líka gott að það skapist þessi fjarlægð milli áhorf- enda og persónanna. Þetta býr til falskt öryggi svo maður getur setið rólegur þangað til að BÚMM – það er búið að draga mann inn og mað- ur fattar að maður getur séð sjálfan sig í verkinu. Þetta er ástæðan fyrir því að við elskum bíómyndir um mafíósa. Maður hugsar að af því að Tony Soprano sé að skjóta ein- hvern þá fari þetta ekki of nálægt manni, en það er bara blekking, fölsk fjarlægð. Besta leiðin til að nálgast til- tekinn hlut í verki er að fjalla um eitthvað allt annað. Það sem þarf að lokka fram í áhorfandanum er litli krakkinn sem vill heyra sögu á meðan framheilinn er að vinna við að láta ekki draga sig inn í neitt – bara að passa að sofna ekki og hlæja ef eitthvað fyndið gerist. En þá þarf að nota aðrar leiðir, ýta á takka í fólki og rugla. Maður verður að gera þetta frekar snemma og þá verður viðkomandi strax pirraður. Þá þarf hann að hugsa hvort hann ætli að vera pirraður í 90 mínútur eða sjá í hvaða átt þetta þróast.“ Í nýja verkinu snertir þú á kómískan hátt á hlutum sem margir eru viðkvæmir fyrir, eins og nauðgun og barnamisnotkun. Er það þá til að ýta á takka og draga fólk fram á sætisbríkina? „Það var reyndar ekki meðvitað. Það kom bara af sjálfu sér. Ég var sjálfur smá vonsvikinn: „Ohh, ætlar þetta að verða svona verk – aftur?“ En það varð bara að vera svona. Ég ætla samt ekki að gera neitt svona næst. Ég nenni ekki alltaf að vera í einhverjum sullukrók eins og Óli leikstjóri [Ólafur Egill Egilsson] kallaði þetta,“ segir Tyrfingur og út- skýrir hvernig Hjallastefnuleikskól- ar nota hugtakið yfir þann eina stað í leikskólanum þar sem má drullu- malla og skíta sig út. „Fólkið sem ég er að fjalla um er bara fast í sullu- krók.“ Lauslátur að upplagi Tyrfingur hefur áður lýst því hversu erfitt ferli það sé að skrifa og skila af sér leikriti, en hann segir þetta hafa gengið nokkuð vel fyrir sig í þetta skiptið þótt núna, þegar viðtalið er tekið, nokkrum dögum fyrir frumsýningu, sé hann á botn- inum og dottinn í sjálfsskaðandi hugsun. „Þegar ég horfi á æfingar er það eina sem ég hugsa um, hvernig ég hefði getað gert þetta betur. Ég gef eiginlega ekki neinar nótur til leik- aranna, því þær væru allar: „Kött- um bara seinni hlutann! Hættum bara þarna!“ Það kviknar á smá sjálfsskaða hjá mér. Sem betur fer fór þetta leikrit svo fljótt í æfingu eftir að handritið var tilbúið, þannig að ég þurfti ekki að burðast með þetta helvíti einn. Það gerðist því frekar snemma að leikararn- ir tóku bara yfir persónurnar. Sig- rún Edda á Lísu núna, Atli Rafn á Mikael og svo framvegis. Þau eru svo góðir leikarar að ég næ að sætta sjálfan mig við að áhorfend- ur fái þó að minnsta kosti að sjá einhvern leika vel. Þannig að þótt ég sé strangt til tekið alveg á botn- inum er ég samt meðvitaður um þetta.“ Er ekkert erfitt fyrir skaparann að missa völdin á verkinu, ertu ekki eigingjarn á þessar persónur? „Nei, ég er svo hallur undir orgíur. Mér finnst að allir ættu að vera í orgíum. Það er líklega vegna þess að ég er lauslátur að upplagi, sem mér finnst eðlilegt og gott að þau taki við þeim. Að hluta til er þetta líka að ég vil ekki taka ábyrgð á neinu. Nú bera þau og Óli bara ábyrgð á sýningunni og ég fæ að leika mér í sullukrók.“ Falleg íslensks karlmennska Tyrfingur er yngsta leikskáldið sem hefur skrifað verk fyrir stóru leik- húsin undanfarin ár, en hann segist ekki kvíða framtíð leikhússins eða telja það vera að missa slagkraft- inn. Í Borgarleikhúsinu sé til að mynda mikill áhugi á nýjum rödd- um og ungir leikarar fái tækifæri hjá atvinnuleikhúsunum. Þá sé gróska í menntaskólunum þar sem æ fleiri skólar bjóði upp á leiklistar- kúrsa. Hann nefnir einnig ásókn í Listaháskólann og það starf sem þar fer fram, meðal annars á sviðs- höfundabrautinni. Hann tekur undir með blaða- manni sem stingur upp á að ef- laust megi greina áhrif sviðshöf- undabrautarinnar á fleiri sviðum en í leikhúsinu enda séu nemend- ur þeirrar brautar áberandi annars staðar í listalífinu, til að mynda í tónlistinni þar sem meðlimir Sturla Atlas og Reykjavíkurdætra hafa meðal annars komið inn með mjög sterka meðvitund um svið- setningu inn í tónlistar lífið. Tyrfingur segir enn fremur að úr leikhúsinu og leiktextum skapist meðvitund um að maður geti verið margt í einu, karl og kona, kynvera og siðferðisvera, og það sé umfram allt það sem þurfi í samfélagi dags- ins í dag. „Þetta er svo gott móteitur á móti skömminni. Ungir strákar á Íslandi í dag þurfa til dæmis ekki að heyra einu sinni enn hvað það sé stutt í að þeir verði handteknir fyrir að horfa á klám og að þetta eða hitt kynferðislegt sé bannað eða óeðli- legt. Svona tal eins og hefur verið um kynferðismál ratar alltaf á vit- lausa staði. Ef ég er knallsiðblindur pedófíll þá segi ég bara að einhver sé spes og „sexy diamond“ og er skítsama um umræðuna sem er tekin. En þegar þú ert ungur og móttækilegur og ert að fatta að þér finnst kannski pínu gaman að lemja einhvern eða langar jafnvel að pissa á einhvern eða eitthvað álíka þá fer svona perratal beint í iðrin og líffærin, það verður til skömm og kannski skrímsli. Það er það alvarlegasta. Við ráðum því ekkert hvert umræðan ratar og hún virðist aldrei rata á réttu staðina.“ Hann bætir þó við að lokum að íslensk karlamenning sé sífellt að verða opnari, mýkri og fallegri. „Frá því að ég var svona 17 ára finnst mér íslensk karlamenning hafa opnast mikið fyrir sam- og tvíkynhneigð og er að opnast fyrir trans-strákum að einhverju leyti. Ég sé til dæmis að margar lesbíu- vinkonur mínar eru að styrkjast í samböndum sínum við stráka, margir vinir mínir sem voru bara eins og Soffía frænka á háa séinu hafa slaknað og eru kannski í vinahópum með gagnkynhneigð- um strákum. Það er að verða til ákveðin mildi þarna. Og svo, sem er merkilegast af öllu, hvað það er orðinn stór partur af karlmennsku að vera góður pabbi og að kunna að mæta tilfinningum. það er fjöldi stráka í kringum mann með jafnt eða fullt forræði yfir börnun- um sínum. Maður sér einhverja sterabolta sem hafa verið í með- ferð að flétta hár. Mér þykir rosa- lega vænt um þetta. Þótt það séu auðvitað alltaf einhver ömurleg ódó þá er að verða til blíða og opið hugarfar í karlmennskunni. Íslensk karlmennska er falleg, mild og mjúk.“ n Tyrfingur Tyrfingsson „Þetta verk átti að vera um venjulegt fólk en svo lak það allt út fyrir.“ mynd brynjA Kartöfluætur (1885) Eftir Vincent van Gogh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.