Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 3. nóvember 2017fréttir J afn ítarleg skoðun á til­ boðsaðila hefur ekki farið fram áður af hálfu sveitar­ félagsins og það þrátt fyrir að félagið hafi unnið fyrir fleiri sveitarfélög,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akranes­ kaupstaðar, í skriflegu svari til DV. Tilefnið var útboð á niður­ rifi Sementsverksmiðjunnar á Akranesi, stærsta verkefni sinn­ ar tegundar í Íslandssögunni, sem fyrirtækið Work North ehf. varð hlutskarpast í. Eins og greint var frá í síðustu viku er mik­ il reiði meðal annarra verktaka vegna þeirrar staðreyndar að tilboð Work North ehf. var yfir­ höfuð tekið gilt. Ástæðan er sú að rekstrarsaga aðila sem tengjast Work North einkennist af gjald­ þrotum og ásökunum um mis­ jafna starfshætti. Þá var einnig gríðarleg óánægja með að opin­ berir aðilar eins og Íslandsbanki, Hafnarfjarðarbær og Akranes­ kaupstaður væru að koma fótun­ um undir aðila með slíka sögu. Þá voru efasemdarraddir uppi um að fyrirtækið uppfyllti ítar­ lega skilmála útboðanna. Reynsla starfsmanna skipti sköpum Stjórnarformaður Work North og prókúruhafi er Þórkatla Ragnars­ dóttir sem er á meðal þeirra sem undirgengust rannsókn skatt­ rannsóknarstjóra á meintum skattalagabrotum í tengslum við rekstur fyrirtækisins Brotafls. Eiginmaður hennar, Sigurjón G. Halldórsson, var einn af tveim­ ur eigendum fyrirtækisins en hann hefur keyrt mörg fyrirtæki í þrot. Þá er bróðir hans, Guðjón Halldórsson, einn af núverandi eigendum Work North. Fyrirtækið varð fyrst hlutskarpast í útboði um niður­ rif Íslandsbanka á byggingum við Kirkjusand. Næsta verkefni var niðurrif Dvergsins svokallaða við Lækjargötu 2 í Hafnarfirði. Í útboðsskilmálum bæjarins fyrir það verk kom fram að bjóðandi þyrfti að hafa lokið við eitt samb­ ærilegt verk á síðastliðnum fimm árum og því var álitamál hvort Work North uppfyllti ákvæðið. Í svari frá Einari Bárðarsyni, sam­ skiptastjóra Hafnarfjarðarbæj­ ar, kemur fram að bærinn hafi heimild til þess að meta reynslu starfsmanna sem félagið hafi ráðið til verksins. Í ljósi þess hafi Hafnarfjarðarbær talið að skil­ yrðið um reynslu og hæfni væri uppfyllt. Byggðu á fjárhagsstöðu móðurfélags- ins Þá fór Hafnar­ fjarðarbær fram á að með­ alársvelta fyrir­ tækisins síð­ astliðinn þrjú ár væri að lágmarki sem nemur 50 pró­ sentum af tilboði bjóð­ anda í verkið. Heildar­ tekjur Work North voru aðeins 780 þúsund árið 2016 en hefðu þurft að vera tugir milljóna til að vel mætti vera. Í svari Hafnar­ fjarðarbæjar kemur fram að byggt hafi ver­ ið á fjárhagslegri getu móðurfé­ lags Work North, GLL ehf., en slíkt sé heimilt samkvæmt 76. grein laga um opin­ ber innkaup. Þá vísar Einar í ákvæði í útboðsgögnum þar sem fram kemur að ef fyrirtæki uppfylli ekki fjárhagsskilyrði sam­ kvæmt ársreikningi þá sé heim­ ilt að leggja fram árshlutareikning áritaðan af löggiltum endurskoð­ anda. „Að virtu framangreindu taldi kaupandi skilyrði um fjár­ hagslega stöðu uppfyllta,“ segir í svari Einars. Að hans sögn hafi Hafnarfjarðarbær ekki upplýs­ ingar um annað en að Work North væri í skilum með opinber gjöld og lífeyrisgjöld en það var eitt af ófrávíkjanlegum skilyrðum út­ boðsins. Fengu góða umsögn frá Hafnarfjarðarbæ Eins og komið hefur fram bárust tólf tilboð í niðurrif Sementsverk­ smiðjunnar en Work North varð hlutskarpast með tilboð upp á 175 milljónir króna. Til samanburð­ ar hljóðaði hæsta tilboðið upp á 994 milljónir króna en kostnaðar­ áætlun verkefnisins, sem verk­ fræðistofan Mannvit vann, hljóð­ aði upp á 326 milljónir króna. „Það er rétt að taka fram að eftir að ljóst var að Work North átti lægsta tilboðið leitaði sveitarfélagið sér upp­ lýsinga um verk sem félagið hafði unnið hjá Hafnarfjarðarbæ fyrir skemmstu. Ástæða þess var að fyrirtækið var nýtt í þessum geira þó að starfsmenn þess virtust hafa reynslu. Félaginu var borin vel sagan varðandi það verk. Jafn­ framt var hæfi félagsins skoðað og sú skoðun leiddi ekki í ljós nein at­ riði sem útilokuðu félagið frá verk­ inu,“ segir Sævar Freyr. Að hans sögn var sérstaklega óskað eftir skýringum frá Work North um forsendur tilboðsins enda var það afar lágt miðað við fyrirliggjandi kostnaðaráætlun. „Sérfræðingar sveitarfélagsins mátu þær skýringar trúverðugar,“ segir Sævar Freyr. Enn fremur hafi borist ábendingar til sveitarfélags­ ins um misjafna forsögu sumra forsvarsmanna fyrirtækisins og því hafi Akraneskaupstaður óskað eftir ítarlegum upplýsingum um eigendur Work North ehf., með­ al annars sakavottorð allra hlut­ aðeigandi. „Í þeim gögnum kom ekkert fram, að mati lögmanna sveitarfélagsins, sem leitt gæti til þess að Akraneskaupstaður gæti hafnað boði Work North. n Ítarlegasta skoðun á tilboðsgjafa í sögu Akraness Work North ehf. fékk góða umsögn hjá Hafnarfjarðarbæ sem ákvörðun Akraness byggði á Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Einar Bárðarson Sam- skiptastjóri Hafnar- fjarðarbæjar. Sævar Freyr Þráinsson Bæjarstjóri Akraneskaup- staðar. Sementsverksmiðjan á Akranesi Mun brátt heyra sögunni til. Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.