Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Síða 6
6 Helgarblað 3. nóvember 2017fréttir
J
afn ítarleg skoðun á til
boðsaðila hefur ekki farið
fram áður af hálfu sveitar
félagsins og það þrátt fyrir
að félagið hafi unnið fyrir fleiri
sveitarfélög,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson, bæjarstjóri Akranes
kaupstaðar, í skriflegu svari til
DV. Tilefnið var útboð á niður
rifi Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi, stærsta verkefni sinn
ar tegundar í Íslandssögunni,
sem fyrirtækið Work North ehf.
varð hlutskarpast í. Eins og greint
var frá í síðustu viku er mik
il reiði meðal annarra verktaka
vegna þeirrar staðreyndar að
tilboð Work North ehf. var yfir
höfuð tekið gilt. Ástæðan er sú að
rekstrarsaga aðila sem tengjast
Work North einkennist af gjald
þrotum og ásökunum um mis
jafna starfshætti. Þá var einnig
gríðarleg óánægja með að opin
berir aðilar eins og Íslandsbanki,
Hafnarfjarðarbær og Akranes
kaupstaður væru að koma fótun
um undir aðila með slíka sögu.
Þá voru efasemdarraddir uppi
um að fyrirtækið uppfyllti ítar
lega skilmála útboðanna.
Reynsla starfsmanna skipti
sköpum
Stjórnarformaður Work North og
prókúruhafi er Þórkatla Ragnars
dóttir sem er á meðal þeirra sem
undirgengust rannsókn skatt
rannsóknarstjóra á meintum
skattalagabrotum í tengslum við
rekstur fyrirtækisins Brotafls.
Eiginmaður hennar, Sigurjón G.
Halldórsson, var einn af tveim
ur eigendum fyrirtækisins en
hann hefur keyrt mörg fyrirtæki
í þrot. Þá er bróðir hans, Guðjón
Halldórsson, einn af núverandi
eigendum Work North.
Fyrirtækið varð fyrst
hlutskarpast í útboði um niður
rif Íslandsbanka á byggingum
við Kirkjusand. Næsta verkefni
var niðurrif Dvergsins svokallaða
við Lækjargötu 2 í Hafnarfirði. Í
útboðsskilmálum bæjarins fyrir
það verk kom fram að bjóðandi
þyrfti að hafa lokið við eitt samb
ærilegt verk á síðastliðnum fimm
árum og því var álitamál hvort
Work North uppfyllti ákvæðið. Í
svari frá Einari Bárðarsyni, sam
skiptastjóra Hafnarfjarðarbæj
ar, kemur fram að bærinn hafi
heimild til þess að meta reynslu
starfsmanna sem félagið hafi
ráðið til verksins. Í ljósi þess hafi
Hafnarfjarðarbær talið að skil
yrðið um reynslu og hæfni væri
uppfyllt.
Byggðu á
fjárhagsstöðu
móðurfélags-
ins
Þá fór Hafnar
fjarðarbær
fram á að með
alársvelta fyrir
tækisins síð
astliðinn þrjú ár
væri að lágmarki
sem nemur 50 pró
sentum af tilboði bjóð
anda í verkið. Heildar
tekjur Work North voru
aðeins 780 þúsund
árið 2016 en hefðu
þurft að vera tugir
milljóna til að
vel mætti vera.
Í svari Hafnar
fjarðarbæjar
kemur fram að
byggt hafi ver
ið á fjárhagslegri
getu móðurfé
lags Work North,
GLL ehf., en slíkt
sé heimilt samkvæmt
76. grein laga um opin
ber innkaup. Þá vísar Einar
í ákvæði í útboðsgögnum þar
sem fram kemur að ef fyrirtæki
uppfylli ekki fjárhagsskilyrði sam
kvæmt ársreikningi þá sé heim
ilt að leggja fram árshlutareikning
áritaðan af löggiltum endurskoð
anda. „Að virtu framangreindu
taldi kaupandi skilyrði um fjár
hagslega stöðu uppfyllta,“ segir
í svari Einars. Að hans sögn hafi
Hafnarfjarðarbær ekki upplýs
ingar um annað en að Work North
væri í skilum með opinber gjöld
og lífeyrisgjöld en það var eitt af
ófrávíkjanlegum skilyrðum út
boðsins.
Fengu góða umsögn frá
Hafnarfjarðarbæ
Eins og komið hefur fram bárust
tólf tilboð í niðurrif Sementsverk
smiðjunnar en Work North varð
hlutskarpast með tilboð upp á 175
milljónir króna. Til samanburð
ar hljóðaði hæsta tilboðið upp á
994 milljónir króna en kostnaðar
áætlun verkefnisins, sem verk
fræðistofan Mannvit vann, hljóð
aði upp á 326 milljónir króna.
„Það er rétt að taka fram að eftir að
ljóst var að Work North átti lægsta
tilboðið leitaði sveitarfélagið sér
upp
lýsinga
um verk
sem félagið hafði
unnið hjá Hafnarfjarðarbæ fyrir
skemmstu. Ástæða þess var að
fyrirtækið var nýtt í þessum geira
þó að starfsmenn þess virtust
hafa reynslu. Félaginu var borin
vel sagan varðandi það verk. Jafn
framt var hæfi félagsins skoðað og
sú skoðun leiddi ekki í ljós nein at
riði sem útilokuðu félagið frá verk
inu,“ segir Sævar Freyr.
Að hans sögn var sérstaklega
óskað eftir skýringum frá Work
North um forsendur tilboðsins
enda var það afar lágt miðað við
fyrirliggjandi kostnaðaráætlun.
„Sérfræðingar sveitarfélagsins
mátu þær skýringar trúverðugar,“
segir Sævar Freyr. Enn fremur hafi
borist ábendingar til sveitarfélags
ins um misjafna forsögu sumra
forsvarsmanna fyrirtækisins og
því hafi Akraneskaupstaður óskað
eftir ítarlegum upplýsingum um
eigendur Work North ehf., með
al annars sakavottorð allra hlut
aðeigandi. „Í þeim gögnum kom
ekkert fram, að mati lögmanna
sveitarfélagsins, sem leitt gæti til
þess að Akraneskaupstaður gæti
hafnað boði Work North. n
Ítarlegasta skoðun á tilboðsgjafa
í sögu Akraness
Work North ehf. fékk góða umsögn hjá Hafnarfjarðarbæ sem ákvörðun Akraness byggði á
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Einar
Bárðarson
Sam-
skiptastjóri
Hafnar-
fjarðarbæjar.
Sævar Freyr Þráinsson
Bæjarstjóri Akraneskaup-
staðar.
Sementsverksmiðjan á Akranesi
Mun brátt heyra sögunni til.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af