Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 66
2 Skrifstofan Helgarblað 3. nóvember 2017KYNNINGARBLAÐ
Fyrir marga er
draumavinnuaðstaðan hér
Þrjár skrifstofur lausar hjá 14skrifstofum
Er hægt að hugsa sér betri vinnuaðstöðu en stóra og bjarta
skrifstofu á góðum stað í
hafnarfirði með háhraða
internetengingu, kaffi
stofu, fundarherbergi, góðri
salernis aðstöðu og sturtu?
og allt saman á hagstæðu
verði.
fyrirtækið 14skrifstofur
býður 14 nýstandsettar
skrifstofur að trönuhrauni 1 í
hafnarfirði, í vinalegu hverfi
rétt fyrir utan miðbæinn.
stutt er í allt, svo sem fjölda
veitingastaða allt í kring og
alla aðra þjónustu í næsta
nágrenni.
leigan er mjög hagstæð
og allt innifalið: hiti, rafmagn,
háhraða internet, aðgangur
að sameiginlegri kaffistofu og
fundarherbergi, sem og sal
erni og sturtu. allir leigjendur
hafa aðgang að staðnum
allan sólarhringinn og rýmið
er vaktað með myndavéla
kerfi.
leigufyrirkomulag ein
kennist af sveigjanleika. Bæði
skammtímaleiga og lang
tímaleiga standa til boða. á
þeim tíma sem skrifstofurn
ar hafa verið til leigu, þ.e.
síðasta hálfa árið, hafa
sumir tekið skrifstofu á leigu
í aðeins einn mánuð og eru
þar dæmi um fólk að ljúka við
lokaverkefni í háskóla sem
hefur vantað næði í stuttan
tíma. aðrir hafa verið allan
tímann og sýna ekki á sér
fararsnið. Í augnablikinu eru
þrjár skrifstofur lausar.
Eigendur að 14skrifstofum
eru þeir Guðjón Pétur lýðs
son og kári ársælsson en
Brynja Guðmundsdóttir hefur
einnig unnið með þeim að
þessari uppbyggingu. fyrir
tækið er rekið með hag
kvæmum hætti og er laust
við yfirbyggingu. Þannig tekst
að halda leiguverðinu niðri:
„Ég held að þetta sé með
hagstæðara skrifstofuhús
næði sem fyrirfinnst á höfuð
borgarsvæðinu og fólk er auk
þess mjög hrifið af mikilli loft
hæð og þægilegu andrúm
lofti. Þess má geta að það
er mikill kostur að vera með
aðstöðu í hafnarfirði og keyra
alltaf á morgnana og seinni
partinn á móti umferð en sitja
ekki fastur í umferðinni,“ segir
Guðjón Pétur lýðsson en
hann telur að auk hagkvæms
rekstrar séu eigendur fyrir
tækisins einfaldlega að leggja
kapp við að hafa þarfir við
skiptavinanna að leiðarljósi
en að eyða ekki í óþarfa og
ná þannig að halda verðinu í
lágmarki.
„Við byrjuðum að leigja út
fyrir hálfu ári en við keyptum
húsið fyrir tveimur árum,“
segir Guðjón, en eigendurnir
hafa lagt í þetta eigið sparifé,
meðal annars fjármagn sem
kári og Guðjón náðu að búa
til með hagstæðum fast
eignaviðskiptum.
Vinnan við að gera upp
húsnæðið var einnig að
mestu í höndum þeirra og
góðra vina auk þess sem
góðir verktakar komu einnig
að þessu: „Ég lærði húsa
smíði í iðnskólanum í reykja
vík þó svo ég eigi eftir að
klára sveinsprófið. og maður
er mikið búinn að þræla og
djöflast í þessu síðustu tvö
árin en allt hefur þetta geng
ið vel upp,“ segir Guðjón.
sem fyrr segir eru þrjár
skrifstofur lausar í trönu
hrauni í augnablikinu en
fjölbreyttur hópur leigjenda
er fyrir í húsinu:
„Þetta er alls konar starf
semi. hér er til dæmis for
ritari og hér er fyrirtækið
Green key sem sérhæfir sig í
airbnbgistiþjónustu. síð
an er hér tryggingasali og
verktaki sem er hérna með
skrifstofu til að hafa yfirsýn
yfir öll verkefnin sín. Þá er
hér til dæmis hérna aðili með
miNi cardþjónustu, en það
eru afsláttar kort fyrir ferða
menn.“
Guðjón segir leigjendur
kunna vel að meta félags-
skapinn auk þess sem þetta
fyrirkomulag gefi fólki úr
ólíkum starfsgreinum tæki-
færi til að vinna saman.
Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni www.14skrifstofur.
is og þar er hægt að setja inn
fyrirspurnir, t.d. fyrir þá sem
hafa áhuga á að leigja sér
skrifstofu, og er þeim svarað
hratt og örugglega.