Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 46
46 fólk Helgarblað 3. nóvember 2017
Í
iðnaðarhúsi við Kársnesbraut í
Kópavogi er verkstæðið Sviss-
inn staðsett. Strax þegar keyrt er
í innkeyrsluna að verkstæðinu er
ljóst að ekki er um neinn venjulegan
stað að ræða. Á útvegg við verk-
stæðið blasir við kunnuglegur aftur-
endi á glæsibifreið. Um er að ræða
bílinn sem einkenndi veitingastað-
inn Hard Rock í Kringlunni á árum
áður og margir muna eftir. „Þeir
voru í vandræðum með að ná bíln-
um niður þegar staðnum var lokað.
Það var hringt í mig og ég var með
græjur til þess. Í staðinn fékk ég að
eiga bílinn,“ segir Aðalsteinn Ás-
geirsson, betur þekktur sem Steini í
Svissinum, þegar hann tekur á móti
blaðamanni.
Steini kom bílnum fyrir á úti-
vegg við verkstæði sitt enda má
segja að bíllinn sé lýsandi fyrir
Svissinn. Þar taka Steini og sam-
starfsmaður hans, Óskar Gunnars-
son bílvirki, málmhrúgur, sem
varla geta talist bílar lengur, í gegn
og gera þá upp svo þeir líta betur
út en þegar þeir voru nýir.
Byrjaði sem dútl
„Ég hef ekki tölu á því hvað ég er
búinn að gera marga bíla upp.
En þeir eru ansi margir,“ segir
Steini. Hann segist alltaf hafa haft
brennandi áhuga á bílum en hann
byrjaði ekki að vinna við áhuga-
málið fyrr en fyrir rúmum aldar-
fjórðungi. „Ég er menntaður raf-
virki og starfaði sem slíkur. Síðan
byrjaði ég á þessu dútli og það hef-
ur undið upp á sig,“ segir Steini og
brosir.
Svissinn er ekki stórt verk-
stæði, langt í frá. Um er að ræða eitt
iðnaðarbil þar sem aðeins er pláss
fyrir tvo bíla með góðu móti. Þeir
félagarnir, Steini og Skari, ná hins
vegar að koma þremur bílum þar
fyrir þökk sé forláta lyftu. Það er í
raun og veru ótrúlegt hvað mikið
af alls konar dóti kemst fyrir í bilinu
og að Steini og Skari geti í raun og
veru skapað sér til rými til að vinna.
Við fyrstu sýn virðist vera fullkomin
óreiða inni á verkstæðinu en þegar
betur er að gáð er öllu haganlega
fyrir komið og þeir félagarnir geta
gengið að sérhverjum hlut. Í raun
og veru er Svissinn eins og lítið safn
þar sem alls konar munum er kom-
ið fyrir og myndir af bílum hanga á
veggjum.
Allt smíðað frá grunni
Á miðju gólfinu er bílhræ sem
Steini og Skari eru byrjaðir að
vinna í. Bíllinn er nánast ryðgað-
ur í sundur og varla má sjá nokkuð
heillegt í bifreiðinni. Blaðamann
óar við því gríðarlega verkefni
sem fyrir höndum er. „Við erum
að bíða eftir nokkrum hlutum sem
við erum að panta að utan í þenn-
an,“ segir Steini. Það er allur gang-
ur á því hvort hægt sé að panta alla
hluti að utan, en ef íhlutirnir finn-
ast ekki þá smíða félagarnir þá
frá grunni. „Við höfum góð sam-
bönd víða til þess að finna þessa
hluti,“ segir Steini. Stundum þarf
að kemba netið í leitinni að hlutn-
um sem vantar og þar er Skari á
heimavelli að sögn Steina.
Eðli málsins samkvæmt fer
gríðarlegur tími í að byggja upp
slíkan bíl frá grunni og Skari sýn-
ir blaðamanni myndaröð frá svip-
uðu verki. Þar er hver einasti smá-
hlutur í bílnum tekinn í gegn,
pússaður eða smíðaður frá grunni
og síðan er öllu haganlega fyr-
ir komið. Þá er bíllinn sprautaður
og mikil vinna lögð í að gera allar
innréttingar, áklæði og skreytingar
á bílnum eins og þær voru í upp-
runalegu útgáfunni. Að endingu
er það rúsínan í pylsuendan-
um, límmiðar. „Við leggjum mikla
vinnu í að finna límmiða eins og
voru í upprunalegu bílunum. Lím-
miðarnir eru punkturinn yfir i-ið,“
segir Steini og hlær.
Hann og Skari vinna á verk-
stæðinu alla virka daga. Vinnu-
dagarnir eru stundum langir en
það er auðheyrt að þeir hafa mikla
ástríðu fyrir starfinu. Þegar vinnu-
vikunni er lokið segist Steini reyna
að slaka á með því að sinna áhuga-
málinu. Það er að gera upp eigin
bíla í Svissinum. „Ég nýt mín hvergi
betur en hérna á verkstæðinu. Það
eru forréttindi að starfa við áhuga-
málið sitt,“ segir Steini. n
Breytir bílhræjum í listaverk
n Steini í Svissinum gerir upp bíla n Vinnan er áhugamálið
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Kaffihornið-
Upp um alla veggi
eru skemmtilegar
myndir og áhuga-
verðir gripir.
Steini í Svissinum Steini fyrir
framan fyrsta bílinn sinn, glæsi-
legan Cadillac. Myndir Björn BlöndAl
Varla lengur bíll Steini og Skari taka bifreiðir í afar slæmu ástandi og gera þær upp frá grunni.
Frægur afturendi Margir kannast við bílinn frá dýrðar-
dögum hans við veitingastaðinn Hard Rock í Kringlunni.
Steini í essinu sínu Svissinn er lítið verkstæði en öllu er haganlega fyrir komið þar.