Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Side 46
46 fólk Helgarblað 3. nóvember 2017 Í iðnaðarhúsi við Kársnesbraut í Kópavogi er verkstæðið Sviss- inn staðsett. Strax þegar keyrt er í innkeyrsluna að verkstæðinu er ljóst að ekki er um neinn venjulegan stað að ræða. Á útvegg við verk- stæðið blasir við kunnuglegur aftur- endi á glæsibifreið. Um er að ræða bílinn sem einkenndi veitingastað- inn Hard Rock í Kringlunni á árum áður og margir muna eftir. „Þeir voru í vandræðum með að ná bíln- um niður þegar staðnum var lokað. Það var hringt í mig og ég var með græjur til þess. Í staðinn fékk ég að eiga bílinn,“ segir Aðalsteinn Ás- geirsson, betur þekktur sem Steini í Svissinum, þegar hann tekur á móti blaðamanni. Steini kom bílnum fyrir á úti- vegg við verkstæði sitt enda má segja að bíllinn sé lýsandi fyrir Svissinn. Þar taka Steini og sam- starfsmaður hans, Óskar Gunnars- son bílvirki, málmhrúgur, sem varla geta talist bílar lengur, í gegn og gera þá upp svo þeir líta betur út en þegar þeir voru nýir. Byrjaði sem dútl „Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búinn að gera marga bíla upp. En þeir eru ansi margir,“ segir Steini. Hann segist alltaf hafa haft brennandi áhuga á bílum en hann byrjaði ekki að vinna við áhuga- málið fyrr en fyrir rúmum aldar- fjórðungi. „Ég er menntaður raf- virki og starfaði sem slíkur. Síðan byrjaði ég á þessu dútli og það hef- ur undið upp á sig,“ segir Steini og brosir. Svissinn er ekki stórt verk- stæði, langt í frá. Um er að ræða eitt iðnaðarbil þar sem aðeins er pláss fyrir tvo bíla með góðu móti. Þeir félagarnir, Steini og Skari, ná hins vegar að koma þremur bílum þar fyrir þökk sé forláta lyftu. Það er í raun og veru ótrúlegt hvað mikið af alls konar dóti kemst fyrir í bilinu og að Steini og Skari geti í raun og veru skapað sér til rými til að vinna. Við fyrstu sýn virðist vera fullkomin óreiða inni á verkstæðinu en þegar betur er að gáð er öllu haganlega fyrir komið og þeir félagarnir geta gengið að sérhverjum hlut. Í raun og veru er Svissinn eins og lítið safn þar sem alls konar munum er kom- ið fyrir og myndir af bílum hanga á veggjum. Allt smíðað frá grunni Á miðju gólfinu er bílhræ sem Steini og Skari eru byrjaðir að vinna í. Bíllinn er nánast ryðgað- ur í sundur og varla má sjá nokkuð heillegt í bifreiðinni. Blaðamann óar við því gríðarlega verkefni sem fyrir höndum er. „Við erum að bíða eftir nokkrum hlutum sem við erum að panta að utan í þenn- an,“ segir Steini. Það er allur gang- ur á því hvort hægt sé að panta alla hluti að utan, en ef íhlutirnir finn- ast ekki þá smíða félagarnir þá frá grunni. „Við höfum góð sam- bönd víða til þess að finna þessa hluti,“ segir Steini. Stundum þarf að kemba netið í leitinni að hlutn- um sem vantar og þar er Skari á heimavelli að sögn Steina. Eðli málsins samkvæmt fer gríðarlegur tími í að byggja upp slíkan bíl frá grunni og Skari sýn- ir blaðamanni myndaröð frá svip- uðu verki. Þar er hver einasti smá- hlutur í bílnum tekinn í gegn, pússaður eða smíðaður frá grunni og síðan er öllu haganlega fyr- ir komið. Þá er bíllinn sprautaður og mikil vinna lögð í að gera allar innréttingar, áklæði og skreytingar á bílnum eins og þær voru í upp- runalegu útgáfunni. Að endingu er það rúsínan í pylsuendan- um, límmiðar. „Við leggjum mikla vinnu í að finna límmiða eins og voru í upprunalegu bílunum. Lím- miðarnir eru punkturinn yfir i-ið,“ segir Steini og hlær. Hann og Skari vinna á verk- stæðinu alla virka daga. Vinnu- dagarnir eru stundum langir en það er auðheyrt að þeir hafa mikla ástríðu fyrir starfinu. Þegar vinnu- vikunni er lokið segist Steini reyna að slaka á með því að sinna áhuga- málinu. Það er að gera upp eigin bíla í Svissinum. „Ég nýt mín hvergi betur en hérna á verkstæðinu. Það eru forréttindi að starfa við áhuga- málið sitt,“ segir Steini. n Breytir bílhræjum í listaverk n Steini í Svissinum gerir upp bíla n Vinnan er áhugamálið Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Kaffihornið- Upp um alla veggi eru skemmtilegar myndir og áhuga- verðir gripir. Steini í Svissinum Steini fyrir framan fyrsta bílinn sinn, glæsi- legan Cadillac. Myndir Björn BlöndAl Varla lengur bíll Steini og Skari taka bifreiðir í afar slæmu ástandi og gera þær upp frá grunni. Frægur afturendi Margir kannast við bílinn frá dýrðar- dögum hans við veitingastaðinn Hard Rock í Kringlunni. Steini í essinu sínu Svissinn er lítið verkstæði en öllu er haganlega fyrir komið þar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.